Hákon skoraði í öruggum sigri FCK í Íslendingaslag Hákon Arnar Haraldsson var á skotskótnum er FCK vann öruggan 4-1 sigur gegn sænska liðinu Elfsborg á Atlantic Cup mótinu sem fram fer á Algarve í Portúgal í kvöld. Fótbolti 4. febrúar 2023 21:46
Klopp: „Ég er orðlaus“ Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hálf dofinn eftir 3-0 tap liðsins gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann sagðist vera orðlaus og bað stuðningsmenn liðsins afsökunar. Fótbolti 4. febrúar 2023 20:15
Newcastle mistókst að endurheimta þriðja sætið Newcastle og West Ham skiptu stigunum á milli sín er liðin gerðu 1-1 jafntefli í seinasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 4. febrúar 2023 19:28
Jón Dagur og félagar töpuðu gegn botnliðinu Jón Dagur Þorsteinsson og félagar hans í OH Leuven máttu þola 2-1 tap er liðið heimsótti botnlið belgísku úvarlsdeildarinnar, Seraing, í kvöld. Fótbolti 4. febrúar 2023 19:18
Aron og félagar komust aftur á sigurbraut Aron Einar Gunnarsson og félagar hans í Al Arabi eru komnir aftur á sigurbraut í katörsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir öruggan 3-0 sigur gegn Al Rayyan í dag. Fótbolti 4. febrúar 2023 18:31
Messi tryggði PSG stigin þrjú í endurkomusigri Lionel Messi tryggði Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain 2-1 endurkomusigur er liðið tók á móti Toulouse í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 4. febrúar 2023 17:56
Brighton og Brentford blanda sér í Meistaradeildarbaráttuna Brighton og Brentford stukku upp í sjötta og sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigrum í leikjum dagsins. Brighton vann nauman 1-0 sigur gegn Bournemouth, en Brentford vann öruggan 3-0 sigur gegn botnliði Southampton. Fótbolti 4. febrúar 2023 17:03
Íslandsmeistararnir byrja Lengjubikarinn á sigri Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu öruggan 3-1 sigur er liðið fékk Selfyssinga í heimsókn í riðli 2 í A-deild Lengjubikars karla í fótbolta í dag. Fótbolti 4. febrúar 2023 16:49
Union Berlin komið á topp þýsku deildarinnar Union Berlin er komið í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en liðið vann sigur á Mainz á heimavelli sínum í dag. Þá vann Dortmund stórsigur á Freiburg. Fótbolti 4. febrúar 2023 16:29
Sjáðu mörkin þegar Keflavík kom til baka og vann gegn KA Lengjubikarinn í knattspyrnu er kominn af stað og mættust Keflavík og KA í A-deildinni en leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni. Fótbolti 4. febrúar 2023 15:54
Guðný og Sara spiluðu báðar þegar Milan vann Juventus AC Milan vann góðan sigur á Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Guðný Árnadóttir lék allan leikinn í vörn Milan sem vann 2-1 sigur en Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn af bekknum hjá Juventus. Fótbolti 4. febrúar 2023 15:27
Mark frá Sveindísi þegar Wolfsburg vann Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði eitt marka Wolfsburg í 4-0 sigri liðsins á Freiburg í dag. Wolfsburg heldur enn góðri forystu á toppi deildarinnar. Fótbolti 4. febrúar 2023 15:01
Stoðsending frá Alexöndru þegar Fiorentina vann Alexandra Jóhannsdóttir lagði upp mark í 4-1 sigri Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Með sigrinum lyfti liðið sér upp í þriðja sæti deildarinnar. Fótbolti 4. febrúar 2023 13:46
Júlíus á leið til Fredrikstad Júlíus Magnússon fyrirliði knattspyrnuliðs Víkings er að ganga til liðs við Fredrikstad í norsku B-deildinni. Fótbolti 4. febrúar 2023 13:28
Arnór í viðtali við Aftonbladet: Margir í Rússlandi sem eiga þetta ekki skilið Arnór Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu segir í viðtali við sænska Aftonbladet að framtíð hans hjá rússneska félaginu CSKA sé óljós. Hann segir alla vilja að stríðsátökunum í Úkraínu ljúki. Fótbolti 4. febrúar 2023 11:46
