Ronaldo klúðraði víti og allt jafnt í Tórínó Anton Ingi Leifsson skrifar 16. desember 2020 19:24 Ronado eftir að hafa klúðrað vítaspyrnunni. Jonathan Moscrop/Getty Images Juventus og Atalanta mættust í einum af stórleikjum ítalska boltans í kvöld. Mikið fjör var í leiknum sem lauk með 1-1 jafntefli. Eftir tæplega hálftíma var það Federico Chiesa sem kom Juventus yfir og þannig stóðu leikar í hálfleik. Gestirnir frá Atalanta, sem gustað hefur um að undanförnu, jöfnuðu á 57. mínútu. Markið skoraði Remo Freuler. Einungis fjórum mínútum síðar fengu heimamenn í Juve þó vítaspyrnu en Pierluigi Gollini sá við honum. Lokatölur 1-1. Cristiano Ronaldo missed only the third penalty of his Serie A career this evening: 24 penalties taken 21 penalties scoredGo back to the bottom left. pic.twitter.com/3eUkfMbLXU— Squawka Football (@Squawka) December 16, 2020 Juventus er í þriðja sætinu með 24 stig, þremur stigum á eftir toppliði AC Milan, sem á þó leik til góða. Atalanta er í áttunda sætinu með átján stig. Fótbolti Ítalski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti