Körfubolti

Tólfta sæti niður­staðan eftir tap fyrir Lettum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hulda María Agnarsdóttir skoraði flest stig íslenska liðsins í dag.
Hulda María Agnarsdóttir skoraði flest stig íslenska liðsins í dag. Mynd/FIBA

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta hafnaði í tólfta sæti í A-deild Evrópumóts U20 í Litáen eftir tap fyrir Lettum í síðasta leik liðsins á mótinu í dag.

Íslenska liðið byrjaði betur í jöfnum leik og var lengi vel með forystuna sem liðin skiptust þó á í fyrstu tveimur leikhlutunum. Lettland náði góðum kafla í lok annars leikhluta og var þremur stigum yfir í hálfleik 41-38.

Lettland lét forystuna aldrei af hendi eftir það og náði mest tíu stiga forskoti. Leiknum lauk 85-80 fyrir þær lettnesku sem hafna í ellefta sæti mótsins en Ísland í því tólfta.

Hulda María Agnarsdóttir var stigahæst íslenska liðsins í dag með 22 stig. Rebekka Rut Steingrímsdóttir skoraði 17 stig og Berglind Katla Hlynsdóttir 15 stig.

Íslenska liðið náði sögulegum árangri á mótinu en það vann alls þrjá leiki en hafði fyrir það best unnið einn leik í A-deild. Árangurinn gerir einnig að verkum að Ísland verður áfram í A-deildinni á næsta móti.

Íslenska liðið er ungt hvað 20 ára aldurshópinn varðar og gott sem allir leikmenn hópsins munu einnig geta tekið þátt á næsta móti, reynslunni ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×