Kvennafrídagurinn
1 2 ›
Bein útsending: Konur streyma á Arnarhól Skipuleggjendur reikna með mikilli þátttöku í kvennaverkfallinu í dag þegar haldið er upp á það að fimmtíu ár eru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975. Vísir verður í beinni útsendingu og vakt frá sögugöngu eftir Sóleyjargötu þar sem leikkonur bregða sér í gervi kvenskörunga og svo frá Arnarhóli þar sem reiknað er með múgi og margmenni. Innlent 24.10.2025 12:54
„Konu“ tónleikar í Hvolnum á Hvolsvelli í kvöld Það stendur mikið til á Hvolsvelli í kvöld því þá ætla konur úr Rangárþingi að halda tónleika Í Hvolnum í tilefni kvennafrídagsins. Stúlknakórinn Æði mun meðal annars koma fram, Kvennakórinn Ljósbrá og sönghópurinn Nikkólínur. Lífið 24.10.2025 12:21
Er jafnrétti fyrir allar? Nú er 50 ára afmæli kvennaverkfallsins. Konur og kvár eiga að safnast saman í bænum og fagna sigri og berjast fyrir restinni af réttindinum sem vantar uppá. Ja, með smá caveat samt. Skoðun 24.10.2025 12:18
Enn einn dagur í baráttunni Síðustu daga hafa sjálfskipaðir siðapostular haldið því fram að þessi dagur sé fíflagangur og kjaftæði. Skoðun 24.10.2025 11:45
Þrjú kvár stýra fyrirtækjum Alls sátu þrjú kvár í stjórn fyrirtækja árið 2024 og um 97 kvár voru á vinnumarkaði það ár samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Viðskipti innlent 24.10.2025 11:26
Miðla sögu jafnréttisbaráttunnar á Íslandi til útlanda Íslensk stjórnvöld hafa sett í loftið vefsíðu á ensku þar sem sögu og árangri jafnréttisbaráttunnar á Íslandi eru gerð skil. Kvennaverkfallið sem boðað er í dag, í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá kvennaverkfallinu 1975, hefur vakið athygli út fyrir landssteinana. Dómsmálaráðherra sagði í viðtali við Sky News í gær að tilefni sé til að fagna þeim árangri sem náðst hafi en um leið sé baráttunni hvergi lokið. Innlent 24.10.2025 10:54
Bein útsending: Nútíma kvennabarátta – Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði ASÍ stendur fyrir málþingi í tilefni af kvennaverkfalli í dag sem ber yfirskriftina Nútíma kvennabarátta – Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði. Innlent 24.10.2025 09:30
Þjóðin klofin í afstöðu til þess hvort jafnrétti kynjanna hafi verið náð Segja má að þjóðin skiptist í tvær fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort fullu kynjajafnrétti hafi verið náð á Íslandi samkvæmt nýrri könnun Gallup. Nær 47% svarenda segja jafnrétti milli karla og kvenna hafa verið náð en 44% telja svo ekki vera. Töluverður munur er á afstöðu kynjanna til þessa en þannig telja ríflega 60% karla að jafnrétti hafi verið náð en aðeins rúm 30% kvenna. Þá er yngra fólk og þau sem eru tekjuhærri líklegra til að finnast jafnrétti hafa verið náð. Innlent 24.10.2025 08:44
Gleðilegan kvennafrídag og gleðilegt kvennaár Frá unga aldri hefur mér verið innrætt að við getum öll gert það sem við viljum og við getum öll látið draumana okkar rætast. Konur geta verið hvað sem þær vilja, meira að segja forsetar, sagði mamma. Sjálf hef ég lagt talsvert á mig til þess að láta mína drauma rætast. Skoðun 24.10.2025 08:32
Konur Íslands og alþjóðakerfið í takt Fimmtíu ár eru í dag liðin frá kvennafrídeginum, atburði sem enginn efast lengur um að hafi markað þáttaskil í kvenfrelsisbaráttu á Íslandi. Þann dag lögðu konur niður störf, söfnuðust saman og kröfðust jafnréttis og virðingar. Skoðun 24.10.2025 08:02
Hvað er svona merkilegt við það? „Af hverju eruð þið alltaf að tala um karlastörf og kvennastörf? Er ekki starf bara starf?“ spurði þátttakandi á námskeiði um starfagreiningar og virðismat starfa. Skoðun 24.10.2025 07:47
Til hamingju með 24. október Í dag 24. október 2025 er hálf öld liðin frá því að íslenskar konur lögðu niður störf og vöktu athygli á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Þessi viðburður er ljóslifandi í hugum margra en fyrir þau okkar sem upplifðu hann ekki er þessi dagur í sögulegu samhengi baðaður ljóma. Skoðun 24.10.2025 07:03
Allt að áttatíu þúsund mæti í miðbæinn og götulokanir í gildi Búist er við að allt að áttatíu þúsund manns, einkum konur og kvár, leggi leið sína í miðborg Reykjavíkur í dag í tilefni af Kvennaári. Árið 1975 lögðu konur niður störf til að krefjast jafnréttis og nú, fimmtíu árum síðar, á að endurtaka leikinn. Dagskrá fer fram að því tilefni víðsvegar um um landið, en stærsti viðburðurinn verður í höfuðborginni þar sem lögregla verður með öfluga öryggisgæslu. Götulokanir verða í gildi miðsvæðis þar til síðdegis í dag sem mun meðal annars hafa áhrif á ferðir Strætó. Innlent 24.10.2025 06:00
Samstaða - afl sem breytir samfélaginu Kæru konur og kvár, til hamingju með daginn. Í dag stöndum við saman til að minna á það sem aldrei má gleymast – að jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér. Það er ávöxtur baráttu, hugrekkis og samstöðu. Skoðun 23.10.2025 16:28
Einu sinni enn Kvennaár 2025 á Íslandi. Fimmtíu ár liðin frá því að íslenskar konur lögðu niður störf 24. október 1975, bæði launuð og ólaunuð, með þeim afleiðingum að samfélagið stöðvaðist. Þetta var sögulegur dagur sem vakti athygli um heim allan, breytti viðhorfum til kvenna og hvatti til lagabreytinga. Skoðun 23.10.2025 22:01
Kvenleiðtogar á kvennafrídegi: Kristrún með fjölskyldunni, Inga vill kíkja á Arnarhól og Þorgerður með í baráttuanda Kristrún Frostadóttir ætlar að vera með börnum sínum og fjölskyldu á kvennafrídeginum á morgun vegna vetrarfrís í skólum. Hún verður þó ekki í fríi en meðal annars er gert ráð fyrir að hún muni taka þátt í leiðtogafundi bandalagsríkja sem styðja Úkraínu eftir hádegi. Inga Sæland ætlar ekki að leggja niður störf en hyggst reyna að líta við á Arnarhóli. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er í fríi og mun ekki hafa færi á að taka þátt í samstöðufundi en verður með í anda. Innlent 23.10.2025 16:39
Bætum fleiri stólum við borðið Í ár fögnum við fimmtíu ára afmæli kvennafrídagsins sem eru stór tímamót í sögu jafnréttisbaráttunnar á Íslandi. Við megum svo sannarlega vera stolt af því hve langt við höfum náð. Skoðun 23.10.2025 13:32
Gagnrýna lítinn fyrirvara á skipulagi kvennafrídagsins Samtök atvinnulífsins gagnrýna breytingu á kvennafrídeginum á morgun þar sem konur og kvár séu nú með nær engum fyrirvara hvött til að leggja niður störf allan daginn. Þá minna þau á að engin skylda hvíli á atvinnurekendum að greiða laun í fjarvistum enda í misgóðri aðstöðu til að missa starfsfólk úr vinnu. Innlent 23.10.2025 13:03
Hvers virði er starfsleyfið okkar? Stundin er runnin upp! Þann 24. október eru 50 ár liðin frá kvennafrídeginum 1975 en þá þustu konur þessa lands út á göturnar, kröfðust launajafnréttis og að störf þeirra, launuð jafnt sem ólaunuð yrðu metin að verðleikum. Skoðun 23.10.2025 13:00
„Við finnum fyrir mikilli spennu frá heimsbyggðinni“ Augu heimsbyggðarinnar beinast að Kvennaverkfallinu sem boðað hefur verið á Íslandi á morgun. Þetta segir verkefnastýra Kvennaárs en boðað hefur verið til baráttufunda um allt land. Innlent 23.10.2025 12:56
Halla tekur sér frí og vill að karlmenn axli ábyrgð Halla Tómasdóttir forseti Íslands ætlar að taka sér frí á morgun til að standa með systrum sínum og bræðum gegn ofbeldi. Hún segir brýnt að kalla eftir enn virkari þátttöku karla og drengja í jafnréttisbaráttunni. Innlent 23.10.2025 10:30
Ég hef… Ég hef…orðið fyrir kynbundnu ofbeldi, …gengið heim í myrkri með lykil í lófanum. Skoðun 23.10.2025 07:33
Kröfur kvennaárs komnar í innheimtu og gjalddaginn fallinn Inga Auður Straumland, verkefnastýra Kvennaárs, segir skipulagningu ganga vel fyrir kvennaverkfall á föstudag en viðurkennir að verkefnalistinn sé nokkuð langur. Síðustu sjö daga hefur hnefa verið varpað á byggingar á höfuðborgarsvæðinu. Aðgerðin er táknræn og á að varpa ljósi á kröfur kvennaárs sem voru lagðar fram á kvennafrídeginum í fyrra. Innlent 22.10.2025 23:31
„Pylsusala“ á Lækjartorgi á kvennafrídaginn „Síðustu árin höfum við selt boli en í ár ákváðum við að breyta til og búa til klút - fyrir kvennaforsetann okkar, Höllu Tómasdóttur, sem hefur skapað tískustraum fyrir okkur og allar konur,“ segir Elísabet Gunnarsdóttir ein af konunum á bak við verkefnið Konur eru konum bestar. Lífið 22.10.2025 11:14
Klórar sér í kollinum yfir kvennaverkfallinu Fyrrverandi þingmaður segist ekkert skilja í því að konur eigi að fá auka frídag á föstudag þegar kvennaverkfall er boðað á fimmtíu ára afmæli þess fyrsta. Hún segist ekki myndu vilja reka fyrirtæki á Íslandi í dag. Innlent 22.10.2025 10:48
Hálfsdagslokun leikskóla skyndilega orðin að heilsdagslokun Leikskólar Reykjavíkurborgar verða sumir lokaðir allan daginn á föstudag vegna kvennafrídagsins. Foreldrum barna á leikskólunum var tilkynnt í síðustu viku að þeir yrðu lokaðir seinni hluta dags. Innlent 22.10.2025 10:38
Skýrt ákall um heilsdagsverkfall á kvennafrídegi í ár Á föstudag eru konur og kvár hvött til að leggja niður launuð sem og ólaunuð störf eins og konur gerðu fyrst árið 1975 þegar fyrsti kvennafrídagurinn var haldinn. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir hafa verið ákall um heilsdagsverkfall og því sé slíkt verkfall boðað í ár. Hún segir sérstaklega horft til kvenna í æðri stöðum og að hún voni að öllum verði gert kleift að taka þátt sem það vilja. Innlent 21.10.2025 23:42
Máttu neita karlmanni um leyfi í kvennaverkfalli Kærunefnd jafnréttismála telur að Íslenskar orkurannsóknir, Ísor, hafi mátt mismuna karlmanni á grundvelli kyns, með því að veita honum ekki leyfi til þess að taka þátt í kvennaverkfalli. Leyfi frá störfum sem konum og kynsegin fólki var veitt til að taka þátt hafi verið sértækar aðgerðar sem fælu ekki í sér brot gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Innlent 21.10.2025 14:12
Komið gott! Samkvæmt rannsókninni Áfallasaga kvenna hafa um 40% kvenna á Íslandi hafa orðið fyrir einhvers konar ofbeldi á lífsleiðinni. Staðan er enn verri hjá transfólki, kvárum, konum með fötlun og konum af erlendum uppruna en þeir hópar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir mismunun og valdbeitingu. Skoðun 21.10.2025 06:01
Götulokanir vegna kvennaverkfalls Götulokanir verða í gildi í miðborg Reykjavíkur vegna kvennaverkfallsins föstudaginn 24. október. Hluti miðborgarinnar verður lokaður akandi umferð frá tíu að morgni til fimm síðdegis. Innlent 20.10.2025 11:35