Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Birgir Olgeirsson skrifar 3. september 2026 14:45 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Ráðuneyti hennar hefur birt tillögu um að óútdeildur annar vinningur í Vikinglottó renni í varasjóð leiksins í stað þess að safnast upp milli vikna. Ívar Breyta á reglum Vikinglottó þannig að annar vinningur safnist ekki lengur upp milli vikna þegar enginn vinnur hann. Féð fer þess í stað í varasjóð sem er notaður til að tryggja og hækka fyrsta vinning.
Dómsmálaráðuneytið hefur birt breytingarnar í Samráðsgátt að beiðni Íslenskrar getspár. Til að vinna fyrsta vinning þarf allar sex aðaltölurnar og rétta Víkingatölu. Sá sem fær aðaltölurnar sex en ekki Víkingatöluna fær annan vinning. Nú flyst annar vinningur yfir á næstu viku ef enginn vinnur. Eftir breytinguna fer féð í jöfnunarsjóð Vikinglottó, sem er varasjóður leiksins og tryggir að fyrsti vinningur verði aldrei lægri en þrjár milljónir evra, um 422 milljónir króna. Hámark fyrsta vinnings er 25 milljónir evra, um 3,5 milljarðar króna. Fé umfram þá upphæð fer nú í annan vinning í næsta útdrætti en á framvegis að renna í jöfnunarsjóðinn. Breytingarnar ná aðeins til Vikinglottó. Óútdeildur annar vinningur á framvegis að renna í varasjóð leiksins í stað þess að safnast upp milli vikna.Vilhelm Viðmiðið fyrir stærð sjóðsins verður jafnframt lækkað úr 7,5 milljónum evra í sex milljónir. Fari sjóðurinn yfir sex milljónir bætist umframféð við fyrsta vinning. Sé fyrsti vinningur þegar yfir 25 milljónum evra helst féð þó í sjóðnum þar til einhver vinnur pottinn. Það bætist þá við fyrsta vinning í næsta útdrætti. Breytingarnar beina þannig meira fé í fyrsta vinning en draga úr möguleikanum á mjög stórum öðrum vinningum. Í drögunum minnka einnig uppgefnar líkur á öðrum vinningi úr einum á móti 12,3 milljónum í einn á móti 15,3 milljónum. Líkur á fimm réttum án Vikingatölunnar breytast úr einum á móti 48,696 í einn á móti 60,871. Engin breyting er þó gerð á útdrættinum sjálfum. Áfram verða dregnar sex aðaltölur úr 48 tölum og ein víkingatala úr fimm. Reglurnar eiga að taka gildi 1. október.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjárhættuspil Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira