Arnar: Lærði mest af fyrrverandi landsliðsmarkverði Belgíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2015 19:00
Arnar Grétarsson tók við þjálfun Breiðabliks í haust eftir fjögurra ára dvöl erlendis þar sem hann starfaði sem yfirmaður knattspyrnumála, fyrst hjá AIK Aþenu í Grikklandi og svo Club Brugge í Belgíu. Arnar er uppalinn Bliki og er næstleikjahæsti leikmaður í sögu félagsins með 289 leiki. Hann er því kominn á kunnuglegar slóðir en hann lék síðast með Breiðabliki 2009, þegar liðið varð bikarmeistari í fyrsta og eina sinn í sögu félagsins. Guðjón Guðmundsson kíkti í heimsókn í Kópavoginn á dögunum og tók Arnar tali. Arnar er mjög skipulagður í sínu starfi en hann segist hafa lært mikið af Michel Preud'homme, fyrrverandi landsliðsmarkverði Belgíu og núverandi þjálfara Club Brugge, þar sem Arnar starfaði áður. „Ég lærði hvað mest, undir það síðasta í Belgíu, af Michel Preud'homme. Það er í raun sá þjálfari sem ég tek mest frá,“ sagði Arnar. „Hann er alveg gríðarlega skipulagður þjálfari og hvert sem hann hefur farið, þá mætir hann alltaf fyrstur og fer alltaf síðastur. „Hann fór vel yfir hvern einasta leik og leikgreindi mjög vel. Og hann var með flotta myndbandsfundi, einhverja þá bestu sem ég hef séð, bæði sem yfirmaður íþróttamála og leikmaður. „Ég hef verið ansi lengi í þessu en aldrei kynnst svona vinnubrögðum, þar sem er farið hnitmiðað ofan í hvert einasta atriði,“ sagði Arnar en í innslaginu, sem má sjá hér að ofan. Þar ræðir hann einnig við Gaupa um þolþjálfun, en hann lætur leikmenn Breiðabliks stunda útihlaup, sem heyra sögunni til hjá mörgum félögum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Króatíski herinn lék íslenska þjóðsönginn til heiðurs Degi Handbolti Liverpool væri ekki á toppnum án VAR Enski boltinn Ferðast fimm hundruð kílómetra á dag fyrir kærustuna Fótbolti Atvinnumaður í fótbolta bæði í alvörunni og í tölvunni Fótbolti Newcastle á Wembley eftir aðra kennslustund í að refsa Arsenal Enski boltinn Jimmy Butler endaði hjá Golden State Körfubolti Dagskráin: Nær Tottenham að slá út Liverpool? Sport Segir að Ronaldo eigi þátt í óförum Rashford Enski boltinn Gagnrýndu HSÍ: „Höfum ekki efni á að koma svona fram við okkar besta fólk“ Handbolti Newcastle lét draum Víkings rætast Enski boltinn Fleiri fréttir Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Róbert Orri semur við Víkinga Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Guy Smit frá KR til Vestra Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Vigdís Lilja seld til Anderlecht KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Einbeittur brotavilji Víkinga ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð Mætti Barcelona í byrjun mánaðar en spilar með Fram í Bestu í sumar Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Þróttur fær aðra úr Árbænum Sjá meira