Hyggjast heilla Harvard um helgina: „Vonumst til að fá fleiri íslenska leikmenn“ Íslenska fyrirtækið Soccer & Education stendur að sérstökum sýningarleik um helgina þar sem íslenskt knattspyrnufólk fær tækifæri til að sýna listir sínar fyrir þjálfurum bandarískra háskólaliða. Þjálfarar frá Boston College og Harvard fara fögrum orðum um íslenska leikmenn. Fótbolti 4. febrúar 2023 09:01
Dagný tilnefnd sem knattspyrnukona ársins í London Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham í ensku Ofurdeildinni í fótbolta, hefur verið tilnefnd sem knattspyrnukona ársins í London. Fótbolti 3. febrúar 2023 23:00
Segist ekki ræða um eyðslu Chelsea nema með lögfræðing viðstaddan Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að hann muni aðeins ræða um eyðslu Chelsea í janúarglugganum ef hann er með lögfræðinginn sinn sér við hlið. Fótbolti 3. febrúar 2023 22:31
Nýju mennirnir náðu ekki að knýja fram sigur fyrir Chelsea Eftir rándýr kaup í janúarglugganum tók Chelsea á móti Fulham í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Meðal byrjunarliðsmanna Chelsea í kvöld var Enzo Fernandez, dýrasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, en þrátt fyrir það tókst liðinu ekki að knýja fram sigur og niðurstaðan varð markalaust jafntefli. Fótbolti 3. febrúar 2023 21:57
„Auðvitað er það missir“ Landsliðshópur kvenna í fótbolta var kynntur í dag fyrir komandi æfingamót á Spáni. Þar verður Glódís Perla Viggósdóttir nýr fyrirliði eftir að Sara Björk Gunnarsdóttir lagði skóna á hilluna. Fótbolti 3. febrúar 2023 21:00
Aubameyang tekinn úr Meistaradeildarhóp Chelsea Gabonski framherjinn Pierre-Emerick Aubameyang er meðal þeirra leikmanna sem komst ekki í 25 manna hóp Chelsea sem má taka þátt í útsláttakeppni Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 3. febrúar 2023 18:45
Ronaldo bjargaði stigi með fyrsta deildarmarkinu Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo skoraði loksins sitt fyrsta deildarmark fyrir Al-Nassr í sádí-arabísku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Al-Fateh í dag. Fótbolti 3. febrúar 2023 18:01
Mæta Sviss og Þórður fer með yngra lið til Danmerkur A-landslið kvenna í fótbolta er á leið á æfingamót til Spánar í þessum mánuði en í dag var einnig tilkynnt um væntanleg verkefni liðsins í apríl. Fótbolti 3. febrúar 2023 16:30
Pirraðir út í Pogba og íhuga að rifta samningi hans Forráðamenn Juventus eru orðnir afar pirraðir á Paul Pogba og íhuga að rifta samningi hans við félagið. Fótbolti 3. febrúar 2023 16:00
Skýtur á Fernández: „Grátum ekki leikmann sem vildi ekki vera hjá okkur“ Lítil hamingja er hjá Benfica með hegðun Enzos Fernández, allavega ef marka má orð forseta félagsins. Fótbolti 3. febrúar 2023 14:31
Gríðarlegur missir af Söru: „Hafði ákveðinn skilning á því sem hún sagði við mig“ Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari tjáði sig í dag um þá ákvörðun Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, leikjahæstu landsliðskonu Íslands frá upphafi, að hætta að spila fyrir íslenska landsliðið. Hann sagðist sýna ákvörðuninni skilning. Fótbolti 3. febrúar 2023 13:48
Svona var hópurinn fyrir Pinatar-mótið tilkynntur Vísir var með beina útsendingu og textalýsingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem leikmannahópur íslenska kvennalandsliðsins fyrir Pinatar-mótið var kynntur. Fótbolti 3. febrúar 2023 13:30
Glódís Perla tekur við fyrirliðabandinu Glódís Perla Viggósdóttir verður nýr fyrirliði íslensla kvennalandsliðsins í fótbolta. Landsliðsþjálfarinn tilkynnti þetta á blaðamannafundi í dag. Fótbolti 3. febrúar 2023 13:28
Karólína Lea snýr aftur í landsliðið og Ólöf Sigríður valin í fyrsta sinn Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt hópinn sinn fyrir Pinatar æfingamótið sem fer fram á Spáni seinna í þessum mánuði. Fótbolti 3. febrúar 2023 13:11
Bale fer vel af stað á PGA Frumraun Gareths Bale á PGA-mótaröðinni fór vel af stað. Hann keppir á Pebble Beach Pro-Am um helgina. Golf 3. febrúar 2023 12:30