Íslenski boltinn

Her­mann Hreiðars tekur við HK

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hermann Hreiðarsson nýráðinn þjálfari meistaraflokks karla og Hjörtur Þór Steindórsson formaður knattspyrnudeildar HK
Hermann Hreiðarsson nýráðinn þjálfari meistaraflokks karla og Hjörtur Þór Steindórsson formaður knattspyrnudeildar HK HK

Hermann Hreiðarsson er tekinn við þjálfun Lengjudeildarliðs HK en Kópavogsliðið féll úr Bestu deildinni á dögunum.

Knattspyrnudeild HK hefur gert þriggja ára samning við Hermann. Hermann var þjálfari ÍBV í sumar og stýrði liðinu upp í Bestu deildina.

Hann fær nú tækifæri til að koma liði upp í Bestu deildina annað árið í röð en HK féll eftir að hafa spilað í Bestu deildinni í tvö tímabil.

Hermann lék lengi sem atvinnumaður á Englandi og spilaði yfir 300 leiki í ensku úrvalsdeildinni ásamt því að eiga 89 A-landsleiki á bakinu. Sem þjálfari hefur Hemmi m.a. þjálfað á Englandi, Indlandi ásamt Fylki, Þrótti Vogum og nú síðast uppeldisfélag sitt, ÍBV, en þá gerði hann að Lengjudeildarmeisturum í ár.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Hemma til starfa og bindum við miklar vonir við komu hans hingað í HK. Hemmi hefur mikla reynslu úr heimi fótboltans og verður spennandi að sjá hann stýra meistaraflokki karla næstu þrjú árin ásamt því að vinna með þeim fjölmörgu ungu og efnilegu leikmönnum sem eru og hafa verið að banka á dyr meistaraflokksins sl. misserin,“ sagði Hjörtur Þór Steindórsson formaður knattspyrnudeildar HK, í viðtali á heimasíðu HK.

Hermann rekur við starfi Ómars Inga Guðmundssonar sem hefur þjálfað HK undanfarin þrjú ár en hætti með liðið eftir 7-0 tapið á móti KR í lokaumferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×