Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. september 2026 11:30 Ragnar Þór Ingólfsson, félags-og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Bjarni Félags- og húsnæðisráðherra telur að það skorti traust og virðingu gagnvart kjarasamningum, bæði hjá atvinnulífinu og hinu opinbera. Ekki sé langur tími til stefnu til að bregðast við brostnum forsendum kjarasamninga. „
Það sem vantar sérlega á Íslandi, það er auðvitað traust á milli aðila og virðing fyrir þeim samningum sem eru gerðir hverju sinni. Sú virðing, ég hef til dæmis ekki séð mikla áherslu hjá bæði fyrirtækjum og atvinnulífinu og hinu opinbera líka. Ég skal alveg taka það á mig þar sem ég tala fyrir stjórnmálin,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Arion banki hækkað öll gjöld um tugi prósenta. Arðsemiskrafa fjármálakerfisins hefur aukist og hækkað síðustu ár. Arðsemi hefur aukist. Það er ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýnir að þau hafi sýnt þessum samningi þá virðingu sem maður hefði viljað sjá.“ Það hafi lengi verið í umræðunni hvort koma ætti til endurskoðunar á vinnumarkaðsmódeli Íslands. Lykilþátturinn í íslenska kerfinu í samanburði við önnur sé fyrst og fremst traustið. Hann telur að verkalýðshreyfingin sé frekar til í að breyta fyrirkomulaginu og þeim viðmiðum sem séu almennt séð í kjarasamningum. Fram undan sé heildarendurskoðun á húsnæðisstuðningskerfum, þar á meðal frumvarp Ragnars sem bannar mánaðarlega vísitöluhækkun leigu. Með því megi einungis hækka húsaleigu einu sinni á ári og megi hækkunin aldrei vera meiri en vísitala. „Í dag er þetta þannig að það eru einhver markaðstengd viðmið sem eru mjög óljós og eiginlega útilokað að segja til um ef slík niðurstað afæri fyrir dómstóla. Við erum að fara auka réttarstöðu leigjenda sem skiptir líka mjög miklu máli.“ Ekki langur tími til stefnu „Við í ríkisstjórninni ræðum auðvitað stöðuna á vinnumarkaði í breiðara samhengi en þetta er auðvitað það alvarleg staða að það væri fáránlegt ef við værum ekki að ræða stöðuna og mögulegar afleiðingar verkfalla núna á miðnætti í kvöld,“ segir Ragnar Þór. Sömuleiðis sé ríkisstjórnin að reyna að bregðast við brostnum forsendum kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Forsendurnar reyndust brostnar þegar verðbólgan mældist 5,6 prósent í ágúst. „Það er ekki langur tími til stefnu. En ég þekki það nú bara úr mínu fyrra starfi í kjarasamningum að þegar fólk kemst að niðurstöðu þá gerast hlutirnir mjög hratt og þeir geta gerst mjög hratt á mjög stuttum tíma og það hefur líka verið gríðarlega mikil vinna í gangi,“ segir hann. „Við erum ekki bara að byrja í dag. Við erum búin að vera að vinna í þessu frá því snemma í vor, bara að undirbúa okkur líka fyrir þessa tímalínu.“ Verkfallið ekkert einsdæmi Yfirvofandi verkfall flugvirkja sem að öllu óbreyttu hefst á miðnætti bar einnig á góma. Ragnar Þór telur að tímasetning verkfallsins sé ekki góð en hins vegar sé aldrei góður tími til að ráðast í verkfall. Aðspurður hvort að hægt sé að leysa málið öðruvísi ef litið sé til þess verkfall flugvirkja hafi meiri áhrif á íslenskt samfélag heldur en ef aðrar stéttir færu í verkfall segir Ragnar það eðli verkfalla að þau hafa áhrif. „Þetta er ekkert einsdæmi. Það er búið allt að loga í verkföllum til dæmis í Noregi og þar eru flugstéttirnar engin undantekning. En eitt vil ég segja, lagasetning er örugglega algjör þrautvara og við ætlumst auðvitað til þess að aðilar samnings nái niðurstöðum. Flugstéttirnar, þetta er ekki alveg svona slétt og fellt,“ segir Ragnar. Þá standi flugstéttirnar, þar á meðal Icelandair, frammi fyrir miklum áskorunum varðandi samkeppni. „Nú eru til dæmis lággjaldaflugfélög sem hafa flugrekstrarleyfi í löndum þar sem kaup og kjör myndu engan veginn duga fyrir lágmarksframfærslu hér á Íslandi. Viljum við fara þá leið?“
Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bítið Bylgjan Vinnumarkaður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira