Milner næstelstur og næstyngstur til að skora í úrvalsdeildinni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 31. ágúst 2025 22:45 Um 23 ár eru á milli fyrsta og síðasta deildarmarks Milners. Mike Hewitt/Getty Images James Milner varð í dag næstelsti leikmaðurinn í sögunni til að skora í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er hann skoraði úr vítaspyrnu gegn Manchester City.
Milner skoraði af miklu öryggi af punktinum í 2-1 sigri Brighton gegn Manchester City og varð þar með sá næstelsti í sögunni til að skora í þessari sterkustu deild heims. Milner var 39 ára og 239 daga gamall þegar hann skoraði þetta fyrra mark Brighton gegn City, nánast sléttu ári yngri en elsti markaskorainn, Teddy Sheringham, sem var 40 ára og 238 daga gamall þegar hann skoraði sitt síðasta mark í ensku úrvalsdeildinni. Milner er ekki aðeins næstelsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, því hann er einnig sá næstyngsti. Hann skoraði nefnilega fyrir Leeds United þegar hann var aðeins 16 ára og 356 daga gamall. Það eru því um 23 ár frá því að hann skoraði fyrst í ensku úrvalsdeildinni og spurning hvort hann geti bætt met Sheringhams. Það er þó óhætt að segja að mörkin hafi ekki verið að koma á færibandi frá Milner undanfarið því þetta var fyrsta mark hans í deildinni frá því árið 2019. Þá skoraði hann fyrir Liverpool gegn Leicester, fyrir 2075 dögum.
Enski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti