Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Lovísa Arnardóttir skrifar 31. ágúst 2026 13:16 Bæjarráð tekur undir með Landhelgisgæslunni. Vísir/Vilhelm Bæjarráð Fjallabyggðar skorar á stjórnvöld að tryggja fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri. „
Í ljósi mikils álags á þyrlusveit Landhelgisgæslunnar undanfarin misseri tekur bæjarráð Fjallabyggðar undir tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri og jákvæða umsögn Landhelgisgæslunnar um málið,“ segir í ályktun bæjarráðs. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram þingsályktunartillögu þess efnis á síðasta þingi. Fjórtán skiluðu umsögn um málið, þar með talið Landhelgisgæslan. Í umsögn þeirra kom til dæmis fram að föst viðvera þyrlusveitarinnar á Akureyri yrði bylting í björgunar-, sjúkraflugs- og eftirlitsgetu. Í ályktun kemur enn fremur fram að með því að festa starfsstöðina væri hægt að ná til allra landshluta innan 90 mínútna á hefðbundnum degi og efla verulega viðbragð á norður- og austurmiðum og hálendinu. „Landhelgisgæslan hafði fulla viðbragðsgetu aðeins 61% ársins 2025 og telur óskynsamlegt að flytja eina núverandi þyrlu til Akureyrar án þess að fjölga þyrlum og áhöfnum,“ segir í ályktuninni. Verði að tryggja í fjárlagagerð Bæjarráð skorar í ályktun sinni á ríkisstjórn og Alþingi að leggja við næstu fjárlagagerð fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fjórðu björgunarþyrluna, sjöundu þyrluáhöfnina og nauðsynlega aðstöðu á Akureyri. „Jafnframt verði hafið árs tilraunaverkefni í samræmi við tillögu Landhelgisgæslunnar, með fasta starfsstöð að markmiði. Allir landsmenn eiga að njóta sambærilegs öryggis og viðbragðsgetu, óháð búsetu,“ segir að lokum.
Fjallabyggð Landhelgisgæslan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira