Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 1. september 2026 19:02 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að stjórnarandstaðan kunni vel að meta EES-samninginn. Vísir/Lýður Valberg Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni leggja áherslu á EES- samninginn á haustþingi. Fram hefur komið að stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka dragi geri ríkisstjórnin það ekki sjálfviljug. „
Það þarf auðvitað að skerpa á og styðja við EES-samninginn,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Það hefur komið krafa frá stjórnarandstöðunni um að draga umsókn um aðild algjörlega til baka. Hvernig stendur það mál? „Þetta er í skoðun núna. Ég held að það skipti máli að það liggi alveg fyrir að við virðum að öllu leyti niðurstöðu þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir hún. „Rúmlega helmingur hafnaði því að halda áfram aðildarviðræðum en margir af þeim sem sögðu nei gerðu það á þeim forsendum að EES-samningurinn væri sterkur og góður fyrir Ísland. Þannig að við þurfum bara að meta það núna með hvaða hætti við endanlega lokum þessum kafla og við þurfum að flýta okkur hægt í því.“ Stjórnarandstaðan kunni að meta EES-samninginn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greindi frá því í gær að bókun 35 væri á meðal þess sem hún myndi leggja fram á komandi þingi. Þingið verður formlega sett eftir viku. Bókun 35 segir til um að þegar EES-reglur verði að íslenskum reglum en stangist á við aðrar íslenskar reglur eigi EES-reglurnar að gilda. Þorgerður gaf það upp í gær að hún ætlar að leggja fram á haustþinginu bókun 35. Hvar ert þú varðandi það? „Það hefur legið fyrir að þegar við innleiddum EES-samninginn á sínum tíma gerðum við ekki breytingar á stjórnarskrá. Það eru ákveðnar framsalsheimildir þegar kemur að alþjóðamálum, til dæmis í norsku stjórnarskránni, og það hefur verið ákveðið að fara ekki þá leið á Íslandi, að efla EES-samninginn með breytingum á stjórnarskrá, að minnsta kosti enn sem komið er,“ segir Kristrún. „Bókun 35 hefur verið sú leið og ég held að við verðum að horfast í augu við það að af því að við kunnum svo vel að meta EES, stjórnarandstaðan kann vel að meta EES og ég kann sannarlega vel að meta EES og flestir Íslendingar, þá þurfum við að gera allt sem við getum til að styrkja þann samning og við munum leggja bókunina fram á þeim forsendum.“ Hafið þið fengið skilaboð frá Evrópu eftir kosningarnar og til dæmis um þessa bókun? „Við höfum ekki rætt sérstaklega um bókunina við Evrópusambandið eftir þessa atkvæðagreiðslu,“ segir Kristrún. Hins vegar hafi lengi legið í loftinu að það þurfi að skerpa á heimildunum, til að mynda í tengslum við Eftirlitsstofnunina. Innleiðing bókunar 35 sé hluti af því að Ísland hafi þegar keypt sig inn á evrópskan markað og heilmikið af viðskiptatækifærum sé fólgin í innleiðingunni.
Bókun 35 Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Sjá meira