Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Birgir Olgeirsson skrifar 3. september 2026 13:18 Ýmis vandamál hafa komið upp við álagningu og innheimtu kílómetragjaldsins frá því það tók gildi um áramótin. Stjórnvöld vilja nú bregðast við þeim með lagabreytingum. Vilhelm Stjórnvöld vilja breyta lögum um kílómetragjald eftir reynsluna af fyrstu átta mánuðum kerfisins. Skuld fyrri eiganda á ekki lengur að geta stöðvað aðalskoðun bíls og Skatturinn á að fá skýrari heimild til að leiðrétta rangt reiknað gjald.
Áformin voru birt í Samráðsgátt í gær. Lögin tóku gildi um áramótin og ná til allra ökutækja óháð orkugjafa. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027. Leiðrétti rangt reiknað gjald Skatturinn getur nú lækkað mánaðarlega kröfu sem augljóslega byggist á röngum upplýsingum. Ráðuneytið vill að stofnunin fái einnig skýra heimild til að lækka gjaldið eftir að lokauppgjör hefur farið fram. Vísir greindi frá því í júní að kerfisvilla hefði valdið því að fólk fékk kröfur vegna bíla sem það hafði þegar selt. Þá á ógreitt gjald fyrri eiganda ekki lengur að koma í veg fyrir að nýr eigandi geti farið með bílinn í aðalskoðun. Samkvæmt núgildandi lögum getur skoðunarstofa neitað að skoða bíl ef gjaldfallið kílómetragjald af honum er ógreitt. Bílar erlendis undan mánaðarlegum kröfum Skýra á að ekki skuli senda mánaðarlegar kröfur vegna bíla sem voru erlendis þegar lögin tóku gildi og hafa verið þar áfram. Bíleigandi kvartaði yfir slíkri innheimtu til umboðsmanns Alþingis í maí. Einnig stendur til að heimila bíleigendum að skrá nýja stöðu akstursmælis áður en 30 dagar eru liðnir frá síðustu skráningu. Námuökutæki, tilteknar beltabifreiðar og ökutæki sem eingöngu eru notuð innan flugvallarsvæða eiga að verða undanþegin gjaldinu. Undanþága björgunarsveita verður skýrð betur, en sveitirnar fengu reikninga í upphafi árs þrátt fyrir að eiga að vera undanþegnar. Ráðuneytið skoðar einnig hvort létt bifhjól eigi að verða undanþegin. Engin breyting er boðuð á upphæð kílómetragjaldsins. Frestur til að skila umsögn rennur út 16. september.
Kílómetragjald Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira