Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 2. september 2026 09:00 Kristrún Frostadóttir Vísir/Vilhelm Eftir að komugjöld til sjúkraþjálfara voru gagnrýnd af formanni Landssambands eldri borgara benti forsætisráðherra á að í fyrsta skipti fylgi lífeyri launatölu í landinu. Ráðstöfunartekjur eldri borgara séu því að fara aukast með sanngjarnari hætti.
Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara, gagnrýndi nýtt komugjald fyrir þá sem sækja þjónustu sjúkraþjálfara. Komugjaldið er 1500 krónur fyrir hvert skipti en þúsund krónur fyrir aldraða og fimm hundruð krónur fyrir öryrkja. „Ég hef heyrt fólk tala um það sem hefur haldið sig frá hjólastólnum með því að fara oft í sjúkraþjálfun og það segir: Ég hef ekki lengur efni á að gera þetta þannig að hjólastóllinn bíður,“ sagði Bjarni. Hækkanir vegna aukins kostnaðar Gagnrýnin var borin undir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Formaður Félags eldri borgara er afar ósáttur með þessa ákvörðun og segir þetta komi illa niður á ellilífeyrisþegum. Einhver skilaboð til þessara hópa þar sem þetta kemur hvað einna mest niður á? „Ég skil það alveg að fólk vilji síður sjá hækkandi gjöld. En verðlag hefur sannarlega þróast og launaþróun með þeim hætti að kostnaður til að standa undir ákveðnum tegundum heilbrigðisþjónustu hefur aukist. Þannig að við þurfum bara að átta okkur á því samspili,“ segir Kristrún. Hún bætti einnig við að það stærsta sem ríkisstjórnin hefði gert fyrir eldri borgara væri að tryggja að lífeyrir fylgdi launavísitölu í landinu. „Þetta var ein stærsta einstaka velferðaraðgerð síðustu ríkisstjórnar. Þetta er eitthvað sem Landssamband eldri borgara hefur barist fyrir í mörg ár og er núna í gegn. Og þýðir að ráðstöfunartekjur margra þessara einstaklinga eru núna að fara að aukast með sanngjarnari hætti en áður.“ Ef til vill ekki vinsælt en grípa þurfi til aðgerða Verðbólga í landinu er vel yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Aðspurð hvort það hafi ekki komið til greina að bíða með eða sleppa komugjöldunum vegna þessa segir Kristrún að ýmislegt hafi verið rætt og komið til greina. „Þetta er auðvitað svona ákveðin jafnvægislist, stærsta einstaka aðgerðin sem við getum ráðist í sem ríkisstjórn er að reka ríkissjóð réttu megin við núllið. Það hefur líka haft áhrif í gegnum tíðina að halda aftur af gjöldum sem standa undir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og velferðarþjónustu í landinu til þess eins að vera kannski með hallann vitlausu megin við núllið og það hefur þá þensluhvetjandi áhrif,“ segir Kristrún. Það sé ef til vill ekki vinsælt að segja það en stundum þurfi að grípa til ákveðinna aðgerða til að standa undir þjónustu. „Við erum að skoða ýmislegt. Við erum að skoða krónutölugjöldin í samtali við þessa aðila vinnumarkaðarins og við finnum alveg til ábyrgðar í þessum málum.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Eldri borgarar Fjármál heimilisins Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira