

Stjarnan tapaði sínum fimmta leik í röð gegn Val í Origo-höllinni. Valur vann átta marka sigur 30-22. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var afar svekktur eftir leik.
Strákarnir í Seinni bylgjunni fóru yfir stöðuna fyrir 17. umferð Olís-deildar karla í handbolta og ræddu meðal annars um það tak sem að Patrekur Jóhannesson virðist hafa á Val undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar.
Handboltamarkvörðurinn Brynjar Darri Baldursson er hættur í handbolta og það er ekki af góðu. Hann var skotinn niður í síðasta leik sínum með Stjörnunni og tók þá strax ákvörðun, vinnunnar og fjölskyldunnar vegna, að hætta að verða fyrir skotum andstæðinganna.
Stjörnumenn eru í basli í karlahandboltanum og tap á móti Selfossi á heimavelli í síðasta leik er enn eitt dæmið um slíkt. Seinni bylgjan ræddi stöðuna á Stjörnumönnum.
Breiðablik vann 3-2 sigur á Stjörnunni í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Tveir aðrir leikir áttu að fara fram en þeim var frestað vegna veðurs.
Selfoss stóð uppi sem sigurvegari í hörkuspennandi leik í 16. umferð Olís deildar karla gegn Stjörnunni fyrr í kvöld. Leikurinn var kaflaskiptur þar sem Stjarnan leiddi með tveimur mörkum í hálfleik en eftir harða baráttu sigraði Selfoss með einu marki. Lokatölur 26-27.
Stjarnan vann 3-1 sigur á Fjölni í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld. Um var að ræða síðasta leik kvöldsins.
ÍBV er komið í undanúrslit Coca Cola bikarkeppninnar í handbolta eftir dramatískan sigur á Stjörnunni í Vestmannaeyjum í kvöld.
Óttast er að Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, hafi meiðst illa á hné í leik gegn Þór í Lengjubikarnum. Stjörnumenn eru afar ósáttir við að hafa þurft að spila í Boganum á Akureyri og kalla knatthúsið slysagildru.
Stjarnan vann öruggan tíu marka sigur gegn FH sem leikur í Grill66 deild kvenna er liðin mætturs í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarsins í kvöld, 28-18.
Stjörnustúlkan Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir var við æfingar hjá Danmerkurmeisturum HB Köge í síðustu viku. Lék hún meðal annars tvo æfingaleiki með liðinu sem stefnir á að verja titil sinn.
KR heimsótti Mathús Garðabæjarhöllina í kvöld og mætti þar heimamönnum í Stjörnunni. Heimamenn fóru með ellefu stiga sigur og unnu þar með sinn þriðja sigur í röð. Stjarnan fór upp í fimmta sæti deildarinnar en KR er áfram í tíunda sæti en á leik og leiki til góða á liðin fyrir ofan sig.
„Fyrri hálfleikurinn var skelfilegur, við komum ótrúlega flatir og orkulitlir út í leikinn. Þeir fengu að gera það sem þeir vildu á meðan við virkuðum mjög vanstilltir,“ sagði Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, eftir tap gegn Stjörnunni í Subway-deild karla í kvöld.
„Ég er ánægður að sigra, mér fannst við góðir í fyrri hálfleik en fórum svolítið að verjast í seinni hálfleik, vorum passívir og klaufar oft á tíðum. En það er alltaf gott að vinna KR,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar eftir ellefu stiga sigur á KR í kvöld.
Stjarnan tekur á móti KR í stórleik kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta og það er óhætt að segja að heimamenn séu búnir að bíða lengi eftir sigri á Vesturbæingum.
Tímavörðunum í TM-höllinni í Garðabænum varð á í messunni þegar Stjarnan tók á móti KA í sextán liða úrslitum Coca Cola bikars karla í handbolta í gær.
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum svekktur yfir að hans lið sé fallið úr leik í bikarkeppninni í handbolta.
Stjarnan er úr leik í Coca Cola bikarnum eftir tap í Garðabænum í kvöld.
Bjarni Fritzson skemmti sér vel við að horfa á hornamennina frábæru Óðin Þór Ríkharðsson og Dag Gautason leika listir sínar í viðureign KA og Stjörnunnar í Olís-deild karla á sunnudaginn.
„Þetta er sterkur sigur hjá okkur, mikilvægur og ég er því mjög ánægður,“ sagði Jónatan Magnússon þjálfari KA eftir 25-24 sigur á Stjörnunni í KA heimilinu í dag.
KA/Þór fór með sigur af hólmi gegn Stjörnunni í Olís-deild kvenna í dag er liðin mættust en lokatölur leiksins voru 25-27.
KR og Stjarnan unnu stórsigra í Lengjubikar karla og kvenna í fótbolta í kvöld.
Það var hörkuleikur í Origo-höllinni í kvöld þar sem mættust stálin stinn, Valur og Stjarnan. Leikurinn var jafn framan af en eftir sterkan 3. leikhluta heimamanna þar var allt útlit fyrir Valssigur. Stjörnumenn voru þó ekki af baki dottnir, skelltu í lás í fjórða leikhluta og unnu góðan sigur, 74-78.
Stjarnan vann góðan þriggja marka sigur er liðið tók á móti HK í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld. Lokatölur urðu 27-24, en Stjarnan er nú með fimm stiga forskot á HK í sjötta sæti deildarinnar.
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir tapið fyrir Haukum í kvöld. Leikurinn var í járnum allan tímann en Haukar tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin.
Haukar unnu Stjörnuna, 29-33, í Olís-deild karla í kvöld. Leikurinn var jafn lengst af en Haukar sigu fram úr undir lokin og skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins.
Skondið atvik átti sér stað í leik Stjörnunnar og Þórs frá Akureyri sem fram fór í Garðabænum síðastliðinn fimmtudag þegar áhorfandi varð þess valdandi að þjálfari Stjörnunnar fékk tæknivillu.
Stjarnan hefur fengið varnarmanninn Þorsteinn Aron Antonsson á láni frá Fulham til eins árs.
Stjarnan vann öruggan 28 stiga sigur er liðið tók á móti botnliði Þórs frá Akureyri í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 112-84.
Hilmar Smári Henningsson var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins þegar Stjarnan lagði Þór frá Akureyri, næsta auðveldlega, 112-84 í 15. umferð Subway deildar karla í körfuknattleik. Stjörnumenn voru í raun og veru búnir að tryggja sigur sinn í hálfleik en góð vörn skóp sigurinn að mati Hilmars.