Flóttafólk á Íslandi
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 24 ›
Taka í notkun húsnæði fyrir allt að hundrað karlmenn á flótta Vonir standa til að í þessari viku verði húsnæði tekið í notkun sem gæti hýst allt að hundrað karlmenn sem koma til landsins einir á ferð í leit að vernd. Þetta segir aðgerðastjóri yfir móttöku flóttafólks. Mikið kapp sé lagt á að leysa fjöldahjálparstöð af hólmi og til skoðunar er að taka fleiri hús á leigu. Hann segir að allt sé hægt „hið ómögulega taki bara aðeins lengri tíma.“ Innlent 24.10.2022 14:39
Frumvarpið taki einfaldlega ekki á áskorunum Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra ekki taka á þeim áskorunum sem uppi eru. Frumvarpið styrki ekki nauðsynlega innviði eða bráðan vanda í málefnum þeirra sem óska alþjóðlegrar verndar hér á landi. Innlent 22.10.2022 10:18
Áskoranir í ljósi átaka í Evrópu og aukins fjölda flóttafólks á Íslandi Samkvæmt upplýsingum frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna eru í dag yfir 100 milljónir einstaklinga á öllum aldri á flótta í heiminum í dag. Skoðun 21.10.2022 15:00
Réttindi umsækjenda falli niður þrjátíu dögum eftir synjun Útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra hefur verið lagt fram á Alþingi. Þar er meðal annars lagt til að réttindi þeirra sem hafa fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi falli niður þrjátíu dögum frá endanlegri ákvörðun. Innlent 21.10.2022 14:34
Vísbendingar um að glæpagengi misnoti hælisleitendakerfið Fjármálaráðherra segir vísbendingar um að glæpagengi misnoti hælisleitendakerfið og vegabréf frá Venesuela gangi kaupum og sölum sem komi fólki í skuld við þau. Dómsmálaráðherra væri að vinna að því að ná sátt um breytingar á lögum um útlendinga þannig að það gagnist þeim sem þurfi á kerfinu að halda. Innlent 20.10.2022 12:20
Útlendingafrumvarp Jóns situr fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum situr fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins en báðir hinir þingflokkar stjórnarflokkanna hafa afgreitt málið frá sér til þinglegrar meðferðar. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir hnífinn ekki fara á milli þingmanna flokksins og dómsmálaráðherra en gera þurfi breytingar á frumvarpinu. Innlent 19.10.2022 11:46
Ekki hræðsluáróður heldur staðreyndir segir dómsmálaráðherra Dómsmálaráðherra segir ljóst að of margir innflytjendur komi hingað til lands. Hann segist jafnframt ekki vera að beita hræðsluáróðri til þess að koma í gegn breytingum á löggjöf um flóttafólk, líkt og haldið hafi verið fram. Innlent 16.10.2022 23:01
Orðræða dómsmálaráðherra ali markvisst á ótta við flóttamenn Sérfræðingur í málefnum flóttamanna segir hugmyndir dómsmálaráðherra um takmörkuð búsetuúrræði skjóta skökku við og efast um að þörf sé á slíku. Þá geti móttökubúðir ýtt undir jaðarsetningu. Markvisst sé verið að ala á ótta við flóttamenn með orðræðu valdamanna sem erfitt geti reynst að snúa við. Innlent 15.10.2022 13:00
Dómsmálaráðherra leggi til harðari stefnu en nágrannaþjóðir Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra hefur lýst yfir vilja sínum til þess að takmarka ferðir flóttafólks sem hefur hlotið synjun á dvalarleyfi sínu. Hann segir nauðsynlegt að nýtt búsetuúrræði verði byggt upp til þess að takmarka megi för flóttamanna fyrir brottvísun. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata segir tillögur ráðherra umdeildar, hún óttist að verið sé að kynda undir óþarfa ótta. Innlent 15.10.2022 11:02
