
Sjókvíaeldi

Banna Arnarlaxi að notast við „sjálfbærni“ í markaðssetningu
Neytendastofa hefur bannað Arnarlaxi að notast fullyrðingar um sjálfbærni í markaðssetningu og vörumerkjum félagsins. Fullyrðingarnar séu taldar villandi fyrir neytendur.

Svandís gerir ráð fyrir 20 prósenta afföllum
Í frumvarpi til laga um lagareldi, sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var að leggja fram til kynningar í Samráðsgáttinni, er ráð fyrir 20 prósent „afföllum“, sem þýðir að einn af hverjum fimm eldislöxum mun drepast í sjókvíunum.

Segir ríkisstjórnina standa á brauðfótum
Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var afar opinskár í Bítinu í morgun. Þar sagði hann brýn verkefni framundan og hann treysti einfaldlega ekki ríkisstjórninni til að koma þeim í hús.

Samfélagsleg ábyrgð Arnarlax; skaðar handbolta jafnt og náttúruna
Nýlega tilkynnti Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) með stolti Arnarlax sem nýjan styrktaraðila. Alla jafna fá slíkar fréttir ekki mikla athygli og sjaldnast mikla neikvæða athygli eins og nú. Ljóst er að almenningur er mjög ósáttur með þessu ákvörðun HSÍ, en hvers vegna skyldi það vera? Jú, Arnarlax er fyrirtæki sem stundar laxeldi í opnum sjókvíum og hefur sá iðnaður verið mikið í fréttum og umræðunni undanfarna mánuði.

Ekki næst í forystu HSÍ vegna samningsins við Arnarlax
Forystumenn HSÍ svara engum símum en samkvæmt heimildum Vísis munu þeir nú vera önnum kafnir við það, í sínum herbúðum, að hnoða saman yfirlýsingu vegna styrkarsamnings við Arnarlax.

Aflagjald í sjókvíeldi
Fyrir nokkrum dögum féll dómur í Héraðsdómi Vestfjarða, þar sem Arnarlax var sýknað af kröfu Vesturbyggðar um greiðslu á hækkuðu aflagjaldi fyrir löndun á eldislaxi í höfnum sveitarfélagsins.

Hvetja stjórnendur lífeyrissjóða til að hafna fjárfestingu í sjókvíaeldi
Landssamband veiðifélaga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það hvetur stjórnendur lífeyrissjóða til að hafna allri fjárfestingu í félögum sem stunda sjókvíaeldi.

Telur að formaður HSÍ eigi að segja af sér
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens bætist í hóp þeirra sem fordæma að HSÍ hafi gert styrktarsamning við sjókvíaeldisfyrirtækið Arnarlax. Hann er skorinorður og segir að formaður HSÍ, Guðmundur B. Ólafsson, eigi að segja af sér – umsvifalaust.

Nú eru þeir strákarnir þeirra
Hvernig gat þetta gerst, að Handknattleikssamband Íslands gerði samning við Arnarlax, þá norsku aurgoða sem hafa hreiðrað um sig í fjörðum landsins og eru að þar leggja lífríkið í rúst? Formaður HSÍ hefur gerst sekur um alvarlegan dómgreindarbrest og ætti að segja af sér strax.

Íþróttaþvottur á landsliðstreyjum
Í gær birtust fréttir af því að HSÍ væri komið með nýjan bakhjarl. Þar er um að ræða Arnarlax, stærsta sjókvíaeldisfyrirtæki landsins.

Guðmundur myndi aldrei bera auglýsingu sem hann kallar „hneyksli“
Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari karlalandsliðs Íslands í handbolta, segir samning milli Handboltasambands Íslands og Arnarlax vera hneyksli. Jafnframt segir hann formann HSÍ sýna dómgreindarskort með samningunum.

Björk og Rosalia gefa út lag til höfuðs sjókvíaeldi á morgun
Björk gagnrýnir íslenska sjókvíaeldisiðnaðinn harðlega í nýrri tilkynningu. Þar segist hún á morgun gefa út nýtt lag með spænsku söngkonunni Rosaliu sem ber heitið „oral.“

Segir Vestfirðinga óttast að gagnrýna fiskeldi
Veiga Grétarsdóttir, kajakræðari og náttúruverndarsinni, segist vona að myndir sem hún birti af lúsugum löxum í sjókvíum í Tálknafirði verði vendipunktur í málum fiskeldis hér á landi. Hún segir marga Vestfirðinga óttast að lýsa andstöðu sinni gegn fiskeldi.

Lag Bjarkar og Rosalíu kemur út á fimmtudaginn
Lagið Oral, úr smiðju tónlistarkonunnar Bjarkar með Rosalíu sem gestasöngkonu, kemur út fimmtudaginn næstkomandi, þann 9. nóvember. Lagið er að sögn Bjarkar framlag til baráttunnar gegn sjókvíaeldi á Íslandi.

