Fótbolti

Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri

Sindri Sverrisson skrifar
Víðir Sigurðsson var með Alexiu Putellas í efsta sæti á sínum lista yfir bestu fótboltakonur ársins en setti Harry Kane í 4. sæti yfir bestu karlana.
Víðir Sigurðsson var með Alexiu Putellas í efsta sæti á sínum lista yfir bestu fótboltakonur ársins en setti Harry Kane í 4. sæti yfir bestu karlana. Samsett/Vísir/Getty

Nú er búið að birta atkvæði allra þeirra sem tóku þátt í kjörinu um Gullboltann, eða Ballon d'Or, og óhætt að segja að afar mjótt hafi verið á mununum. Einn íslenskur blaðamaður tók þátt og rímuðu atkvæðaseðlar hans ágætlega við lokaniðurstöðuna en hið sama verður ekki sagt um atkvæði belgískrar blaðakonu.

Víðir Sigurðsson, höfundur bókanna Íslensk knattspyrna og íþróttafréttamaður með margra áratuga reynslu, var í hópi þeirra hundrað blaðamanna sem kusu um það hver hlyti Gullbolta karla líkt og síðustu ár. 

Víðir var sömuleiðis í hópi þeirra blaðamanna sem tóku þátt í kjörinu kvennamegin en France Football velur fulltrúa frá hundrað hæst skráðu þjóðunum karlamegin og fimmtíu hæst skráðu þjóðunum kvennamegin.

Í kjörinu hjá konunum valdi Víðir Alexiu Putellas í efsta sæti og Ewu Pajor í annað sæti en þær tvær urðu langefstar í kjörinu og vann Putellas afgerandi sigur.

Tíu efstu konurnar á lista Víðis:

  1. Alexia Putellas
  2. Ewa Pajor
  3. Pernille Harder
  4. Caroline Graham Hansen
  5. Melchie Dumornay
  6. Khadija Shaw
  7. Klara Bühl
  8. Claudia Pina
  9. Alessia Russo
  10. Mariona Caldentey

Það voru þó ekki allir blaðamennirnir sem kusu Putellas í efsta sæti og er einn atkvæðaseðillinn sérstaklega vafasamur. 

Belgíska blaðakonan Christine Schréder valdi nefnilega samlöndu sína, belgísku landsliðskonuna Tessu Wullaert, í efsta sætið. Enginn annar blaðamaður gaf hinni 33 ára gömlu Wullaert atkvæði því enda þótt hún hafi rofið hundrað marka múrinn fyrir belgíska landsliðið á þessu ári, undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, þá fer því fjarri að hún sé sú fótboltakona í heiminum sem skarað hefur fram úr á þessu ári.

Fimmtán stig fást fyrir efsta sæti á atkvæðaseðli og því dugði atkvæðaseðill belgísku blaðakonunnar til þess að Wullaert varð í 19. sæti í kjörinu um Gullboltann.

Rodri, Mbappé og Messi fyrir ofan Kane

Karlamegin var Víðir með sigurvegarann, Harry Kane, aðeins í 4. sæti en Rodri, lykilmaður í heimsmeistaratitli Spánverja í sumar, fékk efsta sætið á atkvæðaseðli Víðis. 

Miðvörðurinn ungi Pau Cubarsí sem einnig átti svo stóran þátt í heimsmeistaratitlinum var sá eini á lista Víðis sem ekki endaði í hópi tíu efstu í heildarkjörinu.

Tíu efstu karlarnir á lista Víðis:

  1. Rodri
  2. Kylian Mbappé
  3. Lionel Messi
  4. Harry Kane
  5. Lamine Yamal
  6. Erling Haaland
  7. Pau Cubarsi
  8. Khvicha Kvaratskhelia
  9. Michael Olise
  10. Ousmane Dembélé



Fleiri fréttir

Sjá meira


×