Þýski boltinn

Glódís á sínum stað þegar Bayern vann örugglega
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í vörn Bayern Munchen sem vann öruggan 3-0 sigur á Potsdam í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Dortmund og Union Berlin jöfnuðu topplið Bayern að stigum
Það verður seint hægt að saka þýsku úrvalsdeildina í fótbolta um að vera óspennandi þetta tímabilið, en eftir leiki helgarinnar eru þrjú lið jöfn á toppnum.

Gladbach áfram með tak á Þýskalandsmeisturum Bayern
Borussia Mönchengladbach vann 3-2 sigur á Þýskalandsmeisturum Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Bæjurum hefur ekki tekist að sigra Gladbach í síðustu fimm leikjum í deild eða bikar.

Sjáðu þrumuskalla Glódísar Perlu og mark Sveindísar um helgina
Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir kom báðar á skotskónum til móts við íslenska landsliðið eftir að hafa skorað fyrir lið sín í þýsku deildinni um helgina.

Sveindís skoraði fyrir Wolfsburg
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði eitt marka Wolfsburg sem lagði Essen 3-0 í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag

Toppliðin unnu bæði í Bundeslígunni
Bayern München og Borussia Dortmund báru bæði sigurorð í leikjum sínum í 20. umferð þýsku efstu deildarinnar í fótbolta karla í dag.

Glódís Perla kom Bayern á bragðið
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, skoraði fyrra mark liðs síns, Bayern München þegar liðið lagði Eintracht Frankfurt að velli með tveimur mörkum gegn einu í þýsku efstu deildinni í dag.

Hammarby með Hólmbert efstan á innkaupalista
Sænska knattspyrnufélagið Hammarby hefur í hyggju að fá til sín framherjann Hólmbert Aron Friðjónsson sem er samningsbundinn þýska 2. deildarfélaginu Holstein Kiel.

Gæti misst af leik um helgina af því hann er að reyna að bjarga lífi
Knattspyrnumaðurinn Willi Orban verður væntanlega ekki með Leipzig í þýsku deildinni um helgina en þær gerast líklega ekki betri afsakanirnar.

Matthäus urðar yfir Neuer og segir að hann eigi ekki skilið að vera fyrirliði Bayern
Lothar Matthäus er langt frá því að vera ánægður með Manuel Neuer og segir að markvörðurinn eigi ekki skilið að vera fyrirliði Bayern München lengur.

Frábær byrjun Bayern færði þeim toppsætið á nýjan leik
Bayern Munchen náði toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar á nýjan leik í dag með góðum 4-2 útisigri á Wolfsburg. Frábær byrjun Bayern lagði grunninn að sigrinum.

Miðjuhringurinn með „æxli“ er Haller skoraði sitt fyrsta mark eftir krabbameinsmeðferðina
Framherjinn Sebastien Haller skoraði þriðja mark Dortmund í 5-1 sigri liðsins gegn Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Þetta var hans fyrsta mark fyrir liðið eftir að leikmaðurinn snéri aftur eftir krabbameinsmeðferð.

Union Berlin komið á topp þýsku deildarinnar
Union Berlin er komið í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en liðið vann sigur á Mainz á heimavelli sínum í dag. Þá vann Dortmund stórsigur á Freiburg.

Mark frá Sveindísi þegar Wolfsburg vann
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði eitt marka Wolfsburg í 4-0 sigri liðsins á Freiburg í dag. Wolfsburg heldur enn góðri forystu á toppi deildarinnar.

Sabitzer á láni til United
Austurríski knattspyrnumaðurinn Marcel Sabitzer er genginn til liðs við Manchester United á láni frá Þýskalandsmeisturum Bayern München.

Úti í kuldanum hjá City og á leið til Bayern
Portúgalski landsliðsmaðurinn Joao Cancelo er á leið til Bayern München á láni frá Manchester City.

