Innlent

Sýknaður vegna fíkni­efna­við­skipta hins látna

Árni Sæberg skrifar
Georgios Ntentes hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa orðið Edilsson Martin Zingara að bana.
Georgios Ntentes hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa orðið Edilsson Martin Zingara að bana. Vísir/Anton Brink

Meðal þess sem Héraðsdómur Reykjaness byggði sýknudóm sinn í manndrápsmáli, sem kennt er við Skjólbraut í Kópavogi, á er að hinn látni virðist hafa átt sér einn eða fleiri óvildarmenn vegna fíkniefnaviðskipta. Þá virðist alls óljóst að hann hafi látist kvöldið sem hinn ákærði var heima hjá honum.

Georgios Ntentes hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa orðið Edilsson Martin Zingara að bana að Skjólbraut í Kópavogi í nóvember 2025.

Sýknudómur yfir  Ntentes var kveðinn upp klukkan 8:40 í morgun en ákæruvaldið hafði farið fram á sextán ára fangelsi. Dómurinn telur ríflega eitt hundrað blaðsíður.

Margsaga um ferðir sínar umrætt kvöld

Aðalmeðferð lauk þann 2. október síðastliðinn en Ntentes var gefið að sök að hafa stungið Zingara með þremur stungum í kviðinn með hníf, skorið hann og stungið nokkrum sinnum með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann eða þrýst á framanverðan hálsinn.

Í niðurstöðukafla dómsins segir að að áliti dómsins horfi það einkum til sakfellingar Ntentes að hann var staddur á heimili Zingara í rúma klukkustund að kvöldi föstudagsins 28. nóvember, að hann hafi verið margsaga um gerðir sínar frá því hann fór frá Zingara um klukkan 20:59 á föstudagskvöldinu og þar til hann birtist á myndupptöku við Kjarvalsstaði um klukkan 22:42, að í millitíðinni hafi hann skipt úr hvítum Nike-skóm yfir í svarta Adidas-skó, að á morðvettvangi hafi greinst blóðug skóför eftir Nike skó og Adidas-skó sömu eða mjög svipaðrar tegundar og Ntentes átti og að hann hafi eftir atvikum ekki gefið viðhlítandi skýringar á því af hverju Nike-skórnir komu aldrei í leitirnar.

Virðist hafa átt sér óvini

Á móti standi meðal annars að engar beinar sannanir liggi fyrir um að Ntentes hafi myrt Zingara, að hinn látni gæti hvort heldur hafa verið hafa verið myrtur 28. nóvember eða sólarhring síðar, að Ntentes hafi enga áverka borið sem raktir verði til átaka við Zingara, að ekkert blóð úr hinum látna hafi greinst í fötum Ntentes, að skóför á vettvangi geti bent til aðkomu tveggja að andláti Zingara og að hann hafi verið viðriðinn fíkniefnasölu og virðist hafa átt sér einn eða fleiri óvildarmenn í tengslum við fíkniefnaviðskipti.

Samkvæmt heildstæðu mati á atvikum málsins og að gættum þeim sönnunarkröfum sem á ákæruvaldinu hvíla sé það álit dómsins að slíkur vafi leiki á að Ntentes sé sekur um þá háttsemi sem hann er borinn í ákæru að ekki þyki önnur niðurstaða tæk en að sýkna hann af kröfum ákæruvaldsins.

Dómurinn var skipaður tveimur embættisdómurum og einum réttarmeinafræðingi. Annar dómarinn var ósammála mati meiri hluta dómsins og taldi að ákæruvaldinu hefði tekist sönnun þess að Ntentes hefði myrt Zingara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×