
Fjárhættuspil

Fréttir síðustu daga stoppa ekki bingó Flokks fólksins
Bingó Flokks fólksins fer fram í sal flokksins í Grafarvogskirkju við Fjörgyn klukkan 13 eins og alla aðra mánudaga. Bingóstjórinn segir flokkinn standa sína plikt við grasrótina þó gusti um hann í fjölmiðlum.

Menntastofnun eða spilavíti?
Nýverið stóðu Samtök áhugafólks um spilafíkn ásamt hópi nemenda og kennara við Háskóla Íslands (HÍ) fyrir hádegisfundi í Þjóðminjasafninu þar sem til umræðu var spilakassarekstur Háskólans.

Almennt á móti rekstri spilakassa en tryggja þurfi fjármögnun
Fimmmenningarnir sem sækjast eftir því að verða rektor Háskóla Íslands eru mis afdráttarlausir gagnvart því hvort þeir vilja sjá HÍ hætta rekstri spilakassa.

Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni
Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra í fótbolta, viðurkennir að hafa veðjað á leiki í Bestu deild karla. Hann segist hafa brugðist sjálfum sér og segir að dómstólar KSÍ muni fá mál hans til rannsóknar.

Lokum.is
Samtök áhugafólks um spilafíkn voru stofnuð árið 2019 af hópi fólks sem lætur sig málefni spilafíkla, spilakassa og fjárhættuspila varða. Eitt af fyrstu verkum samtakanna var að ráðast í skoðanakönnun sem kannaði viðhorf Íslendinga til spilakassa og hvort Íslendingar vildu almennt loka spilakössum til framtíðar. Niðurstöðurnar voru mjög afgerandi og 86% þjóðarinnar vildi að þeim yrði lokað.

Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum
Velta barna á veðmálasíðum hefur fimmfaldast á milli ára en Íslandsbanki hefur lokað á innlagnir ungmenna á slíkar síður. Forstöðumaður greiðslukortaviðskipta bankans segir aðgengi barna að síðunum of greitt.

Hálfs árs dómur yfir skólastjóra fyrir umboðssvik
Fyrrverandi skólastjóri grunnskólans á Þórshöfn hlaut sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir umboðssvik í opinberu starfi í síðustu viku. Dómstóll féllst ekki á að konan hefði gerst sek um fjárdrátt á allir þeirri upphæð sem saksóknari ákærði hana fyrir.

Vilja rektor sem afþakkar „illa fengið fé“
Samtök áhugafólks um spilafíkn hvetja til framboðs einstaklinga sem eru mótfallnir rekstri spilakassa í embætti rektors Háskóla Íslands. Gengið verði á frambjóðendur um afstöðu þeirra til reksturs háskólans á slíkum kössum.

Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður
Kona sem var á síðasta ári ákærð fyrir fjárdrátt í opinberu starfi þegar hún var skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn er grunuð um að hafa notað peninginn til einkanota, aðallega í greiðslur sem fóru inn á veðmálasíður.

Níræður maður og nýbakaður tvíburafaðir duttu í lukkupottinn
Tæplega níræður maður vann sjötíu skattfrjálsar milljónir króna í Milljónaveltu Happdrættis háskóla Íslands í kvöld. Vinningshafinn hefur átt miða í Happdrættinu alla ævi en móðir hans keypti miða þegar hann fæddist, tveimur árum eftir stofnun Happdrættisins.

Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru
Taílensk kona sem myrti fjórtán vini sína og kunningja með því að byrla þeim blásýru var dæmd til dauða í Bangkok í dag. Hún er sögð hafa drepið fólkið til að komast undan skuldum sem hrönnuðust upp vegna spilafíknar hennar.

Norðmaður vann 3,7 milljarða, landi hans 1,6 og Íslendingur milljón
Telja má líklegt að Norðmaður nokkur hafi hoppað hæð sína í lofti þegar dregið var í Víkingalottóinu í gærkvöldi. Fyrsti vinningur hafði ekki gengið út síðan í maí og því til mikils að vinna.

Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa
Samstarfsaðili knattspyrnurisanna Barcelona og PSG býður upp á veðmál um úrslit þúsunda áhugamannaleikja sem hann streymir frá og þar sem keppendur eru allt niður í fjórtán ára gamlir. Starfsemi fyrirtækisins er ólögleg víða en hægt er að veðja á síðunni á Íslandi, meðal annars á úrslit íslenskra leikja.

Keypti miða á Hólmavík og vann níu milljónir
Miðaeigandi í Lottói kvöldsins vann rúmar 8,9 milljónir í kvöld, en hann var sá eini sem hlaut fyrsta vinning. Miðann keypti hann í Krambúðinni á Hólmavík.

Dragi úr virðingu fyrir lögunum
Íslendingar veðja næstmest allra Evrópuþjóða miðað við höfðatölu og verður ríkið af tæpum fimm milljörðum króna á ári í skatttekjur með núverandi löggjöf samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Framkvæmdastjórinn segir það draga úr virðingu fyrir lögunum að hafa lagaumhverfi sem virkar ekki.

Veðjuðu næst mest allra Evrópuþjóða
Íslendingar veðjuðu næst mest allra Evrópuríkja árið 2023 en aðeins Írar vörðu meiri fjármunum í veðmál.

Hvítþvottur veðmálastarfseminnar
Það hefur færst gríðarlega í aukanna að íslenskir „áhrifavaldar“ auglýsi veðmálastarfsemi hvort sem það sé á samfélagsmiðlum, hlaðvarpsþáttum eða hreinlega í sjónvarpi, þar sem einn vinsælasti íþróttafréttamaður landsins tísti um málið en minnist ekki einu orði á að þetta væri ekki löglegt.

Valdi vinningstölurnar við leiði náins ástvinar
Kona á sextugsaldri var ein með allar tölurnar réttar í lottói á laugardaginn og fékk óskiptan fimmfaldan lottópott upp á rúmar 78 milljónir króna. Konan valdi tölurnar í kirkjugarðinum en hún var þar að vitja náins ástvinar sem féll frá nýlega. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að vinningurinn sé einn sá stærsti síðustu vikur.

Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni
Einn af þúsundum gesta á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er 37 milljónum krónum ríkari eftir að hafa dottið í lukkupottinn. Hann keypti tíu raða miða í Eurojackpot á leiðinni í Herjólfsdal en breytti einni röð sem reyndist góð ákvörðun.

Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot
Íslendingur hneppti þriðja vinning þegar dregið var í Eurojackpot í dag, og fær fyrir vikið 36.961.950 krónur.

Getulausar getraunir
Undanfarna tvo áratugi eða svo hefur afar hröð stafræn framþróun átt sér stað innan veðmálageirans og mikill vöxtur átt sér stað í tengslum við tilfærslu veðbanka úr „sjoppum“ yfir á netið.

Auðvitað á að treysta fólki sjálfu fyrir því hvert það beinir viðskiptum sínum
Kröftug umræða hefur verið í sumar um viðskiptahætti fyrirtækja sem bjóða áhættuspil á netinu. Einsog áður hefur verið bent á í greinum hér á Vísi er mikilvægt að gera skýran greinarmun á fyrirtækjum sem vanda til verka og hinna sem gera það ekki.

Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns
Dómsmálaráðherra vonast til að geta lagt fram frumvarp sem tekur á reglum um erlendar veðmálasíður í haust. Talsmaður fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu segir að Coolbet hafi óskað eftir samstarfi sem var slitið í gær.

Íslenskar getraunir og ólögleg veðmálafyrirtæki
Ýmsir aðilar sem hafa fjárhagslega hagsmuni af starfsemi erlendra veðmálafyrirtækja sem starfa hér á landi með ólögmætum hætti, hafa stigið fram á undanförnum dögum og lofsungið starfsemi þessara fyrirtækja.

Segir tímabært að Ísland stokki spilin upp á nýtt
Maarten Haijer, framkvæmdastjóri hagsmunasamtaka evrópskra veðmálafyrirtækja, tekur til varna fyrir erlend veðmálafyrirtæki sem hafa verið áberandi í umræðunni hér á landi undanfarnar vikur. Það gerir hann í skoðanagrein sem birtist á Vísi í morgun þar sem hann segir regluverk á Íslandi varðandi fjárhættuspil vera fast í fortíðinni.

Tímabært að stokka spilin og gefa upp á nýtt
Síðastliðinn sunnudag sagði Lárus Blöndal, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem er aðaleigandi umfangsmesta veðmálafyrirtækis Íslands, Íslenskra getrauna, í útvarpsþættinum Sprengisandur á Bylgjunni að Evrópulönd hefðu verið að loka því sem hann kallaði „ólöglegar“ fjárhættuspilasíðum á netinu.

„Við erum ekki að fara að vinna“
Fjármálaráðgjafi mælir eindregið gegn því að fólk kaupi lottómiða í von um að verða ríkari. „Ef markmiðið er fjárhagslegur ávinningur þá er happdrætti og lottó og fjárhættuspil og allt slíkt með því vitlausasta sem þú gerir,“ segir Björn Berg Gunnarsson.

54 milljónum króna ríkari
Einn miðahafi var með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti kvöldsins og hlýtur rúmar 53,9 milljónir króna í vinning. Annar miðahafi fékk bónusvinninginn og fær rúmar 819 þúsund krónur.

Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður veðmálafyrirtækisins Betsson skýtur föstum skotum á Íþrótta og Ólympíusamband Íslands og Lárus Blöndal formann sambandsins, í aðsendri grein á Vísi í dag. Hann segir Lárus þurfa að taka til í eigin veðmálastarfsemi áður en hann fari að tala fyrir því að banna erendar veðmálasíður.

Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi
Í síðustu viku óskaði Lárus Blöndal, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), eftir því í viðtali við Vísi að stjórnvöld myndu hlutast til um og stöðva starfsemi erlendra veðmálasíðna sem fjöldi Íslendinga kýs að spila á af eigin fúsum og frjálsum vilja. Nefndi Lárus sérstaklega það framferði eins af erlendu fyrirtækjunum að styrkja útilegu nemenda í Verslunarskólanum. Um þann hluta málflutnings Lárusar er hægt að taka heilshugar undir. Ótækt er að veðmála- og happdrættisfyrirtæki stýri markaðssetningu sinni sérstaklega að ungmennum.