Enn eitt jafntefli Bæjara
Þriðja leikinn í röð gerðu Þýskalandsmeistarar Bayern München 1-1 jafntefli. Að þessu sinni gegn Eintracht Frankfurt á heimavelli.

Kolbeinn frá Dortmund til Freys
Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson er orðinn fjórði Íslendingurinn í herbúðum danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby en félagið fékk hann frá þýska stórliðinu Dortmund.

Liverpool leiðir kapphlaupið um Bellingham
Þrátt fyrir áhuga frá stórliðum á borð við Manchester City og Real Madrid leiðir Liverpool kapphlaupið um að kaupa enska miðjumanninn Jude Bellingham frá Borussia Dortmund.

Þýsku meistararnir misstigu sig annan leikinn í röð
Þýskalandsmeistarar Bayern München björguðu stigi er liðið tók á móti Köln í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, lokatölur 1-1. Þetta er annar deildarleikurinn í röð sem Bayern tapar stigum og því óhætt að segja að liðið fari hægt af stað eftir langt jóla og HM-frí.

Kvennalið Bayern auglýsir afrek karlanna á búningunum og Valur er í sömu stöðu
Stjörnur á búningum kvennaliða eru til umræðu í Noregi eftir að eitt stærsta félag Noregs, Rosenborg, ákvað að breyta búningum sínum.

Karólína Lea og Glódís Perla skiptust á treyjum við mikla Íslandsvini
Íslensku landsliðskonurnar í Bayern München hafa eytt síðustu dögum í Mexíkó þar sem þær tóku þátt í Amazon bikarnum.

Haller klár í að snúa aftur til keppni eftir krabbameinsmeðferðina
Sebastien Haller, framherja þýska úrvalsdeildarfélagsins Borussia Dortmund, gæti snúið aftur til keppni á nýjan leik á morgun eftir að hafa gengið í gegnum krabbameinsmeðferð.

Ungstirni Dortmund sagt vera fjórum árum eldra en talið var
Nafn þýska ungstirnisins Youssoufas Moukoko hefur blandast inn í aldurssvindlið sem skekur kamerúnskan fótbolta. Moukoko er sagður vera fjórum árum eldri en hann á að vera.

Karólína Lea um Glódísi: Liðfélagarnir í Bayern eru í áfalli hvað hún er góð
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir talar vel um liðsfélaga sinn Glódísi Perlu Viggósdóttur en þær eru saman í bæði Bayern München og íslenska A-landsliðinu.

Haller snéri aftur á völlinn eftir krabbameinsmeðferð
Knattspyrnumaðurinn Sebastian Haller snéri aftur á völlinn í dag í vináttuleik fyrir þýska liðið Borussia Dortmund. Haller hafði verið frá keppni frá því seinasta sumar þegar hann greindist með illkynja æxli í eista.

Hraunaði yfir dómara og var rekinn út af á eigin góðgerðamóti
Þjóðverjinn Lukas Podolski, fyrrum framherji Arsenal, virðist hafa verið illa fyrir kallaður þegar hann var á meðal leikmanna á góðgerðamóti sem hann sjálfur stóð að.

„Ég ætla ekkert að gefast upp“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, ein af okkar efnilegustu knattspyrnukonum, er loks byrjuð að spila á ný eftir löng og erfið meiðsli. Hún spilar með þýska stórveldinu Bayern München og bíður spennt eftir að fá að sanna sig.

Real Madrid hefur auga á ungstirni Bayern München
Spænska stórveldið Real Madrid er sagt fylgjast náið með samningsstöðu hins 22 ára bakvarðar Alphonso Davies hjá Bayern München.

„Sagði að ég gæti orðið allt í lagi miðjumaður en frábær miðvörður“
Glódís Perla Viggósdóttir er fastamaður hjá þýska stórveldinu Bayern München sem og íslenska landsliðinu. Hún sem lék lengi vel sem miðjumaður var færð niður í miðvörð þegar hún var í U-17 ára landsliðinu. Ákvörðun sem hún sér ekki eftir í dag.