Flug „
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 172 ›
„Þetta er mjög þungt og erfitt“ Framkvæmdastjóri Isavia ANS segir þunga og erfiða stemmningu á skrifstofum fyrirtækisins eftir að fimm flugumferðarstjórum var sagt upp störfum í morgun vegna brota í starfi. Málið sé litið mjög alvarlegum augum. Það er til rannsóknar hjá Samgöngustofu. Innlent 30.5.2025 14:40
Reknir fyrir að vinna ekki nógu mikið Isavia ANS hefur sagt upp fimm flugumferðarstjórum og mun veita fimm öðrum áminningu vegna brota á reglum um skráningu á tímum um setu í vinnustöðu. Í stað þess að sitja við vinnu skráðu flugumferðarstjórar tíma á sig sem aðrir höfðu unnið. Innlent 30.5.2025 10:51
Flugmaðurinn hafi verið mjög heppinn Meðlimur í Flugbjörgunarsveitinni Reykjavík segist hafa orðið verulega skelkaður þegar hann sá litla flugvél nálgast Suðurlandsveg óðfluga í gærkvöldi. Hann segir flugmanninn hafa verið í góðu skapi og hund hans jafnvel hressari. Innlent 27.5.2025 21:32
Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Flugvélin sem lent var á Suðurlandsvegi í gærkvöldi er sú sama og samband rofnaði við þegar verið var að fljúga henni frá Grænlandi í gær. Landhelgisgæslan lýsti yfir óvissustigi vegna flugvélarinnar eftir að flugmaður hennar hafði ekki samband við flugumferðarstjórn á tilteknum tíma, svaraði ekki kalli og flugvélin sást ekki á ratsjám. Innlent 27.5.2025 12:19
Telja vanrækslu hafa valdið mannskæðu þyrluslysi í Finnlandi Finnska rannsóknarlögreglan rannsakar nú mannskætt þyrluslys sem varð fyrr í þessum mánuði sem manndráp af gáleysi. Fimm mannst fórust þegar tvær þyrlur rákust saman. Erlent 27.5.2025 11:22
Play tekur flugið til Agadir Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til marokkósku borgarinnar Agadir. Fyrsta flugið verður 19. desember næstkomandi en flogið verður einu sinni í viku á föstudögum þangað til um miðjan apríl 2026. Viðskipti innlent 27.5.2025 10:16
Nauðlending á þjóðveginum Flugmaður eins hreyfils flugvélar framkvæmdi nauðlendingu á þjóðveginum vegna bilunar sem kom upp í vélinni. Hann var ómeiddur þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Innlent 27.5.2025 00:16
Sendir í leyfi fyrir að vinna ekki nógu mikið Fimm flugumferðarstjórar hafa verið sendir í leyfi frá störfum vegna gruns um að þeir hefðu ekki unnið tilskilinn fjölda vinnustunda til að halda réttindum sínum. Samgöngustofa rannsakar mál þeirra. Innlent 26.5.2025 18:18
Óvissustig vegna ferjuflugvélar frá Grænlandi Óvissustigi var lýst yfir af stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á þriðja tímanum þegar ekki náðist samband við flugmann eins hreyfils ferjuflugvélar sem verið var að fljúga frá Narsarsuaq á Grænlandi til Keflavíkur. Engan sakaði. Innlent 26.5.2025 16:36
Eyðilegging í íbúðahverfi í San Diego eftir að lítil flugvél hrapaði Lítil flugvél brotlenti í íbúðahverfi í San Diego í Kaliforníu í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í á öðrum tug húsa. Ekki er ljóst enn hvort einhver hafi farist. Erlent 22.5.2025 14:37
Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Íbúar í bænum Tasiilaq, stærsta bæ Austur-Grænlands, stóðu fyrir fjölmennri kröfugöngu síðastliðinn sunnudag þar sem mótmælt var einangrun og pólitísku afskiptaleysi gagnvart íbúum byggða á austurströnd landsins, þeirra sem næst eru Íslandi. Samtímis var efnt til samstöðugöngu í höfuðstaðnum Nuuk á vesturströndinni. Erlent 21.5.2025 23:44
Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Lenda þurfti farþegaflugvél Play á leiðinni frá Spáni til Íslands á Írlandi í nótt vegna bráðra veikinda farþega. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að farþeginn hafi verið burðardýr með fíkniefni innvortis. Innlent 20.5.2025 15:55
Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Þorvaldur Guðmundsson athafnamaður, oftast kenndur við Síld og fisk, reyndist örlagavaldur í rekstri Loftleiða árið 1959. Grétar Br. Kristjánsson, sonur þáverandi stjórnarformanns Loftleiða, Kristjáns Guðlaugssonar, segir að Þorvaldur hafi sem stjórnarformaður Verzlunarsparisjóðsins, síðar Verslunarbankans, tryggt nauðsynleg lán til að Loftleiðir gætu keypt Douglas DC 6B-flugvélarnar sem urðu grunnurinn að velgengni flugfélagsins. Innlent 18.5.2025 06:48
Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Fimm eru látnir eftir að tvær þyrlur rákust saman og brotlentu skammt frá Eura í suðvesturhluta Finnlands. Þyrlurnar voru báðar á leið til finnska bæjarins Kokemäki til að taka þátt í viðburði flugklúbbs. Erlent 17.5.2025 18:44
Hækkar verulega verðmat á Icelandair og telur „allar líkur“ á viðsnúningi í rekstri Icelandair hefur sjaldan byrjað fyrstu mánuði nýs árs jafn vel og núna í ár, að sögn hlutabréfagreinanda, sem telur allt útlit fyrir að það verði talsverður viðsnúningur í rekstrinum og hefur hækkar verðmat sitt á flugfélaginu um nærri fjórðung. Hann segir áhyggjuefni hversu veikur hlutabréfamarkaðurinn er hér landi – Icelandair hefur fallið í verði um þrjátíu prósent frá áramótum – með lítilli dýpt, lakri verðmyndun og „hálf munaðarlausum“ félögum. Innherji 15.5.2025 15:46
