Grunaður um að hafa ógnað öðrum með eggvopni Maður var handtekinn í Múlahverfi og er grunaður um að hafa ógnað öðrum með eggvopni, hann var vistaður í fangageymslu lögreglu en látinn laus að lokinni skýrslutöku. Innlent 8. júlí 2022 16:52
Tilraun til ráns með leikfangabyssu á Laugavegi Maður var handtekinn rétt eftir klukkan tvö í dag vegna tilraunar til ráns í lyfjaverslun á Laugavegi. Maðurinn var í annarlegu ástandi og notaði leikfangabyssu til að ógna starfsfólki. Innlent 8. júlí 2022 15:46
Áttavilltur lundi í Suðurhlíðunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um áttavilltan lunda á vappi í Suðurhlíðunum. Hann var hinn gæfasti í höndum lögreglu sem kom honum til dýrahirðis í Húsdýragarðinum. Innlent 8. júlí 2022 13:14
Reynt að brjótast inn í hraðbanka Arion við Vallakór Reynt var að brjótast inn í hraðbanka Arion banka við Vallakór í Kópavogi í nótt. Innlent 8. júlí 2022 12:42
Tveir alvarlega slasaðir í umferðarslysi nálægt Kirkjubæjarklaustri Tveir eru alvarlega slasaðir eftir að bíll sem ók eftir Meðallandsvegi nálægt Kirkjubæjarklaustri hafnaði utan vegar í nótt og valt. Þyrla landhelgisgæslunnar lenti með tvo sjúklinga á Landspítalanum klukkan hálf sex í morgun. Innlent 8. júlí 2022 07:13
Talsvert magn fíkniefna haldlagt í Norrænu Lögreglan á Austurlandi hefur nú til rannsóknar mál þar sem lagt var hald á talsvert magn fíkniefna í bíl í Norrænu. Innlent 7. júlí 2022 16:49
Loka þjóðveginum á kafla í Öræfasveit Verið er að loka þjóðvegi 1 milli Reynivalla og Freysness í Öræfasveit vegna hvassviðris, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 7. júlí 2022 16:18
Vítalía hefur gefið skýrslu hjá lögreglu Vítalía Lazareva er búin að gefa skýrslu hjá lögreglu í tengslum við kæru hennar á hendur Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni. Innlent 7. júlí 2022 13:50
Maður handtekinn vegna líkamsárásar í gærkvöldi og nokkuð um þjófnað Lögreglan handtók mann í gærkvöldi í kjölfar tilkynningar um líkamsárás í heimahúsi í hverfi 104 í Reykjavík. Einnig var lögreglan kölluð til nokkurra verslanna í Breiðholti vegna þjófnaða og áreitis. Þá var lögreglan kölluð til í Hafnarfirði vegna slagsmála á skemmtistað en þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 7. júlí 2022 06:38
Skipstjórinn hafi brugðist hárrétt við Eigandi strandveiðibátsins Gosa KE-102, sem brann í morgun skammt frá Rifi, segir skipstjórann hafa brugðist hárrétt við. Innlent 6. júlí 2022 17:15
Eldur í báti norður af Hellissandi Eldur kom upp í smábáti rétt norður af Hellissandi rétt í þessu. Einn var um borð í bátnum en hann er kominn heill á húfi í björgunarbátinn Björgu. Innlent 6. júlí 2022 10:11
Eldur í hraðbanka á Bíldshöfða í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt en frá klukkan 17:00 til 05:00 í morgun hefur lögreglan sinnt 64 málum. Innlent 6. júlí 2022 06:32
Smitáhrif af skotárásum: „Margir þeirra þrá þessa athygli og þessa frægð“ Margrét Valdimarsdóttir, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, segir að nýlegar rannsóknir í afbrotafræðum bendi til þess að smitáhrif verði þegar umfangsmikil fjölmiðlaumfjöllun skapast um fjöldaárásir. Innlent 5. júlí 2022 13:41
Ósáttur við spilakassa sem átti að hafa haft af honum talsverða fjármuni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur í nótt vegna viðskiptavinar sem hótaði starfsfólki og neitaði að yfirgefa veitingastaðinn. Innlent 5. júlí 2022 06:18
Gekk um vopnaður og tók í hurðarhúninn Íbúi á Flötunum í Garðabæ varð fyrir þeirri óþægilegu reynslu að vopnaður maður tók í útidyrahurðina á heimili hans á laugardagsmorgun. Myndband úr dyrabjöllu hússins sýnir manninn nálgast húsið með hníf í hendi, taka í hurðarhúninn og halda svo sína leið. Innlent 4. júlí 2022 18:35
Hvað má segja og hvað ekki: Lögregla rannsakar skrif um trans fólk Lögmaður hefur áhyggjur af því að verið sé að færa mörk tjáningarfrelsis og hatursorðræðu of langt í átt að vinsælum pólitískt réttum viðhorfum. Skjólstæðingur hennar hefur verið kærður fyrir skrif um trans fólk sem Samtökin ’78 segja full af hatri og grafa undan tilvist þess. Innlent 4. júlí 2022 17:10
