

Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Valsmaðurinn Ásgeir Snær Vignisson hefur gengið frá tveggja ára samning við ÍBV og mun ganga til liðs við bikarmeistarana eftir þetta tímabil.
Áhorfendum er óhætt að mæta áfram á íþróttaleiki á Íslandi þrátt fyrir kórónuveiruna en þetta er helsta niðurstaðan á samráðsfundi í höfuðstöðvum íslenskra íþrótta í gær.
Íslendingaliðið, Ribe-Esbjerg, tapaði nokkuð óvænt fyrir Århus í danska handboltanum í dag en Árósar-liðið vann fjögurra marka sigur, 27-23. Gestirnir frá Árósum voru 14-11 yfir í hálfleik.
Ísland mætir Sviss í umspilsleikjum um laust sæti á HM 2021 í handbolta sem fer fram í Egyptalandi, 15. til 31. janúar á næsta ári.
Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðsins, valdi í dag 18 manna leikmannahóp en fram undan eru leikir í undankeppni EM 2020.
Varnartröll Stjörnunnar, Bjarki Már Gunnarsson, var frábær í vörn Stjörnunnar í nýliðinni bikarhelgi. Það gladdi marga að sjá hann loksins aftur á vellinum.
Það er eðlilega uggur innan íþróttahreyfingarinnar vegna kórónuveirunnar enda gæti ástandið haft stór áhrif á íþróttaviðburði hér á landi.
Tveir íslenskir handboltamenn komu við sögu í leikjum kvöldsins í þýsku Bundesligunni.
Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona spænskir bikarmeistarar enn eitt árið.
Aron Rafn Eðvarðsson mætti gömlu félögum sínum í Hamburg í þýska handboltanum í dag.
Kiel jók í dag forskot sitt á toppi þýsku 1. deildarinnar í handbolta með sigri á Íslendingaliðinu Rhein-Neckar Löwen, 27-21.
Handboltakonan Sandra Erlingsdóttir varð þrefaldur meistari með Valsliðinu á síðasta ári, var fyrirliði landsliðsins í handbolta upp alla yngri flokkana og spilaði tímabil í þýsku Bundesligunni. Um tíma var hún samt nánast of veikburða til að spila handbolta vegna átröskunar.
Þjálfari Stjörnunnar sagði að sínir menn hefðu ekki leyst vörn ÍBV nógu vel í bikarúrslitaleiknum.
Hornamaðurinn knái var í skýjunum eftir að ÍBV varð bikarmeistari eftir sigur á Stjörnunni.
Annar þjálfara ÍBV hrósaði stuðningsmönnum liðsins fyrir þeirra þátt í bikarmeistaratitli Eyjamanna.
Elliði Snær Viðarsson hrósaði markverðinum Petar Jokanovic eftir að ÍBV varð bikarmeistari í fjórða sinn.
ÍBV vann tveggja marka sigur á Stjörnunni í úrslitaleik Coca Cola-bikars karla í handbolta.
Elverum tryggði sér í dag norska deildarmeistaratitilinn í handbolta.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk úr 6 skotum fyrir GOG í 36-33 sigri gegn Kolding í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Maður leiksins, Steinunn Björnsdóttir, leikmaður Fram, var að sjálfsögðu hæstánægð eftir sigurinn á KA/Þór í bikarúrslitaleiknum í handbolta í Laugardalshöll í dag.
Fram vann stórsigur á KA/Þór í úrslitaleiknum í Laugardalshöll, 13 mörk skyldu liðin að í hálfleik. Yfirburðir Fram voru svakalegir
Það er óhætt að segja að ýmislegt hafi breyst frá því að Fram mætti síðast liði frá Akureyri í bikarúrslitaleik kvenna í handbolta. Fram og KA/Þór mætast í Laugardalshöll á morgun.
Leikfélag Vestmannaeyja hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna pillunnar sem Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Stjörnunnar, sendi ÍBV fyrri bikarúrslitaleikinn í handbolta karla í Laugardalshöll á morgun.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segist vera í reglulegu sambandi við yfirvöld hér og landi og ytra varðandi kórónaveirunnar. Mikil smit hafa greinst á Ítalíu og þar leika tveir íslenskir landsliðsmenn, Birkir Bjarnason og Emil Hallfreðsson.
Stjarnan er komið í bikarúrslitaleikinn í Coca Cola bikarnum í handbolta eftir sigur á Aftureldingu í undanúrslitunum í gær. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki lengi að byrja sálfræðistríðið fyrir úrslitaleikinn á morgun.
Stjarnan er komin í úrslit í Coca Cola-bikars karla eftir eins marks sigur á móti Aftureldingu í undanúrslitum, 21-22 og mætir því ÍBV í Laugardalshöll í úrslitum á laugardaginn 7. mars.
ÍBV leikur til úrslita í Coca-cola bikarnum á laugardaginn eftir sigur á Haukum í undanúrslitum í kvöld.
ÍBV vann eins marks sigur á Haukum í undanúrslitaleiknum. Hart barist frá fyrstu mínútu, ÍBV náði mest fjögurra marka forystu en Haukar komu alltaf tilbaka
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti mjög flottan leik í marki GOG þegar liðið vann 34-26 útisigur á Lemvig í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Íslendingaliðið Kristianstad missti óvænt af mikilvægum stigum í sænsku úrvalsdeildinni.
Bjarki Már Elísson hefur átt marga stórleiki í Þýskalandi í vetur en aldrei skorað fleiri mörk en í kvöld, í 31-25 sigri Lemgo á botnliði Nordhorn.