Sport

Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjórir snillingar úr ábreiðubandinu NiceGuys voru að sjálfsögðu mættir á svæðið.
Fjórir snillingar úr ábreiðubandinu NiceGuys voru að sjálfsögðu mættir á svæðið. Jón Gautur

Umfangsmikil vitundarvakning á vegum Allir með hófst í gær með frumsýningarviðburði í Laugardalshöll. Þar fluttu ávörp Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ. Frumsýnd var sjónvarpsauglýsing auk viðtalsmyndbrota við forsvarsfólk íþróttahreyfingarinnar, þjálfara, iðkendur og foreldra.

Fjöldi barna, foreldra og þjálfara fer á kostum í auglýsingunni sem má sjá að neðan.

Markmið vitundarvakningarinnar er að fjölga tækifærum fyrir börn með fötlun til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi í sínu nærumhverfi. Með vitundarvakningunni vilja Allir með hvetja íþróttafélög og þjálfara til að kynna sér það starf sem er í gangi víða um land og vekja athygli almennings á mikilvægi þess að öll börn fái tækifæri til að vera með. Í dag stundar aðeins eitt af hverjum tíu börnum með fötlun íþróttir.

Rauður dregill í Laugardalshöll

Á frumsýningarviðburðinum var lögð áhersla á mikilvægi þess að öll börn fái að taka þátt í íþróttastarfi á eigin forsendum og í sínu nærumhverfi.

Valdimar Smári Gunnarsson var að sjálfsögðu mættur en íþróttastarf barna með hvers kyns fötlun hefur verið hugleikið honum í lengri tíma.Jón Gautur

„Að sjálfsögðu skipta máli mannvirki, fjármagn og átak eins og þetta. En fyrst og fremst þurfum við, hvert og eitt okkar, að líta í eigin barm. Hvernig er mitt viðhorf? Hverju get ég breytt? Er eitthvað sem ég get lagt af mörkum til að auka tækifæri fyrir aðra? Breytum þessu samfélagi. Höfum það bara sjálfsagt og eðlilegt að allir taki þátt í íþróttum,“ sagði Sólný Ingibjörg Pálsdóttir, móðir iðkanda, í ræðu sinni á viðburðinum.



„Allir með er mjög gott dæmi um það hvernig hægt er að vinna hlutina saman. Að verkefninu koma þrjú ráðuneyti, öll íþróttahreyfingin, sveitarfélögin og íþróttafélögin, allt svo að börn geti, á sínum forsendum og í sínu nærumhverfi, tekið þátt og verið hluti af liðinu,“ sagði Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.

Íþróttaiðkun fylgir almennt mikil vellíðan og sást bros á hverju andliti.Jón Gautur

„Við þurfum að skapa rými fyrir öll börn. Til þess að tækifærin séu raunveruleg þá þarf fleira að koma til en gott boð um að mæta á staðinn. Aðstaðan þarf að vera aðgengileg, þjálfarar þurfa stuðning og fjölskyldur þurfa upplýsingar um það sem stendur til boða. Þar skiptir samstarfið öllu máli,“ sagði Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í ávarpi sínu.

Viðburðurinn var vel sóttur.Jón Gautur

Rannsóknir á hreyfingu íslenskra barna með þroskahömlun hafa sýnt að þau hreyfa sig minna eftir skóla en jafnaldrar þeirra. Sömu rannsóknir sýna einnig að fjarlægð heimili frá æfingaaðstöðu getur verið stór þröskuldur fyrir þátttöku. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að tryggja öllum börnum aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi í sínu nærumhverfi.

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, ávarpaði samkomuna.Jón Gautur

Allir með er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og Íþróttasambands fatlaðra (ÍF), sem sett var á fót árið 2023 með stuðningi þriggja ráðuneyta.

Stuðið var mikið og margir sem stigu á stokk.Jón Gautur
Lagt við hlustir.Jón Gautur
Ráðherrar og fulltrúar ÍSÍ á fremsta bekk og meðlimir Niceguys þar fyrir aftan.Jón Gautur
Tveir stuðboltar sem kunna vel að meta íþróttir. Jón Gautur
íris Elfa Þorkelsdóttir og Ragnhildur Skúladóttir klæddar í blátt.Jón Gautur
Frá anddyri Laugardalshallar í gær.Jón Gautur

Tengdar fréttir

Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki

Mikill uppgangur hefur verið í borðtennis hérlendis undanfarin ár. Um helgina fór fram sögulega fjölmennt Íslandsmót unglinga á Selfossi. Athygli vakti að tvær ungar borðtenniskonur með fötlun unnu titil í flokki ófatlaðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×