„Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ Sindri Sverrisson skrifar 19. september 2026 19:06 Þróttarar fögnuðu ákaft eftir að sigurinn var í höfn í kvöld. vísir/Anton „Mér líður alveg ógeðslega vel. Ég vinn við að þjálfa fótboltalið og er búinn að eyða þremur árum í að láta þetta gerast, nákvæmlega það sem er að gerast núna. Það eru einhverjir 900 dagar að baki,“ sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir að stýra sínum mönnum upp í Bestu deild karla í fótbolta.
Þróttur Reykjavík og Fylkir mættust á Laugardalsvelli í úrslitum umspils Lengjudeildar. Unnu Þróttarar sanngjarnan 1-0 sigur og munu leika í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. „Ég er ótrúlega stoltur af því hvað liðið var svalt, bæði í þessum leikjum gegn Njarðvík og svo í þessum leik. Sérstaklega í dag, þarf auðvitað að horfa á þetta aftur en fannst ekkert vera á leiðinni frá Fylki. Það er ekki af því Fylkir voru lélegir heldur af því að við höfðum þá trú að þeir gætu ekki sært okkur.“ „Í vikunni líka, þetta er auðvitað ekki venjulegur leikur en samt erum við ekki að fara á límingunum að þetta sé framundan heldur var bara fótboltaleikur framundan. Hendum í fína frammistöðu, verjumst vel og þá munum við vinna.“ „Ég er stoltur af sjálfum mér fyrir að halda línu. Það er búið að tala um mini-krísur bæði í fyrra og í ár, þessi klassíska lína að Þróttur koðni, project nothing og allt þetta dót. Við höfum staðið staðfastir í okkar trú á að við séum ekki svoleiðis klúbbur. Við erum klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins. Er stoltur að við höfum haldið þessari línu frekar en að fara í örvæntingu að selja leikmenn frá okkur eða kaupa einhverja aðra.“ Sigurvin Ólafsson hefur gert frábæra hluti í Laugardalnum og er nú kominn með Þrótt upp í efstu deild.vísir/Anton „Það er svolítið langt síðan ég vann einhvern titil, ég þarf að dusta rykið af fagnaðarlátunum. Ef ég á að vera alveg eðlilegur er þetta partur af markmiði. Markmiðið er að verða Bestu deildarlið sem heldur sér í Bestu deildinni og mætir bestu liðum landsins. Þetta var ógeðslega mikilvægt skref því þetta er ógeðslega erfið deild að komast upp úr en markmiðið stendur ennþá,“ sagði Sigurvin að endingu en lofaði þó að hann myndi skemmta sér vel í kvöld. „Menn skildu allt eftir inn á vellinum“ „Auðvitað er þetta svekkjandi. Varnarlega vorum við fínir. Þeir voru ekki að skapa mikið í opnu spili, fengu tvö færi í seinni hálfleik í gegnum skyndisóknir,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis beint eftir leik. „Vonbrigði að fá á sig mark þar sem við erum í skipulaginu, gleymdum að stíga inn í þríhyrningana. En menn skildu allt eftir inn á vellinum. Við sýndum karakter, hentum mönnum fram og reyndum að jafna leikinn en það gekk ekki.“ „Sóknarlega hefðum við þurft að vera með meiri hreyfingu, ná að draga þá betur úr stöðum, meiri nákvæmni í sendingum til að geta opnað þá.“ „Við vorum pínu stressaðir í byrjun en það rjátlaði af okkur. Auðvitað er þetta stór leikur og þetta fer í reynslubankann.“
Besta deild karla Lengjudeild karla Þróttur Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Íslenski boltinn Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið Íslenski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf KA – Þór Ak. | Sex stiga fallbaráttuslagur nágrannanna Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór Ak. | Sex stiga fallbaráttuslagur nágrannanna Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Læti í göngunum eftir leik Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Sjáðu trylltan fögnuð Víkinga þegar titillinn var í höfn og viðtal við hetjuna Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Sjá meira