Tölfræðin á móti Kúbu: Aron kveikti á seinni bylgjunni Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann 21 marks sigur á Kúbu, 41-19, í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta. Þetta var fagmannleg afgreiðsla hjá strákunum okkar og eftir tvo fyrstu leikina er íslenska liðið búið að stimpla marga menn inn í mótið. Handbolti 18. janúar 2025 21:25
Umfjöllun: Ísland - Kúba 40-19 | Allt klappað og klárt fyrir úrslitaleik Ísland fer með að minnsta kosti tvö stig í milliriðlakeppni HM í handbolta, eftir annan viðbúinn stórsigur á mótinu, 40-19, gegn Kúbu í Zagreb í kvöld. Handbolti 18. janúar 2025 21:08
„Við vorum komnar með blóðbragð í munninn“ Valskonur eru komnar áfram í 8-liða úrslit EHF-bikarsins eftir fimm marka sigur á Malaga Costa Del Sol, 31-26, í N1 höllinni. Var þetta síðari leikur liðanna en fyrri ytra endaði með 25-25 jafntefli. Handbolti 18. janúar 2025 18:46
Slóvenar taka forystuna í riðlinum okkar Fyrri fjórum leikjum dagsins er nú lokið á heimsmeistaramótinu í handbolta en Slóvenar eru í góðri stöðu í G-riðli eftir yfirburðasigur á Grænhöfðaeyjum. Handbolti 18. janúar 2025 18:40
Aron Pálmarsson í hóp í kvöld Leikmannahópur íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Kúbu í kvöld hefur verið tilkynntur og stórtíðindi dagsins eru að Aron Pálmarsson er mættur til leiks og í hóp í kvöld. Handbolti 18. janúar 2025 17:32
Leik lokið: Valur - Malaga Costa Del Sol 31-26 | Einn stærsti sigur íslensks kvennafélagsliðs Valskonur eru komnar í 8-liða úrslit EHF-bikarsins í handbolta eftir 31-26 sigur á Malaga Costa del Sol í síðari leik liðanna sem fram fór í N1 höllinni. Handbolti 18. janúar 2025 15:45
„Væri fínt fyrir mig sem þjálfara“ Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson vonast eftir heilsteyptari frammistöðu frá íslenska landsliðinu í handbolta en það sýndi gegn Grænhöfðaeyjum í fyrrakvöld er það mætir Kúbu í kvöld. Handbolti 18. janúar 2025 15:01
Logið upp á Einar Örn í dönskum miðlum Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, þurfti að leiðrétta fréttir danska miðilsins TV2 þegar honum voru eignuð orð sem hann lét aldrei falla. Handbolti 18. janúar 2025 14:03
Óli Stef ósáttur við Guðmund: „Ekki fengið neina kennslu, þroska og pepp“ Ólafur Stefánsson, einn besti handboltamaður sögunnar, er vægast sagt ósáttur með hvernig Guðmundur Guðmundsson hefur nýtt krafta sonar hans, Einars Þorsteins, hjá danska liðinu Fredericia. Ólafur segir að haustið hafi verið afar erfitt fyrir Einar og hann hafi ekki fengið að efla hæfileika sína og sjálfstraust síðan hann kom til Fredericia. Handbolti 18. janúar 2025 13:31
„Auðvitað vil ég alltaf spila“ „Gott að mótið sé byrjað. Það er alltaf gaman enda búin að vera bið. Flott að byrja þetta bara vel og nú tekur næsta verkefni við,“ segir Haukur Þrastarson silkislakur degi fyrir Kúbverjaleikinn. Handbolti 18. janúar 2025 12:03
Gætið ykkar: Enginn með Wikipedia-síðu og vindlasölumaðurinn Ef Grænhöfðaeyjar voru lítil fyrirstaða fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta ætti mótspyrnan frá Kúbu að vera enn minni. Liðin mætast í G-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld. Handbolti 18. janúar 2025 11:33
HM í dag: Kúbuvindlarnir á leið í Kópavoginn Það dregur verulega til tíðinda í HM í dag er stjórnendur þáttarins hittu kúbverska landsliðsmanninn sem ætlaði að selja þeim vindla frá heimalandinu. Handbolti 18. janúar 2025 11:02
Óttast að fyrirliði Dags sé illa meiddur Domagoj Duvnjak, fyrirliði króatíska handboltalandsliðsins, fór meiddur af velli í leiknum gegn Argentínu á HM í gær. Óttast er að hann sé illa meiddur. Handbolti 18. janúar 2025 10:32
„Verðum að hlaupa betur til baka“ Ýmir Örn Gíslason kveinkaði sér ekki þó svo hann hefði þurft að spila mikið í leiknum gegn Grænhöfðaeyjum. Handbolti 18. janúar 2025 10:03
Risa Evrópuleikur á Hlíðarenda: „Tökum Spánverjana á taugum með fullu húsi“ Valskonur geta með sigri á heimavelli í dag gegn spænska liðinu Malaga tryggt sér sæti í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handbolta. Um seinni leik liðanna er að ræða, þeim fyrri lauk með jafntefli úti á Spáni. Boðið verður upp á alvöru Evrópustemningu á Hlíðarenda. Ótrúlegri sigurgöngu Vals hér heima lauk á dögunum en hvergi betra en að svara því á heimavelli í Evrópukeppni. Handbolti 18. janúar 2025 09:30