Töluvert af líkamsárásum yfir helgina og vopn notuð í einhverjum tilfellum Þrjár stórfelldar líkamsárásir áttu sér stað í höfuðborginni á aðfaranótt sunnudags. Mikið álag var hjá lögreglunni um helgina þar sem hátt í tvö hundruð mál voru skráð. Innlent 4. júlí 2022 09:57
Maður sagður hafa staðið á öskrinu í Grafarvogi Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um tilraun til ráns á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur þar sem maður var sagður hafa ógnað starfsfólki með hníf. Hann var handtekinn stuttu síðar og vistaður í fangageymslu. Innlent 4. júlí 2022 06:26
Skothríð í verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn Skotmaður vopnaður haglabyssu hóf skothríð inni í verslunarmiðstöðinni Field's í Kaupmannahöfn upp úr sex að staðartíma í dag. Lögreglan segir að nokkrir séu látnir eftir árásina og nokkrir særðir. Þá hefur 22 ára danskur karlmaður verið handtekinn vegna málsins. Erlent 3. júlí 2022 16:25
Þrjár stórfelldar líkamsárásir í nótt Alls voru 87 mál skráð í gærkvöldi og nótt hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Átta gistu í fangageymslu í nótt en tilkynnt var um tíu líkamsárásir, þar af þrjár stórfelldar. Innlent 3. júlí 2022 07:37
Sjö handteknir fyrir að aka undir áhrifum og einn reyndi að flýja Lögreglan sinnti nokrum verkefnum á kvöldvaktinni í gær en þar fór mikið fyrir ökumönnum sem voru teknir fyrir akstur undir áhrifum. Þá áttu sér stað sjö umferðaróhöpp og þrír gistu fangaklefa. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Innlent 2. júlí 2022 07:43
Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Barðavogi Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið öðrum manni að bana í Barðagerði í byrjun mánaðar hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 1. júlí 2022 17:53
Undirbúningur brottvísana til Grikklands hafinn Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra staðfestir í samtali við fréttastofu að undirbúningur brottvísana flóttafólks úr landi sé hafinn. Innlent 30. júní 2022 14:42
Óviðræðuhæfur maður vistaður í fangageymslu eftir að hafa reynt að sparka í lögreglumenn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gær vegna slagsmála, eignaspjalla og fleiri brota en þegar flytja átti manninn á lögreglustöð freistaði hann þess að sparka í lögreglumenn. Maðurinn gistir fangageymslur þar til hann verður viðræðuhæfur, segir í dagbók lögreglunnar. Innlent 30. júní 2022 06:37
Nokkur atvik þar sem lögregla kom andlega veikum og ölvuðum til aðstoðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum verkefnum á kvöldvaktinni í gær þar sem hún aðstoðaði fólk með andlega erfiðleika eða fólk sem var ölvað. Frá þessu er greint í dagbók lögreglu en ekki greint frá nánar. Innlent 29. júní 2022 06:50
Segir Vítalíu ekki hafa kært þremenningana Lögmaður Þórðar Más Jóhannessonar, eins þeirra sem Vítalía Lazareva hefur sakað um kynferðisbrot gegn sér, segir að engin kæra liggi fyrir í málinu, þvert á yfirlýsingar Vítalíu. Þeir þrír sem Vítalía sakaði um að hafa brotið gegn henni í sumarbústað í október 2020 hafa nú kært Vítalíu og Arnar Grant fyrir tilraun til fjárkúgunar. Innlent 28. júní 2022 10:28
Flúði af vettvangi eftir umferðaróhapp Ökumaður má eiga von á sekt eftir að hafa flúið af vettvangi eftir umferðaróhapp á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla hafði uppi á ökumanninum og segir að hann megi eiga von á sekt fyrir að hafa yfirgefið vettvang án þess að gera ráðstafanir. Innlent 28. júní 2022 07:39
Lögregla leitar manns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir að ná tali af manni sem birtist á myndum sem fylgja fréttinni og má sjá að ofan. Innlent 27. júní 2022 14:12
Tveir ungir menn handteknir vegna innbrots í lyfjaverslun Tveir ungir menn voru handteknir í nótt, grunaðir um innbrot í lyfjaverslun í Garðabæ. Tilkynning um innbrotið barst um klukkan 3.15 en þá sáust mennirnir hlaupa af vettvangi og fara á brott í bifreið. Innlent 27. júní 2022 06:21
Sérsveit kölluð til eftir að maður mundaði hníf Sérsveitarmenn handtóku mann í Veghúsum í Grafarvogi í gærkvöldi sem dregið hafði fram hníf í samskiptum við fólk í íbúðinni. Maðurinn var einn í íbúðinni þegar lögregla handtók hann. Heimilisfólk hafði yfirgefið íbúðina fyrr um kvöldið. Innlent 26. júní 2022 10:27