Íslenski boltinn

Bríet Fjóla: „Sjálfs­traustið er komið til baka“

Gunnar Berg Stefánsson skrifar
Bríet Fjóla Bjarnadóttir er ein efnilegasta knattspyrnukona landsins.
Bríet Fjóla Bjarnadóttir er ein efnilegasta knattspyrnukona landsins. KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ ÞRÓTTUR

Bríet Fjóla Bjarnadóttir, leikmaður Þróttar, var ánægð eftir 3-2 sigur liðsins gegn Grindavík/Njarðvík í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hún segir mikla baráttu hafa einkennt leikinn en er jafnframt ánægð með eigin frammistöðu að undanförnu.

„Mér fannst við mjög góðar. Það var mikil barátta og þetta var mjög jafn leikur langt fram í leik,“ sagði Bríet Fjóla eftir leik.

Bríet hefur verið sjóðandi heit fyrir framan markið að undanförnu og segir aukið sjálfstraust eiga stóran þátt í því.

„Mér finnst bara sjálfstraustið mitt hafa komið til baka. Ég var ekki alveg að finna mig fyrr á tímabilinu en mér finnst ég passa mjög vel inn í hópinn hérna hjá Þrótti og mér líður mjög vel.“

Bríet staðfesti jafnframt að hún ætlaði að halda áfram hjá Þrótti á næstu leiktíð.

„Já, ég ætla að vera áfram hjá Þrótti. Mér líður mjög vel hérna og ég ætla bara að halda áfram að þróast hér. Svo veit ég ekki hvað gerist.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×