Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Lokaumferð Bestu deildar kvenna fór fram í gær og þar sem lítið var verið að spila upp á þar sem Breiðablik tryggði Íslandsmeistaratitilinn í síðustu umferð. Eftir harða baráttu við FH í allt sumar hafði Breiðablik betur á lokasprettinum. Íslenski boltinn 24.10.2026 12:00
Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir, leikmaður Þróttar, var ánægð eftir 3-2 sigur liðsins gegn Grindavík/Njarðvík í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hún segir mikla baráttu hafa einkennt leikinn en er jafnframt ánægð með eigin frammistöðu að undanförnu. Íslenski boltinn 23.10.2026 20:38
Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Bikarmeistarar Þróttar enduðu tímabilið á 3-2 sigri á Grindavík/Njarðvík en liðin sem mættust í bikarúrslitaleiknum mættust einnig í lokaumferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Það var markalaust í hálfleik en mörkunum rigndi inn í þeim seinni. Þróttur endar í fjórða sæti, stigi á eftir ÍBV. Íslenski boltinn 23.10.2026 17:17
Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Breiðablik var 4-1 undir í hálfleik gegn Þrótti og hafði misst FH upp fyrir sig í toppsæti Bestu deildar kvenna í dag. Liðið sneri taflinu við og fann ótrúlegan 5-4 sigur. Íslenski boltinn 4. október 2026 15:50
Enn er penninn á lofti í Laugardal Gleðitíðindum rignir inn hjá Þrótti fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla. Þriðji lykilmaður liðsins, sem orðaður var við brottför, hefur framlengt við félagið. Íslenski boltinn 1. október 2026 16:32
Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Hin 16 ára gamla Bríet Fjóla Bjarnadóttir var stjarna helgarinnar í Bestu deild kvenna en hún skoraði þrennu fyrir bikarmeistara Þróttar í 5-1 sigri á Stjörnunni. Breiðablik náði þriggja stiga forskoti á FH í titilbaráttunni. Öll mörkin má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 28. september 2026 16:16
Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ „Mér líður mjög vel, gaman að geta skorað þrennu loksins á þriðja tímabilinu mínu,“ sagði Bríet Fjóla Bjarnadóttir, kantmaður Þróttar, eftir 5-1 stórsigur á Stjörnunni í Laugardalnum. Bríet Fjóla gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum. Íslenski boltinn 27. september 2026 17:01
Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bikarmeistarar Þróttar völtuðu yfir Stjörnuna í dag í annarri umferð í efri hluta Bestu deildarinnar. Sannfærandi 5-1 sigur niðurstaðan fyrir heimakonum sem kláruðu leikinn í fyrri hálfleik, en staðan 3-0 í hálfleik. Stjarnan getur skammast sín fyrir frammistöðu sína, þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 27. september 2026 15:55
„Þetta er þorpið manns“ „Þetta er bara ég með allar mínar tilfinningar utan á mér,“ segir María Edwardsdóttir, fjármálastjóri Þróttar, um ljósmynd af henni með bikarnum sem karlalið Þróttar vann sér inn á Laugardalsvelli síðustu helgi. Kvennalið Þróttar vann fyrsta titilinn í sögu félagsins viku fyrr á sama velli. Íslenski boltinn 27. september 2026 08:51
Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Knattspyrnumennirnir Sigurður Egill Lárusson og Aron Snær Ingason hafa báðir framlengt samninga sína við Þrótt en þeir voru lykilleikmenn liðsins sem komst um helgina upp í Bestu-deild karla eftir sigur á Fylki í hreinum úrslitaleik á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 23. september 2026 17:18
Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina Þróttarar tryggðu sér sæti í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld með 1-0 sigri gegn Fylki í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar, á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 19. september 2026 19:32
„Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ „Mér líður alveg ógeðslega vel. Ég vinn við að þjálfa fótboltalið og er búinn að eyða þremur árum í að láta þetta gerast, nákvæmlega það sem er að gerast núna. Það eru einhverjir 900 dagar að baki,“ sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir að stýra sínum mönnum upp í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 19. september 2026 19:06
Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið Þróttur Reykjavík mun leika í Bestu deild karla í fótbolta, í fyrsta sinn síðan 2016, eftir 1-0 sigur á Fylki í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á Laugardalsvelli í dag. Íslenski boltinn 19. september 2026 18:00
Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina „Ég held að það sé aðallega bara svona spenningur í hópnum. Það verður gaman að fara á þennan völl og spila fyrir framan fullt af fólki og auðvitað er mikið undir en það er líka bara bjútíið við svona úrslitaleiki. Það er gaman að spila leiki þar sem allt er undir,“ segir Arnór Breki Ásþórsson, fyrirliði Fylkis, fyrir úrslitaleikinn gegn Þrótti í dag. Íslenski boltinn 19. september 2026 12:30
„Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ „Maður ekkert það stressaður. Maður er eiginlega bara spenntur fyrir þessu,“ segir Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttar, um komandi úrslitaleik við Fylki um sæti í Bestu deild karla. Liðin mætast á Laugardalsvelli á morgun. Íslenski boltinn 18. september 2026 18:01
Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Þróttur varð á dögunum bikarmeistari og um er að ræða fyrsta titil í sögu félagsins. Það var því fyrirfram reiknað með að liðið kæmi örlítið þreytt til leiks í Eyjum í dag enda tekur á að vinna titla. Það var raunin í dag þar sem ÍBV vann 4-3 sigur þrátt fyrir að lenda undir. Íslenski boltinn 18. september 2026 16:32
„Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis, þekkir það vel að spila úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar á Laugardalsvelli. Hann gerir það þriðja árið í röð á morgun. Íslenski boltinn 18. september 2026 12:01
Skotin flugu milli Bolla og Hjamma Þeir Bolli Már Bjarnason og Hjálmar Örn Jóhannsson verða sitthvoru megin í stúkunni þegar Fylkir og Þróttur takast á um sæti í Bestu deild karla á Laugardalsvelli á morgun. Þeir tókust létt á í viðtali við Vísi um komandi leik. Íslenski boltinn 18. september 2026 11:02
Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn Þróttur hefur tryggt sig í úrslitaleik um að komast í Bestu deild karla í fótbolta. Liðið mætir annaðhvort Fylki eða HK í úrslitunum. Íslenski boltinn 13. september 2026 18:14
Þróttarar brutu bikarinn Þróttur Reykjavík varð í gær bikarmeistari kvenna í fótbolta í fyrsta sinn og segja má að fögnuður liðsins hafi verið tekinn alla leið. Bikarinn brotnaði. Íslenski boltinn 13. september 2026 13:22
„Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ „Tilfinningin er náttúrulega ólýsanleg,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, eftir að liðið tryggði sér sinn fyrsta bikarmeistaratitil með sigri gegn Grindavík/Njarðvík í úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Sport 12. september 2026 19:42
„Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ „Í dag var aðal tilfinningin stolt og svo þakklæti líka, sem kom mér á óvart. Ég hélt að maður ætti að vera fúll eftir að hafa tapað,“ sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir 2-1 tap liðsins gegn Þrótti Reykjavík í úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta. Fótbolti 12. september 2026 19:37
„Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Unnur Dóra Bergsdóttir reyndist hetja Þróttar er hún tryggði liðinu sinn fyrsta bikarmeistaratitil í sögunni. Fótbolti 12. september 2026 19:32
Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Þróttur Reykjavík er bikarmeistari kvenna í fyrsta skipti í sögunni eftir 2-1 sigur gegn Grindavík/Njarðvík í úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Íslenski boltinn 12. september 2026 17:52
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn