Íslenski boltinn

Hall­dór tekinn til starfa með nýja teyminu

Sindri Sverrisson skrifar
Halldór Árnason verður með góða menn með sér á Hlíðarenda. Haraldur Björnsson, Oliver Sigurjónsson og Guðmundur Magnússon eru allir í teymi hans.
Halldór Árnason verður með góða menn með sér á Hlíðarenda. Haraldur Björnsson, Oliver Sigurjónsson og Guðmundur Magnússon eru allir í teymi hans. Samsett/Valur

Knattspyrnudeild Vals kynnti í dag teymið sem Halldór Árnason verður með sem nýr þjálfari karlaliðs félagsins í fótbolta. Hann tók formlega til starfa á Hlíðarenda í dag.

Halldór var ráðinn í lok júní til þess að taka við Val að loknu nýafstöðnu keppnistímabili. Honum er ætlað að reisa Valsliðið við eftir mikið vonbrigðatímabil en liðið endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar eftir 6-0 skell gegn Stjörnunni í lokaumferðinni.

Aðstoðarþjálfari Vals verður Oliver Sigurjónsson sem lék undir stjórn Halldórs hjá Breiðabliki og býr yfir mikilli reynslu sem leikmaður í Bestu deildinni.

Annar aðstoðarmaður Halldórs er Guðmundur Magnússon sem var að leggja takkaskóna á hilluna eftir að hafa síðast skorað mörk fyrir Víking Ólafsvík en áður leikið lengst af með Fram og með fleiri félögum, þar á meðal um skamman tíma með Breiðabliki undir stjórn Halldórs. Guðmundur verður svokallaður þriðji þjálfari (e. transition coach) og þjálfari 2. flokks karla.

Markmannsþjálfarinn Haraldur Björnsson endurnýjar sömuleiðis kynnin við Halldór og sinnir nú því starfi hjá sínu uppeldisfélagi.

Þá verður Baldvin Orri Friðriksson greinandi og Kirian Elvira Acosta styrktarþjálfari. Unnið er að ráðningu á nýjum sjúkraþjálfara þar sem að Einar Óli Þorvarðarson, sem verið hefur dyggur þjónn fyrir sitt félag í áratug, hefur látið af störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×