Forviða yfir því að enginn hafi stöðvað útbreiðslu lúsarinnar
Fyrrverandi prófessor í velferð fiska segist aldrei hafa séð eins sára laxa eftir lús og þá sem eru í kvíum Arctic Fish og Arnarlax í Tálknafirði. Hann segist forviða yfir því að ekki hafi verið brugðist fyrr við.

Vilja leggja bann á fiskeldi í opnum sjókvíum: „Þetta er bara ógeðslegt“
Þingmenn Pírata hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að banna eigi fiskeldi í opnum sjókvíum. Flutningsmaður tillögunar segir eldið vera dýraníð og að það valdi gríðarlegum skemmdum á vistkerfum landsins.

Ísland á kortið sem dýraníðingar og umhverfissóðar
The Guardian hefur tekið til umfjöllunar það mál sem skekið hefur íslenska sjókvíaeldisiðnaðinn að undanförnu; lús hefur lagt undir sig sjókvíar og herjar á lax.

Vill stjórnendur laxeldisfyrirtækja í fangelsi
Um milljón lúsugum löxum hefur verið slátrað eða þeir drepist í sjókvíum í Tálknafirði. Talsmaður náttúruverndarsamtaka segir útilokað annað en að fiskarnir þjáist miðað við núverandi rekstrarfyrirkomulag. Hann kallar stjórnendur fyrirtækjanna glæpamenn.

„Ég ætlaði varla að trúa þessu“
Um milljón eldislaxa hafa drepist eða verið fargað í kvíum Arctic Fish og Arnarlax í Tálknafirði. Náttúruverndarsinni sem skoðaði kvíarnar segir alla laxa ofan í kví félagsins í Tálknafirði hafa verið lúsétna. Hún hafi varla trúað eigin augum.

Um milljón laxar orðið fordæmalausum lúsafaraldri að bráð
Að minnsta kosti ein milljón laxa hefur drepist eða verið fargað í fordæmalausum laxalúsafaraldri í Tálknafirði.

Segja sjókvíaeldi hafa verið stundað leyfislaust í tvo mánuði
Náttúruverndarsamtökin „Laxinn lifi“ segja Artic Sea Farm hafa stundað sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði leyfislaust í tvo mánuði. Samtökin segja að leyfið virðist hafa runnið út og krefjast þess að starfseminni verði þá þegar hætt.

Slátra lúsahrjáðum laxi fyrir veturinn
Þúsund tonnum af sjókvíaeldislaxi hefur verið slátrað í Tálknafirði. Fyrirtækin Arctic Sea Farm og Arnarlax hafa undanfarna mánuði glímt við mikla laxalús sem er ástæða förguninnar.

Nóg komið
Laxeldi í opnum sjókvíum í íslenskum fjörðum ætlar að reynast lífríkinu dýrkeypt eins og lengi hafði verið varað við. Fiskur sleppur umvörpum, erfðablöndun við villta laxastofna og lúsafár sem herjar á fiskinn með tilheyrandi eiturefnanotkun.

Bein útsending: Ræða slysasleppingar í sjókvíaeldi á þingi
Sérstök umræða um slysasleppingar í sjókvíaeldi verður á Alþingi klukkan 14 í dag. Málshefjandi er Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknar, og til andsvara verður matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir.

Sleppingar eldislax - Hvað er raunverulega í húfi?
Hagvöxtur. Störf. Fæða. Upplýsingaóreiða. Ásakanir. Reiði. Græðgi. Þetta er ekki svo slæmt. Við gerum bara betur næst.

Galdrabrennur nútímans
Á miðöldum voru stundaðar galdrabrennur og galdraofsóknir hér á landi og höfðu þær þá verið stundaðar í Evrópu um nokkurt skeið. Galdrabrennurnar byggðust á tortryggni, illu umtali og fáfræði. Í Evrópu var alþekkt að kaþólska kirkjan vildi berjast gegn villutrúarmönnum sem talið var að þjónaði djöflinum.

Skammgóður vermir - sagan endurtekur sig
Það er skiljanlegt en um leið sorglegt að lesa varnarviðbrögð í kjölfar fjölsótts samstöðufundar gegn sjókvíaeldi sem fram fór á Austurvelli 7. október síðastliðinn.

Áhrif sjókvíaeldis frá sjónarhóli íbúa
Í allri umræðunni um sjókvíaeldi sem varla hefur farið fram hjá nokkrum manni er ein hlið sem lítið hefur farið fyrir. Það er hlið nærsamfélaganna þar sem sjókvíaeldi er stundað.

Sjókvíeldi, með eða á móti
Það má segja að stormur ríki um þessar mundir í umræðu um sjókvíeldi. Stór orð látin falla og þá skal skunda á Austurvöll og hafa hátt.

Ég skipti engu máli í þessu – jú víst
Takk fyrir frábæran samstöðufund á Austurvelli laugardaginn 7. október. Takk skipuleggjendur og allir þeir sem komu fram á fundinum.