„Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 14:01 Jóhann Páll jóhannsson er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Vísir/Anton Brink Umhverfis- og orkumálaráðherra segir engan vafa í sínum huga að möguleikar Íslands til að verja hagsmuni sína hvað varðar losunarheimildir í flugsamgöngum væru meiri innan ESB, jafnvel þó Ísland væri aðeins umsóknarríki. Rík hefð hafi myndast fyrir samstöðumenningu í stjórnarfyrirkomulagi ESB.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- og orkumálaráðherra, ritaði grein á vefsíðu sína í morgun þar sem hann fjallaði um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir í flugsamgöngum. Þar skrifar hann að leikreglur kerfisins séu afar óhagstæðar Íslandi vegna landfræðilegrar stöðu en þó væri ekki hægt að segja sig frá fyrirkomulaginu einhliða, án afleiðinga. Í samtali við fréttastofu í morgun segir Jóhann Páll að slíkt væru vanefndir á EES-samningum og myndi tefla markaðsaðgengi íslenskra fyrirtækja í tvísýnu. Umræðan hafi verið svipuð í tengslum við þriðja orkupakkann. „Þá var varað sérstaklega við því, meðal annars af einmitt Carl Baudenbacher að ef Ísland kæmi einhvern veginn eftir á og færi að neita að undirgangast reglur þá myndi það beinlínis setja EES-samninginn í uppnám. Hérna er þetta í rauninni ennþá skýrara,“ sagði Jóhann Páll í hádegisfréttum Bylgjunnar. Dæmi um sérlausnir Hann segir ríka hefð fyrir samstöðumenningu innan ráðherraráðs ESB, að finna lausn sem öll ríki geti sætt sig við. „Þegar kemur að svona umfangsmiklu regluverki eins og ETS-kerfið er þá getur þetta haft mjög verulega þýðingu fyrir ríki sem eru einangruð landfræðilega eða búa við sérstakar aðstæður að einhverju tagi.“ Dæmi séu um sérlausnir og málamiðlanir vegna athugasemda smærri ríkja og vissulega reyni íslensk stjórnvöld að koma sjónarmiðum sínum að snemma í lagasetningarferlinu. Í grein sinni nefnir hann dæmi um Möltu sem hafi fengið undanþágu frá þriðja orkupakkanum og jafnframt að ekki þurfi einróma samþykki í ráðherraráðinu nema á sviði utanríkis- og öryggismála sem og varðandi tiltekna skattalega þætti. „Staðreyndin er engu að síður sú að við erum ekki inni í þessu herbergi sem ráðherraráðið er. Þannig að auðvitað er það þannig að önnur ríki með einhverjar sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu.“ Meiri möguleikar, jafnvel sem umsóknarríki Hvert ríki ESB á einn fulltrúa í ráðherraráði sambandsins en Jóhann Páll segir Ísland vera í dauðafæri núna þar sem Evrópusambandið sé að endurskoða ETS-regluverkið. „Það er hafið yfir allan vafa í mínum huga að möguleikar Íslands, möguleikar íslenskra stjórnvalda til þess að verja íslenska hagsmuni að hafa jákvæð áhrif, taka þátt í að hnika þessu regluverki í skynsamlega átt í samstarfi við meðal annars önnur eyríki. Þessir möguleikar okkar væru miklu, miklu meiri. Þeir væru meiri jafnvel þótt við værum ekki nema umsóknarríki, væru miklu meiri ef við værum aðildarríki.“ „Prýðileg lýðræðishátíð“ Nú þegar tvær vikur eru í að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram segir Jóhann Páll að niðurstaðan geti farið á hvorn veginn sem er. „Umræðan er mjög fjörug og mér finnst hún heilt yfir hafa verið heilbrigð og skemmtileg. Mér finnst hún hafa einkennst af því að það eru ekki alltaf sömu einstaklingarnir að leiða umræðuna heldur kemur fólk úr ólíklegustu þáttum og tekur þátt.“ „Mér finnst þetta bara verið prýðileg lýðræðishátíð í lok sumars og ég held að sama hver niðurstaðan verður þá verður þetta mjög mikilvæg og tímabær leiðsögn þjóðarinnar til stjórnvalda.“
Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Flug Samgöngumál ETS-viðskiptakerfið með losunarheimildir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira