Erlent
324 325 326 327 328 329 330 331 332 … 334 ›
Rapparinn Kodak Black meðal særðra eftir skotárás í Kaliforníu Þrír einstaklingar voru fluttir á sjúkrahús eftir skotárás í Kaliforníu í dag en meðal þeirra sem þurfti að flytja á spítala vegna skotsárs var bandaríski rapparinn Kodak Black. Erlent 12.2.2022 21:27
Rússar kalla sendiráðsstarfsmenn frá Úkraínu Rússnesk stjórnvöld hafa tekið ákvörðum um að hagræða utanríkisþjónustu sinni í Úkraínu með því að fækka starfsfólki í sendiráði sínu í Kíev. Erlent 12.2.2022 14:21
Franskir frambjóðendur í vanda með að safna nægum fjölda undirskrifta Nýjar reglur gera það að verkum að Marine Le Pen og fleiri popúlistar sem tilkynnt hafa um framboð í frönsku forsetakosningnum í apríl næstkomandi eiga nú í mestu vandræðum með að tryggja sér nægilegan fjölda undirskrifta til að fá að bjóða sig fram. Erlent 12.2.2022 09:00
Dæmd í sextán mánaða fangelsi eftir að kærastinn myrti son hennar Bandarísk kona hefur verið dæmd í sextán mánaða fangelsi fyrir að hafa ekki verndað son sinn, sem var myrtur af kærasta konunnar. Erlent 12.2.2022 08:44
Vörubílstjórar mótmæla enn þrátt fyrir lögbann Ekkert lát er á mótmælum vörubílstjóra í Kanada þrátt fyrir að dómstóll hafi úrskurðað að mótmælunum skyldi hætt í gær. Erlent 12.2.2022 08:03
Hvetja borgara sína í Úkraínu til að koma sér burt Bandarísk stjórnvöld hvetja nú bandaríska ríkisborgara í Úkraínu til þess að yfirgefa landið hið snarasta, helst innan 48 klukkustunda. Bandaríkin telja Rússa nú fullbúna til innrásar í Úkraínu. Erlent 11.2.2022 21:08
Enn bæta Rússar í við landamæri Úkraínu Gervihnattamyndir sýna að Rússar halda enn áfram að byggja upp herstyrk í grennd við landamæri Úkraínu. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að innrás Rússa gæti verið yfirvofandi á næstum dögum og vikum. Erlent 11.2.2022 15:44
Stjarna úr Cheer játar barnaníð og á yfir höfði sér 50 ára fangelsi Jeremiah „Jerry“ Harris, sem er þekktur fyrir að koma fram í þættinum Cheer sem sýndur er á Netflix, hefur játað að hafa brotið alríkislög með því að taka á móti barnaklámi og ferðast yfir ríkismörk til að stunda ólöglegt kynlífsathæfi. Erlent 11.2.2022 08:57
Hættir eftir röð hneykslismála Cressida Dick, yfirmaður Lundúnalögreglunnar, tilkynnti í gær að hún myndi láta af störfum eftir um fjögur ár í embættinu. Hún segir ekkert annað hafa verið í stöðunni en að hætta eftir að borgarstjórinn Sadiq Khan hafi tjáð henni að hann bæri ekki lengur traust til hennar. Erlent 11.2.2022 08:16
Kóalabirnir í útrýmingarhættu Kóalabirnir í Ástralíu eru nú komnir á lista yfir dýr í útrýmingarhættu á austurströnd landsins en gríðarleg fækkun hefur orðið í stofninum síðustu árin. Erlent 11.2.2022 07:41
Biden hvetur Bandaríkjamenn til að yfirgefa Úkraínu hið fyrsta Joe Biden Bandaríkjaforseti hvetur nú alla Bandaríkjamenn sem staddir eru í Úkraínu til að yfirgefa landið hið snarasta. Erlent 11.2.2022 07:27
Tók leynileg gögn með sér til Flórída Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, tók leynileg gögn með sér til Flórída eftir að hann steig úr embætti. Sum gagnanna voru merkt sem „Top Secret“ sem er ein hæsta leyndarskilgreining bandarískra stjórnvalda. Erlent 10.2.2022 23:40
Bílaframleiðendur skella í lás vegna mótmæla vörubílstjóra Mótmælendur í Frelsislestinni svokölluðu í Ottawa í Kanada hafa lokað landamærastöðum milli Kanada og Bandaríkjanna og mótmælin hafa leitt til þess að bílaframleiðendur í álfunni hafa þurft að skella í lás. Erlent 10.2.2022 22:46
Minnsta reikistjarnan fannst á braut um nágranna okkar Stjörnufræðingar hafa fundið þriðju reikistjörnuna á braut um einn af okkar nálægustu grönnum. Reikistjarnan fannst á braut um rauða dverginn Proxima Centauri, sem er einnig þekkt sem Alpha Centauri C, og tilheyrir þriggja stjörnu sólkerfi sem er það næsta okkar eigin sólkerfi. Erlent 10.2.2022 22:44
Telja sig hafa fundið líkamsleifar Miu og tveir menn grunaðir um morð Lögreglan í Danmörku hefur fundið líkamsleifar sem taldar eru vera Mia Skadhauge Stevn sem hvarf á sunnudaginn. Tveir menn hafa verið handteknir og eru grunaðir um að hafa myrt Miu. Erlent 10.2.2022 20:09
Annar mannanna í gæsluvarðhald en hinum sleppt Dómari í Álaborg hefur úrskurðað 36 ára karlmann í fjögurra vikna gæsluvarðhalds vegna hvarfs hinnar 22 ára Mia Skadhauge Stevn. Lögregla handtók tvo karlmenn, báða 36 ára, vegna málsins í gær og hefur hinn nú verið látinn laus. Saksóknarar hafa hins vegar áfrýjað þeirri ákvörðun dómsins. Erlent 10.2.2022 14:57
Gæti falið í sér bandaríska hermenn á danskri jörð Stjórnvöld í Danmörk ætla sér að taka upp viðræður við bandarísk stjórnvöld um að aukið varnarsamstarf ríkjanna sem gæti þýtt að bandarískir hermenn gætu safnast saman og æft á danskri jörð. Erlent 10.2.2022 14:22
Karl Bretaprins greinist með Covid-19 í annað sinn Karl Bretaprins hefur greinst með kórónuveiruna og er nú í einangrun. Þetta er í annað sinn sem Karl greinist með Covid-19, en hann greinist einnig í mars 2020 og fékk þá væg einkenni sjúkdómsins. Erlent 10.2.2022 13:30
Major sakar Johnson um óheiðarleika og aðför að lýðræðinu Boris Johnson braut sóttvarnalög, virðist ekki halda að reglurnar eigi við sig og hefur skapað vantraust á stjórnmálunum sem ógnar lýðræðislegri framtíð Bretlands. Erlent 10.2.2022 12:16
Trudeau gagnrýnir mótmæli vörubílstjóra: „Þessu verður að ljúka“ Ekkert lát virðist vera á mótmælum vörubílstjóra í Kanada, hinni svokölluðu Frelsislest (e. Freedom Convoy), en undanfarnar tvær vikur hefur bólusetningarskyldu verið harðlega mótmælt til að mynda í höfuðborginni Ottawa og á landamærum Kanada og Bandaríkjanna. Erlent 10.2.2022 11:17
Rússar og Hvítrússar hefja tíu daga sameiginlega heræfingu Sameiginleg æfing herja Rússlands og Hvíta-Rússlands hófst í Hvíta-Rússlandi í morgun og er áætlað að hún standi í tíu daga. Æfingin fer fram á sama tíma og áhöld eru um hvort að rússneski herinn hyggi á innrás inn í Úkraínu. Erlent 10.2.2022 09:39
Biden fordæmir „hatursfulla“ löggjöf gegn hinsegin fræðslu Joe Biden Bandaríkjaforseti gagnrýnir harðlega frumvarp sem liggur fyrir þinginu í Flórída, þar sem kveðið er á um bann gegn því að minnast á samkynhneigð í barnaskólum. Erlent 10.2.2022 08:29
Báðu um rannsókn á gagnameðferð Trumps Forsvarsmenn Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna eru sagðir hafa beðið dómsmálaráðuneytið um að opna rannsókn á meðhöndlun Donalds Trump, fyrrverandi forseta, og starfsmanna hans á opinberum gögnum í Hvíta húsinu. Það er í kjölfar þess að í ljós kom að Trump hafði tekið fimmtán kassa af gögnum og skjölum með sér til Flórída er hann steig úr embætti. Erlent 9.2.2022 23:50
Tapa allt að fjörutíu nýjum gervihnöttum vegna segulstorms Forsvarsmenn fyrirtækisins SpaceX tilkynntu í gær að útlit sé fyrir að allt að fjörutíu nýir Starlink-gervihnettir munu tapast vegna segulstorms. Gervihnettirnir munu brenna upp í gufuhvolfinu. Erlent 9.2.2022 22:10
Slógu eigið met í kjarnasamruna frá 1997: „Við höfum sýnt fram á að við getum myndað litla stjörnu“ Vísindamenn á JET-rannsóknarstöðinni (Joint European Torus) tilkynntu í dag að þeir hefðu slegið nýtt met í kjarnasamruna. Við það slógu vísindamennirnir gamalt met JET frá 1997 með því að framleiða rúmlega tvöfalt meiri orku. Erlent 9.2.2022 22:01
Öllum takmörkunum aflétt á Grænlandi Frá og með miðnætti í kvöld verður öllum sóttvarnaaðgerðum aflétt á Grænlandi. Stjórnvöld segja aðgerðirnar engu máli skipta þar sem kórónuveirusmit eru svo útbreidd í samfélaginu. Erlent 9.2.2022 20:35
Tekist á um horfna síma, ónýta tölvu og fræga afhjúpun í máli Vardy gegn Rooney Gögn í meiðyrðamáli knattspyrnueiginkonunnar Rebekah Vardy gegn Coleen Rooney gefa til kynna að Vardy hafi sagt að hún myndi „elska það“ að leka sögum um Rooney til breska slúðurblaðsins The Sun. Skilaboð á milli Vardy og umboðsmanns hennar benda til þess að þær hafi ítrekað rætt um að leka sögum til The Sun. Síma- og tölvugögn í málinu virðast að einhverju leyti hafa horfið á undarlegan hátt. Erlent 9.2.2022 13:45
Stefna á að aflétta öllum takmörkunum síðar í mánuðinum Mögulegt er að öllum takmörkunum vegna Covid verði aflétt síðar í þessum mánuði að sögn Boris Johnsons, forsætisráðherra Bretlands, en það er mánuði á undan áætlun. Þannig yrði meðal annars einangrun vegna Covid smits afnumin. Erlent 9.2.2022 13:25
Tveir handteknir vegna gruns um að tengjast hvarfi á 22 ára konu í Álaborg Lögregla í Danmörku hefur handtekið tvo 36 ára karlmenn vegna gruns um að tengjast hvarfinu á hinni 22 ára Mia Skadhauge Stevn. Ekkert hefur spurst til konunnar frá því að sást til hennar á öryggismyndavélum stíga upp í bíl í miðborg Álaborgar á Jótlandi snemma á sunnudagsmorgun, en málið hefur vakið mikla athygli í Danmörku. Erlent 9.2.2022 13:06
Margrét Þórhildur drottning með Covid-19 Margrét Þórhildur Danadrottning hefur greinst með kórónuveiruna. Erlent 9.2.2022 11:49