Reykjavík

Hipsumhaps færði Votlendissjóði 400.000 krónur
Hljómsveitin Hipsumhaps hefur afhent Votlendissjóði 400.000 krónu stuðning til endurheimtar votlendis. Hér er um að ræða afrakstur sölu á stafrænum eintökum af síðustu plötu Hipsumhaps sem ber nafnið „Lög síns tíma.”

Berglind Festival selur risíbúðina
Fjölmiðlakonan Berglind Pétursdóttir, oft kölluð Berglind Festival, er að selja íbúðina sína á Njálsgötu. Íbúðin er ótrúlega litrík og þar setja skrautlegar flísar sterkan svip.

Fjórtán prósent grunnskólabarna fjarverandi vegna veikinda í síðustu viku
Töluverður fjöldi grunnskóla- og leikskólanemenda voru fjarverandi vegna veikinda í skólum í Reykjavík í síðustu viku en um 12,4 prósent leikskólabarna voru fjarverandi og 14 prósent grunnskólabarna. Þetta kemur fram í svari skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fréttastofu.

Karlmaður sem skaut á fólk í Grafarholti í haldi lögreglu
Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu eftir að tilkynnt var um skotárás í Grafarholti á fjórða tímanum í nótt. Skotið var á karl og konu sem stödd voru utandyra í hverfinu og voru þau flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum þeirra. Þau eru ekki í lífshættu.

Lögregluaðgerð við Miklubraut
Töluverður viðbúnaður lögreglu var við hús við Miklubraut í Reykjavík gegn Klambratúni á tíunda tímanum í dag. Von er á tilkynningu frá lögreglu vegna málsins.

Sköpum gott veður í skólum borgarinnar
Í Reykjavík á sér stað gróskumikið skólastarf á öllum skólastigum. Að starfinu stendur öflugur hópur kennara, starfsfólks og stjórnenda. Skólar, félagsmiðstöðvar og frístundaheimili borgarinnar eru fullir af framúrskarandi fagfólki sem við þurfum að gefa tækifæri til að blómstra í störfum sínum.

Landsbankinn færði sjötíu starfsmenn í Borgartún eftir myglufund
Uppgötvun á myglu í húsakynnum Landsbankans í Kvosinni, sem varð til þess að rúmlega 70 starfsmenn voru færðir yfir í Borgartún, mun hvorki hafa í för með sér verulegan kostnað fyrir bankann, né koma niður á söluverðinu þegar bankinn flytur höfuðstöðvar sínar í nýtt húsnæði við Austurhöfn.

Marta fer ekki fram gegn Hildi en gefur kost á sér í annað sætið
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi hyggst ekki fara fram gegn Hildi Björnsdóttur í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þess í stað sækist hún eftir öðru sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins.

Óvenjulega gæfur hrafn gefur frá sér einkennileg ástarhljóð
Varpstofn hrafna í Reykjavík hefur stækkað töluvert á síðustu árum. Fuglarnir para sig á þessum árstíma og eru því mjög áberandi í borginni. Við hittum ungan hrafn í leit að ást en hann fann í staðinn góðan vin í fréttamanni okkar.

Áform borgarinnar minni á ævintýri H. C. Andersen
Formaður Fuglaverndar segir áformaða landfyllingu í Skerjafirði eyðileggja einstakt fuglalíf í borgarlandinu. Íbúar safna nú undirskriftum til að stöðva framkvæmdina og eru vongóðir um að stjórnmálamenn séu meðfærilegri nú rétt fyrir kosningar.

Búist við hitafundi fulltrúaráðs Sjálfstæðismanna á morgun
Ákvörðun Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaga í Reykjavík, um að loka kjörskrá tveimur vikum fyrir kjördag í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur reynst umdeild meðal flokksmanna.

Færist fjör í leika í fyrsta prófkjöri Viðreisnar
Þórdís Sigurðardóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar til margra ára, eigandi Manifesto ráðgjafafyrirtækis og stjórnarmaður, íhugar um þessar mundir að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Viðreisnar í borginni.

Frestað!
Byggingarfulltrúi í Reykjavík tók til afgreiðslu á dögunum, 88 mál á fimm klukkustunda fundi. Það fór ekki betur en svo að 63 málanna var frestað. Torsótt er að kynna sér ástæður frestunar.

Lýðræði ungmenna í borginni – breytt einkunnagjöf í íþróttum
Lýðræðisstefna Reykjavíkurborgar hefur nýlega litið dagsins ljós og tók ég þátt í þeirri vinnu. Innleiðing á stefnunni er rétt að hefjast en í henni er lögð áhersla á að meira samráð sé haft við borgarbúa um skipulag og uppbyggingu borgarinnar bæði hvað varðar þjónustu og umhverfi.

Skóli án aðgreiningar án fagfólks
Kennarar eru frábærir! Þeir sinna óeigingjörnu starfi og leggja sig mikið fram á hverjum einasta degi. Ég veit það af því ég vinn með þeim.

Stóð ráðalaus í rauðri viðvörun: „Kannski smá karma“
Atla Czubaiko brá heldur í brún á mánudagsmorgun þegar eldhúsglugginn á þriðju hæð fauk upp í vindhviðu og losnaði úr gluggakarminum. Hann hangir enn utan á blokkinni í Háaleiti í Reykjavík.

Guðmundur í Afstöðu öflugastur að smala
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu og frambjóðandi í þriðja sæti Samfylkingarinnar í borginni, er sagður eiga hlutfallslega flestar nýskráningar í flokkinn og skráða stuðningsmenn fyrir prófkjör flokksins sem fram fer um næstu helgi.

Herrafataverslun Birgis lokað: „Nú er þrekið búið“
Birgir Georgsson, eigandi Herrafataverslunar Birgis, hefur ákveðið að loka versluninni þann 28. febrúar. Hann segir þrekið búið en hann greindist með parkinsonsjúkdóminn fyrir nokkrum árum.

Áföll í barnæsku tengd geðheilsuvanda og heilsubrest á fullorðinsárum
Á dögunum voru kynntar nýjar niðurstöður rannsóknar Áfallasaga kvenna sem sýna að sterk tengsl eru á milli fjölda áfalla í æsku og geðheilsuvanda og skertrar getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs á fullorðinsárum. Rétt er að taka fram að rannsóknin er ein sú stærsta sinnar tegundar á heimsvísu.

Átta bjóða sig fram í forvali Vinstri grænna í Reykjavík
Átta verða í framboði í rafrænu forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem fer fram dagana 2. til 5. mars næstkomandi.

Álftamýri / Bólstaðarhlíð
Á milli íbúagatnanna Bólstaðarhlíðar og Álftamýrar liggur Kringlumýrarbraut. Fimm akreina stofnbraut sem aðgreindar eru fyrir miðju með grindverki. Göturýmið er breitt og til hliðar við götuna er gróskumikill gróður sem afmarkar skýran jaðar aðliggjandi íbúðarhverfa.

Andrés vill 2. sæti á lista VG í borginni
Andrés Skúlason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fyrir komandi borgarstjórnarkosningar þann 14. maí.

Veiran fari fyrst á kreik eftir miðnætti á skemmtistöðunum
Heilbrigðisyfirvöld leggja á ráðin um verulegar tilslakanir á sóttvarnatakmörkunum í samráði við almannavarnir. Þær verða kynntar í lok viku. Það var allt toðfullt á skemmtistöðum miðbæjarins um helgina - eða eins og reglur leyfðu.

Kosningastjóri síðast fer nú sjálf í framboð
Sandra Hlíf Ocares gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og sækist eftir 3. sæti. Sandra Hlíf er fædd árið 1980, lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hlaut lögmannsréttindi.

Björt og falleg risíbúð á Bragagötu
Á Bragagötu í Reykjavík er nú til sölu einstaklega smekkleg íbúð. Þrátt fyrir að vera aðeins 59 fermetrar er hún vel skipulögð og hefur tvö svefnherbergi.

Björgvin vonarstjarna Framsóknar í borginni
Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handbolta ætlar að gefa kost á sér í fyrsta til annað sæti hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni en fram hafði komið að hann lægi undir feldi og íhugaði að bjóða fram krafta sína.

Snælduvitlaust veður en hærra hitastig hafi hjálpað til
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir að verkefnin vegna óveðursins í nótt hafa verið í kringum sextíu. Hann segir veðrið hafa verið nokkuð öðruvísi en fyrirfram var búist við.

Á besta aldri í Reykjavík
Gott samfélag er samfélag þar sem gott er að eldast; þar sem eldri borgarar eru sjálfs sín ráðandi og taka sjálfir ákvarðanir um eigin mál. Öll eigum við að njóta virðingar, öryggis og tækifæra óháð aldri, kyni, uppruna, fötlun, holdarfari, kynhneygð og svo framvegis.

Eldur kviknaði í íbúð í Furugerði
Fjölmennt lið slökkviliðs var sent á vettvang við Furugerði 1 í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt eftir að eldur kviknaði í íbúð. Um er að ræða níu hæða fjölbýlishús.

Fólk geti gert ráð fyrir að mæta ekki í vinnu og skóla í fyrramálið
Almannavarnir funda nú með Veðurstofunni og Vegagerðinni um hvort biðlað verði til skóla að hafa lokað á morgun og vinnustaða að fá starfsfólk sitt seinna til vinnu. Búist er við því að mjög þungfært verði á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið og vilja Almannavarnir að sem fæstir séu á ferð á meðan verið er að ryðja göturnar.