Landspítalinn

Óttast að heilbrigðiskerfið bresti líkt og víða í Austur-Evrópu
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir óttast að sams konar neyðarástand skapist hér og í ríkjum Austur-Evrópu ef nýjustu aðgerðir skili ekki skjótum árangri. Það sé of mikið að hundrað manns greinist smitaðir á hverjum degi, líkt og undanfarnar tvær vikur.

Hvetur fólk til að mæta á Jólabasar til að styrkja gott málefni
Árlegur Jólabasar Barnaspítala Hringsins fer fram á Grand Hótel í dag þar sem handverk og bakkelsi verður til sölu til styrktar Barnaspítalanum. Hringskona hvetur landsmenn til að gera sér ferð á basarinn, sem sé nauðsynleg fjáröflun fyrir Barnaspítalann.

„Einn að kalla: passið ykkur“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir erfitt að hvetja til samstöðu í samfélaginu á sama tíma og ráðamenn tali sóttvarnaaðgerðir niður. Hann kallar eftir því að þeir beri ábyrgð á orðum sínum.

„Við komumst í gegnum þetta ef við fáum þjóðina með okkur”
Landspítalinn gerir ráð fyrir að þrír á dag muni þurfa á innlögn að halda vegna kórónuveirunnar. Verkefnastjóri farsóttanefndar óttast að spítalinn muni ekki ráða við álagið með þessu áframhaldi og biðlar til fólks að sýna ítrustu varkárni.

Greiða ekki fyrir aðgerð heima sem þeir samþykktu að greiða fyrir á Spáni
Sjúkratryggingar munu ekki greiða fyrir aðgerð konu vegna endómetríósu sem hún mun gangast undir hér heima, þrátt fyrir að hafa samþykkt að greiða fyrir aðgerðina erlendis. Konan, sem er á fertugsaldri, hefur upplifað mikinn sársauka frá því að hún byrjaði á blæðingum en var ekki greind fyrr en legið var fjarlægt 20 árum seinna.

Spítalinn geti ekki starfað eðlilega nema með fleiri hjúkrunarrýmum
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans, segir starfsemi spítalans að miklu leyti standa og falla með fjölda hjúkrunarrýma í landinu. Á meðan hjúkrunarrýmin séu þetta fá geti spítalinn ekki starfað með eðlilegum hætti. Landspítalinn var færður á hættustig í gær.

Landspítalinn á hættustig
Landspítali var færður á hættustig kl. 16 í dag. Í tilkynningu á Facebooksíðu spítalans segir að þá hafi viðbragðsstjórn komið saman til fundar ásamt farsóttanefnd og tekið ákvarðanir sem varða breytta starfsemi.

„Bráðvantar“ heilbrigðisstarfsfólk í bakvarðasveitina
Vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita síðustu daga og með auknu álagi á heilbrigðiskerfið bráðvantar nú fleira heilbrigðisstarfsfólk á skrá í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.

Þessi bylgja sú stærsta til þessa og neyðarástand að skapast
Núverandi bylgja kórónuveirusmita er sú stærsta til þessa í faraldrinum, að sögn sóttvarnalæknis. Neyðarástand muni skapast á sjúkrahúsum haldi núverandi fjöldi daglegra smita áfram.

Ungbarn liggur á Landspítala með Covid-19
Nú liggja sextán sjúklingar á Landspítala vegna Covid-19, þar af eitt ungbarn. Þar af eru átta sjúklingar óbólusettir.

Að minnsta kosti sjö fluttir á bráðamóttöku í gærkvöldi og nótt vegna slysa
Tveir menn voru vistaðir í fangageymslum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðin í gær sökum ástands. Annar var handtekinn í Hlíðahverfi og þar sem lögregla gat ekki komist að því hvar hann býr var hann fluttur á lögreglustöð.

Skora á stjórnarflokkana að taka á málefnum bráðamóttökunnar
Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands skorar á formenn stjórnarflokkanna að taka á málefnum bráðamóttöku Landspítalans í stjórnarmyndunarviðræðum sínum. Meira fjármagn þurfi til að tryggja nauðsynlega mönnun og rétt flæði innan spítalans til framtíðar.

Farsóttarnefnd svarar Svanhildi vegna svínaflensusamanburðar
Farsóttarnefnd Landspítalans hefur birt útlistun á því hvað sé helst frábrugðið á milli svínaflensufaraldursins árið 2009 og kórónuveirufaraldursins sem geisað hefur hér frá síðasta ári, og viðbragða við þeim.

Heilbrigðiskerfið – stjórnun og skipulag
Innan Læknafélags Íslands hefur lengi ríkt sú skoðun að íslenskt heilbrigðiskerfi þurfi að vera sjálfbært og geta aðlagast breytilegum sviðsmyndum og álagi af ólíkum toga. Þar skiptir meginmáli að íbúar og þarfir þeirra séu ætíð hafðir í forgrunni.