„Þetta var allsherjar klúður þarna“ „Þetta var bara lélegt“ segir landsliðsfyrirliðinn Elliði Snær Viðarsson sem var ósáttur við sjálfan sig eftir að hafa fengið reisupassann í leik Íslands við Grænhöfðaeyjar á HM í handbolta í fyrrakvöld. Hann vonast til að spila meira í næsta leik við Kúbu í kvöld. Handbolti 18. janúar 2025 08:03
„Þurfum að taka Dani til fyrirmyndar“ „Það eru blendnar tilfinningar eftir leikinn gegn Grænhöfðaeyjum þó svo við hefðum unnið stórt. Það kom tíu mínútna kafli þar sem var deyfð yfir þessu,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson á hóteli landsliðsins í Zagreb í dag. Handbolti 17. janúar 2025 22:46
Ljótar senur á HM í handbolta í kvöld: Hræktu á Staffan Olsson Staffan Olsson stýrði hollenska landsliðinu til sigurs á Norður-Makedóníu á HM í handbolta í kvöld en það gekk mikið á í leiknum í Varazdin í Króatíu og það má búast við eftirmálum af honum. Handbolti 17. janúar 2025 21:30
Dagur og Alfreð unnu báðir á HM í kvöld en mjög ólíka sigra Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu, og Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, eru að byrja vel með sín lið á heimsmeistaramótinu í handbolta en báðir hafa fagnað tveimur sigrum í fyrstu tveimur leikjum sínum. Handbolti 17. janúar 2025 21:06
Framkonur áfram öflugar í Lambhagahöllinni Fram komst upp að hlið Hauka í Olís deild kvenna í handbolta í kvöld eftir tveggja marka heimsigur á ÍR. Handbolti 17. janúar 2025 21:03
Aron skráður inn á HM og löglegur á morgun Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, er klár í slaginn eftir að hafa misst af fyrsta leik liðsins á móti Grænhöfðaeyjum. Handbolti 17. janúar 2025 20:00
Strákarnir hans Arons töpuðu aftur Egyptaland, Portúgal og Holland fögnuðu sigri í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta í dag en Tékkar og Pólverjar gerðu jafntefli í fjórða leiknum sem er lokið í dag. Handbolti 17. janúar 2025 18:39
„Held að þetta fylgi bara umræðunni á Íslandi“ Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, var nokkuð brattur þegar fréttamenn bar að garði á hóteli landsliðsins í Zagreb í dag. Sigur á Grænhöfðaeyjum er að baki og stefnt að öðrum eins gegn Kúbu á morgun. Handbolti 17. janúar 2025 16:45
Katastrófan vegna klaufa í Kristianstad Slök prentvél í Kristianstad orsakaði það að Sveinn Jóhannsson gat ekki spilað meira en raun ber vitni í leik Íslands og Grænhöfðaeyja í fyrsta leik strákanna okkar á HM í Zagreb. Handbolti 17. janúar 2025 16:00
Starfsmanni ÍSÍ dauðbrá þegar hún mætti til vinnu Starfsmönnum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands dauðbrá í gærmorgun þegar þeir mættu til vinnu í Laugardalinn en þá var búið að veggfóðra anddyrið með límmmiðum: Rapyd styður þjóðarmorð! Innlent 17. janúar 2025 15:21
Gapandi hissa á „katastrófu“ í leik Íslands: „Hvaða grín er þetta?“ Sérfræðingar Besta sætisins voru gapandi hissa á atviki sem að kom upp í leik Strákanna okkar við Grænhöfðaeyjar á HM í handbolta í gær. Númerið og nafn Sveins Jóhanssonar, línumanns Íslands, flagnaði af treyjunni hans og ekki var varatreyja til reiðu sem olli því að Sveinn mátti ekki spila síðasta stundarfjórðung leiksins. Handbolti 17. janúar 2025 13:01
HM í dag: Bitur Króati og blaðamenn í brasi Strákarnir okkar í karlalandsliðinu í handbolta unnu 13 marka sigur á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik á HM í Zagreb. Farið var yfir sviðið í keppnishöllinni eftir leik í HM í dag. Handbolti 17. janúar 2025 11:02
Gaf tvær stoðsendingar í fyrri hálfleik þrátt fyrir að koma ekkert inn á Tölfræði á stórmótum í handbolta er ekki alltaf sú áreiðanlegasta. Það sannaðist enn og aftur í gær. Handbolti 17. janúar 2025 10:31
„Óheppni ef þú gerir þetta einu sinni en síendurtekið er þetta bara lélegt“ Elliði Snær Viðarsson spilaði aðeins í rúmar tíu mínútur þegar Ísland sigraði Grænhöfðaeyjar, 34-21, í fyrsta leik sínum á HM í handbolta þar sem hann fékk rautt spjald. Handbolti 17. janúar 2025 10:03
Segir áhorfendatölur á HM ýktar: „Leið eins og það væru svona fimm hundruð“ Afar tómlegt var um að lítast í stúkunni í Unity Arena í Bærum í Noregi þegar Svíar unnu Japani, 39-21, í fyrsta leik sínum á HM í handbolta. Handbolti 17. janúar 2025 09:01
Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Handbolti