Hlýnar þrefalt hraðar á suðurpólnum en meðaltalið Kjartan Kjartansson skrifar 30. júní 2020 16:44 Fáni nokkurra ríkja við suðurpólinn. Bandaríkjamenn hafa stundað hitamælingar þar frá 1957. Vísir/Getty
Loftið yfir suðurpólnum hefur hlýnað um þrefalt hraðar undanfarna áratugi en jörðin að meðaltali frá 10. áratug síðustu aldar. Hlýnunin er talin geta verið afleiðing náttúrulegra sveiflna að mestu en að losun manna á gróðurhúsalofttegundum hafi einnig lagt sitt af mörkum. Ný rannsókn sem byggist á veðurgögnum og loftslagslíkönunum og birtist í vísindaritinu Nature Climate Change í gær bendir til þess að hlýnun yfir suðurpólnum hafi numið um 0,6°C á áratug undanfarin þrjátíu ár. Að meðaltali hefur hlýnað um 0,2 gráður á jörðinni á áratug á því tímabili. Orsakir hlýnunarinnar eru raktar til breytinga á loftstraumum þúsundir kílómetra í burtu yfir vestanverðu hitabeltissvæði Kyrrahafsins, að sögn New York Times. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að náttúrulegur breytileiki gæti skýrt öfgakenndar hitabreytingarnar sem trompa hlýnun af völdum manna. Kyle R. Clem frá Viktoríuháskóla í Wellington á Nýja-Sjálandi segir að miðhálendi Suðurskautslandsins gæti verið einn fárra staða á jörðinni þar sem ekki er auðvelt að greina áhrif manna á loftslag vegna þess hversu náttúrulegar sveiflur eru fyrirferðarmiklar. „Það er aftur á móti afar ólíklegt að svo sterk hlýnun sjáist án aukningar gróðurhúsalofttegunda,“ segir Clem við bandaríska dagblaðið. Dýpri lægðir dæla hlýju lofti inn á meginlandið Sterkir vestlægir vindar eru sagðir hafa hindrað að hlýtt loft kæmist inn yfir Suðurskautslandið lengi vel eftir að reglulegar hitamælingar hófust á suðurpólnum undir lok sjötta áratugarins. Á þeim tíma hélst loftslags þar stöðugt og fór jafnvel kólnandi. Undir lok síðustu aldar tók sjávarhiti í hitabeltinu í vestanverðu Kyrrahafinu að hækka með náttúrulegri sveiflu sem á sér stað yfir áratugaskeið. Hlýnun hafsins raskaði loftstraumum þannig að sterkar lægðir mynduðust á Weddell-hafi, austan við Suðurskautslandsskagann. Lægðirnar drógu hlýtt loft úr Suður-Atlantshafi inn á meginland Suðurskautslandsins. Sama þróun er talin ástæða hnignunar hafíss á Weddell-hafi. Lítil hætta er þó á verulegri bráðnun á suðurpólnum. Meðalhitinn þar er engu að síður í kringum -50°C á meðaltali. Jöklar sums staðar við strandlengju Suðurskautslandsins hafa aftur á móti látið undan síga undanfarna áratugi og er það rakið til hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Þar er það ekki síst hlýsjór sem kemst undir jöklana sem bræðir þá neðanfrá. Gríðarlegt magn ferskvatns er bundið í ís á suðurskautinu. Bráðnun íssins gæti hækkað sjávarstöðu á jörðinni um fleiri metra á næstu árhundruðum. Stærsti óvissuþátturinn um hækkun sjávarstöðu við strendur Íslands í skýrslu vísindanefndar um loftslagbreytingar sem kom út árið 2018 var talin bráðnun á Suðurskautslandinu. Gert er ráð fyrir að hækkun sjávarstöðu við Ísland verði mögulega aðeins 30-40% af heimsmeðaltali. Ástæðan er hröð bráðnun Grænlandsjökuls og þau áhrif sem hún hefur á þyngdarsvið jökulsins. Massi jökulsins hífir upp sjávarstöðuna í nágrenni hans. Þegar jökullinn tapar massa slaknar á þyngdarkraftinum og sjávarstaðan lækkar. Bráðnun íssins á Suðurskautslandinu hækkaði aftur á móti sjávarstöðuna við Ísland.
Suðurskautslandið Loftslagsmál Vísindi Tengdar fréttir Bráðnun á báðum hvelum sexfalt meiri en undir lok síðustu aldar Saman hafa Grænland og Suðurskautslandið tapað um 475 milljörðum tonnum af ís á hverju ári á þessum áratug sem er að líða. Það er margfalt meira en á 10. áratug síðustu aldar. 13. mars 2020 16:31 Síðasti áratugur sá hlýjasti í sögunni Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar um stöðu loftslagsmálai eru staðfestar bráðabirgðaniðurstöður sem lagðar voru fram á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember síðastliðnum sem sýndu að árið 2019 var næst heitasta ár frá upphafi mælinga. 11. mars 2020 13:15 Hitamet slegið á Suðurskautinu Útlit er fyrir að hitamet hafi verið slegið á Suðurskautslandi í byrjun vikunnar þegar hitinn mældist fara yfir tuttugu gráður. 14. febrúar 2020 08:43 Fundu hlýsjó undir viðkvæmri ísbreiðu á Suðurskautslandinu Thwaites-jökullinn á vestanverðu Suðurskautslandinu er talinn sérstaklega viðkvæmur fyrir áframhaldandi bráðnun. Hann hefur nú þegar tapað hundruð milljarða tonna af ís. 3. febrúar 2020 13:09 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira
Bráðnun á báðum hvelum sexfalt meiri en undir lok síðustu aldar Saman hafa Grænland og Suðurskautslandið tapað um 475 milljörðum tonnum af ís á hverju ári á þessum áratug sem er að líða. Það er margfalt meira en á 10. áratug síðustu aldar. 13. mars 2020 16:31
Síðasti áratugur sá hlýjasti í sögunni Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar um stöðu loftslagsmálai eru staðfestar bráðabirgðaniðurstöður sem lagðar voru fram á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember síðastliðnum sem sýndu að árið 2019 var næst heitasta ár frá upphafi mælinga. 11. mars 2020 13:15
Hitamet slegið á Suðurskautinu Útlit er fyrir að hitamet hafi verið slegið á Suðurskautslandi í byrjun vikunnar þegar hitinn mældist fara yfir tuttugu gráður. 14. febrúar 2020 08:43
Fundu hlýsjó undir viðkvæmri ísbreiðu á Suðurskautslandinu Thwaites-jökullinn á vestanverðu Suðurskautslandinu er talinn sérstaklega viðkvæmur fyrir áframhaldandi bráðnun. Hann hefur nú þegar tapað hundruð milljarða tonna af ís. 3. febrúar 2020 13:09