„Læknar eru að drukkna í klínískri vinnu og hafa ekki rými til vísindastarfs“
„Það vantar miklu meiri áherslu og kraft frá yfirstjórn Landspítalans að eitt af meginmarkmið spítalans sé virkilega að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð. Þá þarf náttúrulega reksturinn og annað að snúast um það að styrkja og hlúa að vísindunum. Þetta er grafalvarleg staða.“

Samanburður Svanhildar ósanngjarn og ekki góður
Þórólfur Guðnason segir fólk tjá sig um getu Landspítalans án þess að kynna sér málið nægilega vel. Það er ekki sanngjarnt að sögn sóttvarnalæknis að bera Covid-19 saman við svínaflensuna, eins og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs gerði í viðtali í gær.

Lést vegna Covid-19 en lá inni af öðrum ástæðum
Einstaklingurinn sem lést á Landspítalanum af völdum Covid-19 um helgina var lagður inn á spítalann af öðrum orsökum. Þetta kemur fram á vef Landspítalans.

Ákall til stjórnvalda – bæta þarf ástandið á Bráðamóttöku
Mikil umræða hefur verið um Bráðamóttökuna síðustu daga og vikur. Læknar og hjúkrunarfræðingar hafa ritað greinar, farið í viðtöl í fjölmiðlum og lýst ástandinu. Sjúkraliðar sem starfa á Bráðamóttökunni vilja gjarnan leggja sitt af mörkum í þessari umræðu.

Smitaðist beint eftir hjartaaðgerð og kveðst eiga líf sitt bóluefnum að þakka
Maður sem smitaðist af Covid-19 inni á hjartadeild aðeins örfáum dögum eftir stóra aðgerð segist eiga bóluefnum líf sitt að þakka. Það hefði enginn þurft að smitast þarna inni að sögn mannsins, sem gagnrýnir að heimsóknir hafi verið leyfðar á deildinni.

Sjúklingur smitaður af Covid-19 lést á Landspítala
Sjúklingur sem smitaður var af Covid-19 lést á Landspítalanum í dag.

„Fólk bara gefst upp“
Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni segir ríkja algjörlega ótækt ástand. Álagið hafi vaxið mikið undanfarin ár.

Málefnalegar ástæður fyrir því að 20 starfsmenn Landspítalans hafni bólusetningu
Starfandi forstjóri Landspítalans segir að spítalinn hafi brugðist eins vel við og hann gat þegar hópsmit kom upp á hjartaskurðdeild. Hún kveðst skilja vel að aðstandendur séu sárir vegna málsins.

Afléttingar nú séu óábyrgar: Segir Landspítalann lekt fley í öldugangi
Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir á Landspítalanum, segir fyrirséða fimmtu bylgju kórónuveirufaraldursins hafa fyllt gjörgæslu Landspítalans upp í rjáfur auk þess sem hún hafi áhrif á alla aðra starfsemi spítalans.

Mönnunarkrísa á Landspítala getur leitt til takmarkana fyrir almenning
Svo getur farið að mönnunarkrísa á Landspítala leiði til þess að almenningur þurfi að búa við sóttvarnatakmarkanir á ný, að sögn forstjóra Landspítalans. Staðan er mjög tvísýn á sjúkrahúsinu.

Farsóttanefnd hefur áhyggjur af fjölda smitaðra
Farsóttanefnd Landspítala hefur áhyggjur af fjölda smita í samfélaginu og þeim fjölda innlagna sem óhjákvæmilega leiðir af því. Því hafa breyttar reglur tekið á Landspítalanum, meðal annars hvað varðar heimsóknir.

Ráðning Andra framlengd og Stefán Hrafn snúinn aftur
Tímabundin ráðning Andra Ólafssonar í starf upplýsingafulltrúa hjá Landspítalanum hefur verið framlengd til 1. febrúar. Stefán Hrafn Hagalín, sem er deildarstjóri samskiptadeildar, hefur snúið aftur til starfa.

Einungis einn getur nú vitjað sjúklings á dag
Landspítalinn hefur ákveðið að herða heimsóknarreglur á spítalanum enn frekar vegna þeirrar stöðu sem uppi er í samfélaginu vegna faraldurs kórónuveirunnar.

Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu vísindastarfs á Landspítala
Stjórn Læknaráðs Landspítalans hefur lýst yfir þungum áhyggjum af bágri stöðu vísindastarfs á spítalanum, en hann vermir nú botnsætið meðal norrænu háskólasjúkrahúsanna þegar kemur að tilvitnunum og er kominn langt undir heimsmeðaltal.

Már leiðréttir tölurnar: Innan við tuttugu vilja ekki láta bólusetja sig
Már Kristjánsson, formaður farsóttarnefndar Landspítalans, segir innan við tuttugu starfsmenn Landspítalans ekki vilja láta bólusetja sig. Fram kom í pistli hans á vef Landspítalans í gær að 600 starfsmenn spítalans væru óbólusettir. Réttur fjöldi er hins vegar 480 manns segir hann í dag.

600 óbólusettir starfsmenn Landspítalans grafalvarlegt mál
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar vill vart trúa því að 600 starfsmenn Landspítalans séu óbólusettir og það hljóti að koma til álita hjá stjórnendum spítalans að breyta því hvaða afskipti þeir hafa af viðkvæmum sjúklingum.