Erum við að springa úr gestrisni? - Opið bréf til yfirvalda Ég er með stórt hjarta þegar kemur að því að hjálpa fólki sem á bágt. Fólki sem er á flótta vegna stríðsátaka í heimalandi sínu og fólki sem á erfitt almennt. Ég finn til með erlendu fólki sem býr við bág kjör á Íslandi. Ég finn einnig til með Íslendingum sem eiga erfitt með að ná endum saman vegna lélegra lífskjara. Öllu fólki sem á erfitt með að draga fram lífið á sómasamlegan hátt. Skoðun 15.10.2022 09:02
Vill stíga fast til jarðar og takmarka för flóttamanna fyrir brottvísun Dómsmálaráðherra segir nauðsynlegt að koma á fót nýju búsetuúrræði svo takmarka megi för flóttamanna fyrir brottvísun. Núverandi kerfi uppfylli ekki skilyrði Schengen sáttmálans. Stjórnvöld hafi misst stjórn á stöðunni og stíga þurfi fast til jarðar. Innlent 14.10.2022 21:01
Gerður nýr formaður flóttamannanefndar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur skipað Gerði Gestsdóttur sem formann flóttamannanefndar. Innlent 14.10.2022 14:27
Telur dóm veita tvö hundruð flóttamönnum sem átti að vísa úr landi rétt á efnismeðferð Palestínumaður, sem sótti um alþjóðlega vernd hér á landi en fékk ekki efnismeðferð, bar ekki ábyrgð á miklum töfum á meðferð máls hans. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi í málinu í gær. Lögmaður segir málið fordæmisgefandi í málum allra þeirra sem sótt hafa um hæli hér á landi og ílengdust vegna kórónuveirufaraldursins. Innlent 14.10.2022 11:21
Katrín ósammála því að hér ríki stjórnlaust ástand Forsætisráðherra hafnar því að hér á landi ríki stjórnlaust ástand í útlendingamálum, líkt og dómsmálaráðherra hefur haldið fram. Fjöldi flóttamanna eigi sér eðlilegar skýringar og byggi á ákvörðunum stjórnvalda. Innlent 13.10.2022 13:44
Handhafi staðreynda í útlendingamálum? „Við öll eigum rétt á okkar eigin skoðunum, en ekki okkar eigin staðreyndum“, er lausleg þýðing á kunnu orðatiltæki í bandarískum stjórnmálum. Skoðun 13.10.2022 07:30
Tölum út frá staðreyndum Síðustu vikur hefur mikið verið fjallað um svokallaðan flóttamannavanda í íslensku samfélagi. Ýmsu hefur verið haldið fram, því miður ekki alltaf út frá staðreyndum og því er nauðsynlegt að draga fram nokkrar staðreyndir sem fengnar eru frá alþjóðlegum stofnunum og íslenskum stjórnvöldum. Skoðun 12.10.2022 08:00
Á níunda tug flóttamanna hafa gist í fjöldahjálparstöðinni í Borgartúni Á níunda tug hafa gist í fjöldahjálparstöðinni í Borgartúni frá því að hún var opnuð fyrir viku síðan. Stöðin er tímabundið úrræði á vegum Rauða krossins fyrir flóttafólk sem kemur hingað til lands á meðan langtímaúrræði á vegum ríkis og sveitarfélaga er fundið. Innlent 11.10.2022 06:54
Hópur fólks hvatt listafólk til að spila ekki á Airwaves Hópur fólks sem berst gegn stefnu íslenskra stjórvalda varðandi hælisleitendur hefur hvatt listafólks til að spila ekki á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves. Forsvarsmenn Airwaves segjast ekki skilja hvaða hagsmunum það þjónar að knésetja hátíðina. Innlent 10.10.2022 14:46
Stressuð að byrja í íslenskum skóla Hin fimmtán ára Yeva frá Úkraínu kveðst stressuð fyrir því að byrja í íslenskum skóla. Hún byrjar á mánudaginn og bindur vonir við að skólagangan verði góð. Úkraínumenn á Íslandi blésu í dag til hátíðar í Kolaportinu í Reykjavík í þakkarskyni fyrir góðar móttökur og stuðning Íslendinga. Innlent 8.10.2022 23:00
Staða flóttafólks oft verri þegar það hafi fengið vernd í öðru landi Þingmaður Viðreisnar segir ótækt að ætla að fylgja stefnu Dana í útlendingamálum og senda fólk með formlega vernd í öðrum löndum úr landi í blindni. Staða fólks væri oft verri þegar það væri komið með vernd annars staðar. Innlent 8.10.2022 20:01
Hugmyndir Sigmundar ógeðslegar og beri vott af hægriöfgahyggju Lögmaður segir hugmyndir formanns Miðflokksins um að senda flóttafólk frá Íslandi til Rúanda ógeðslegar og bera keim af hægriöfgahyggju. Nálgast þurfi útlendingamál á jákvæðari nótum. Innlent 8.10.2022 11:43
Sendiráðið við Laufásveg hýsi flóttafólk Stærsta vandamálið þegar kemur að móttöku flóttafólks hér á landi er húsnæðisskortur og segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, að verið sé að kaupa tíma með því að setja upp fyrstu fjöldahjálparstöðina en hún var opnuð í Borgartúni í Reykjavík fyrr í vikunni. Innlent 6.10.2022 06:54
Vill senda flóttafólk til Rúanda Formaður Miðflokksins segist ekki trúa því að nýopnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir flóttafólk verði tímabundið úrræði. Opnunin sé til marks um stjórnleysi í málefnum flóttafólks. Ísland hafi ranglega verið auglýst sem áfangastaður fyrir þá sem skipuleggi fólksflutninga. Innlent 5.10.2022 13:44
Fleiri sveitarfélög þurfa að veita flóttafólki skjól Sveitarfélög þurfa að skjóta skjólshúsi yfir flóttafólk í auknum mæli til þess að ekki þurfi að starfrækja lengi sérstaka fjöldahjálpastöð fyrir það, að sögn fulltrúa Rauða krossins á Íslandi. Unnið er að opnun fyrstu stöðvar þessarar tegundar hér á landi. Innlent 4.10.2022 22:32
Opna fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn í fyrsta sinn á Íslandi Rauði krossinn á Íslandi vinnur nú að því að opna fjöldahjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd en þetta er í fyrsta sinn sem slík fjöldahjálparstöð er opnuð hér á landi. Sviðstjóri alþjóðasviðs hjá Rauða krossinum ítrekar að aðeins sé um tímabundið úrræði að ræða og kallar eftir frekari aðkomu sveitarfélaganna. Innlent 4.10.2022 14:51
Vilja flytja Útlendingastofnun til Reykjanesbæjar Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að starfsemi Útlendingastofnunar verði flutt til Reykjanesbæjar. Vilja þingmennirnir með þessu fjölga sérfræðistörfum og hlutfall háskólamenntaðra á svæðinu og segja að hentugt væri að hafa stofnunina staðsetta í nánd við Keflavíkurflugvöll. Innlent 20.9.2022 08:09
„Hvernig lifum við af, vitandi af henni hér?“ Systkin frá Bangladess, sem misstu móður sína sviplega í sumar, eru harmi slegin vegna yfirvofandi brottvísunar. Þau segja það óyfirstíganlega tilhugsun að geta ekki vitjað leiðis móður þeirra, sem jörðuð er í Reykjavík. Lögmaður systkinanna segir óásættanlegt að vísa þeim úr landi nú. Innlent 17.9.2022 19:26
Framtíð allt að hundrað manns gæti verið undir Mál Palestínumanns gegn ríkinu, sem flutt var í héraðsdómi á fimmtudag, gæti haft áhrif á stöðu upp undir hundrað flóttamanna hér á landi sem beðið hafa í óvissu síðan í kórónuveirufaraldrinum, að sögn lögmanns. Hann telur framgöngu stjórnvalda í málunum harkalega. Innlent 17.9.2022 13:30
Hættustig á landamærum vegna yfirálags Embætti ríkislögreglustjóra hefur hækkað viðbúnaðarstig á landamærunum á hættustig vegna yfirálags til þess að tryggja örugga móttöku á fólki sem sótt hefur um alþjóðlega vernd á Íslandi. Innlent 16.9.2022 10:53
Horfa þurfi á tækifærin og möguleikana sem felist í því að taka á móti erlendu vinnuafli Til skoðunar er að einfalda fólki utan evrópska efnahagssvæðisins að koma hingað að vinna að sögn félagsmálaráðherra. Vonandi sé hægt að stíga mikilvæg skref í þá áttina á næstu misserum en of snemmt sé að segja til um mögulegt frumvarp. Mikilvægt sé að innflytjendur geti aðlagast íslensku samfélagi með farsælum hætti og vinna þurfi gegn því að hér verði tvær þjóðir. Innlent 9.9.2022 15:00