Heildartap Icelandair á fyrstu sex mánuðum ársins eru um 11 milljarðar króna. Aðspurður um hvort þessi rekstrarniðurstaða sé vonbrigði segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:
„Bæði og. Það eru miklar árstíðasveiflur í okkar rekstri og við gerum alltaf ráð fyrir því að tapa talsverðum fjármunum á fyrsta ársfjórðungi. Það gerðist í ár eins og yfirleitt og ekkert óeðlilegt við það,“ segir Bogi.
Fyrsti ársfjórðungur hafi þannig nokkurn veginn verið „á áætlun hjá okkur,“ eins og Bogi orðar það. „Hvað varðar annan fjórðung þá erum við í okkar grunnstarfsemi að gera mun betur en í fyrra, sem er mjög ánægjulegt, en síðan verðum við fyrir höggi vegna MAX-vélunum. Að þær séu kyrrsettar með svo skömmum fyrirvara, rétt fyrir okkar háönn þar sem þær hefðu verið 25 prósent af flotanum okkar í sumar.“
Það hafi eðli máls samkvæmt mikil áhrif á félagið, jafnt á tekju- og kostnaðarhlið. „En að öðru leyti er reksturinn að ganga betur en á síðasta ári sem er ánægjulegt. Það eru því bæði góð tíðindi í uppgjörinu og svo áhrif MAX-vélanna, sem eru vonbrigði og í raun áfall,“ segir Bogi.

Því muni félagið sækja bætur til Boeing og hefur flugvélaframleiðandinn gert ráð fyrir háum bótagreiðslum til viðskiptavina sinna vegna málsins. Viðræðurnar eru hafnar og gerir Bogi sér vonir um að Icelandair muni hafa erindi sem erfiði.
„Við teljum algjörlega óhugsandi að við fáum ekki bætur vegna þessa tjóns okkar. Nákvæmlega hvernig eða hversu mikið á auðvitað eftir að koma í ljós, það eru samningar að fara í gang. Okkar markmið er skýrt: Það er að fá allt tjón bætt,“ segir Bogi.
Framtíð félagsins björt
Aðspurður um hvort þessi rekstarniðurstaða kalli á frekari hagræðingu svarar Bogi á almennum nótum. Félagið stefni alltaf á sem hagkvæmastan rekstur en „í dag erum við ekki með neinar stórar uppsagnir á teikniborðinu.“Gengi bréfa Icelandair Group hefur lækkað nokkuð skarpt í morgun eftir að uppgjör síðasta fjórðungs var opinberað í gærkvöld. Bogi segir að í jafn dýnamískum geira og flugrekstri sé ekki óeðlilegt að slíkar sveiflur á hlutabréfaverði eigi sér stað. Framtíð félagsins sé engu að síður björt.
Þannig sé jákvætt hvernig Icelandair hefur tekið að fjölga farþegum á milli ára, rúmlega 30 prósent fjölgun farþega til landsins og þakkar Bogi því sveigjanlegu leiðakerfi. Þegar breytingar verði á markaðsaðstæðum geti félagið brugðist skjótt við. Þannig hafi Icelandair lagt aukna áherslu á flug til og frá landinu, í stað flugsins yfir Atlantshafið. Þessi áhersla verði ráðandi á næstunni og því megi búast við frekari fjölgun farþega til landsins, á kostnað farþeganna sem stoppa í Keflavík á leið sinni yfir hafið. Þetta, segir Bogi, verði vonandi íslenskri ferðaþjónustu til heilla.
Bogi segir þrátt fyrir fall WOW air sé enn mikil samkeppni í þessum geira, Icelandair sé að keppa við 25 félög sem fljúga til og frá landinu. Því sé erfitt að spá fyrir um þróun flugfargjalda, ekki síst vegna ýmissa annarra ytri þátta. Nefnir Bogi í því samhengi veðrið. Gott veður á suðvesturhorninu í ár hafi dregið úr þörf Íslendinga á að sækja sólina til útlanda, sem hefur þannig dregið úr eftirspurn Íslendinga eftir flugferðum. Ekki sé þó útilokað að fargjöld í vetur verði hærri en þau voru yfir vetrarmánuði síðasta árs.