Hefja flug til Edinborgar og Malaga Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbul og Miami. Viðskipti innlent 15.5.2025 12:29
Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Flugleiðir voru á barmi gjaldþrots og höfðu engin tök á að halda þriðjungshlut sínum í Cargolux fyrir fjörutíu árum. Þetta er meginástæða þess að Íslendingar misstu tökin á frakflugfélaginu í Lúxemborg, að mati eins helsta valdamanns Flugleiða á þeim tíma. Innlent 14.5.2025 22:11
Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni Isavia um áfrýjunarleyfi í máli flugumferðarstjóra á hendur félaginu. Landsréttur taldi Isavia ekki hafa mátt segja manninum upp af þeim sökum einum að hann væri orðinn 63 ára. Innlent 14.5.2025 20:22
Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Hann var einn valdamesti maður íslenska fluggeirans um áratugaskeið og sá sem lengst allra sat í stjórn Flugleiða. Hann stóð þó utan sviðsljóssins þrátt fyrir að hafa allan sinn starfsferil jafnframt verið einn af lykilstjórnendum Loftleiða og síðar Flugleiða. Innlent 14.5.2025 13:00
Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Rússnesk stjórnvöld eru ábyrg fyrir því að malasísk farþegaþota var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 með þeim afleiðingum að tæplega þrjú hundruð manns fórust. Alþjóðaflugmálastofnunin ákveður á næstu vikum hvers konar bætur þau þurfa að greiða. Erlent 13.5.2025 07:38
Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Hinn nýi alþjóðaflugvöllur Grænlendinga í Nuuk hefur lokast mun oftar vegna óveðurs en búist var við. Sláandi tölur hafa verið birtar um fjölda aflýstra flugferða frá áramótum. Erlent 12.5.2025 22:11
Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Ríkisstjórn repúblikana í Bandaríkjunum hefur undirbúið lögfræðiálit um að forseti þeirra megi þiggja lúxusþotu sem er metin á milljarða króna að gjöf frá emírnum í Katar þrátt fyrir að stjórnarskrá banni að forseti taki við gjöfum eða mútum frá erlendum ríkjum. Forsetinn sjálfur er áfjáður í að þiggja þotuna. Erlent 12.5.2025 11:51
Ríkið eignast hlut í Norwegian Norska ríkið mun eignast hlut í norska flugfélaginu Norwegian og mun fara með 6,37% hlutafjár í félaginu þegar viðskiptin hafa gengið í gegn. Í heimsfaraldri covid-19 veitti ríkið flugfélaginu neyðarlán en í stað þess að félagið greiði lánið til baka að fullu fær ríkið hlut í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 12.5.2025 07:27
Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Ráðamenn Icelandair hafa tekið þá ákvörðun að hætta breiðþoturekstri og nota eingöngu mjóþotur í millilandafluginu. Þá er framundan að ákveða hvort aðeins verði reknar Airbus-þotur eða hvort Boeing Max-þoturnar verði áfram í flotanum. Innlent 10.5.2025 22:11
Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Flugstjóri og flugmaður tyrkneskrar farþegaþotu sem lenti í alvarlegri ókyrrð yfir Íslandi árið 2023 tókust óafvitandi á um stjórn vélarinnar. Sjö manns um borð slösuðust í ókyrrðinni. Viðbrögð áhafnarinnar var talin orsök atviksins en bæði Veðurstofa Íslands og Isavia fengu tilmæli um umbætur vegna þess. Innlent 9.5.2025 09:37
Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Icelandair flutti 381 þúsund farþega í apríl, 24 prósent fleiri en í apríl 2024. Það sem af er ári hefur félagið flutt yfir 1,2 milljón farþega. Í mánuðinum voru 29 prósent farþega á leið til landsins, 19 prósent frá landinu, 47 prósent voru tengifarþegar og fimm prósent ferðuðust innanlands. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Icelandair. Viðskipti innlent 6.5.2025 18:08
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. Erlent 1.5.2025 09:45
Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Flestir bendir til að Icelandair hefji á ný flug til Hornafjarðar í haust eftir að félagið reyndist vera lægstbjóðandi í útboði Vegagerðarinnar. Þetta gæti breytt forsendum þeirrar ákvörðunar Icelandair að hætta Ísafjarðarflugi á næsta ári. Innlent 30.4.2025 22:20
Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Flugfélagið Play tapaði 26,8 milljónum bandaríkjadala eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en það jafngildir um 3,5 milljörðum króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að um framför sé að ræða frá sama tímabili í fyrra þegar tapið var 27,2 milljónir bandaríkjdalir. Viðskipti innlent 29.4.2025 17:36
Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon Sögulegt rafmagnsleysi á Spáni og Portúgal í gær olli alvarlegum samgöngutruflunum á landsvísu, en rafmagnsleysið varði í margar klukkustundir. Segja má að Icelandair og Play air hafi sloppið vel í gær og í dag varðandi flugáætlun til landanna tveggja. Flug Play til Lissabon í gær raskaðist þó verulega. Innlent 29.4.2025 14:22