Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Valur Páll Eiríksson skrifar 7. júlí 2026 07:32 Keir Starmer er forsætisráðherra Bretlands, en hefur verið óvinsæll og hættir senn. EPA Pólitísk afskipti af yfirstandandi heimsmeistaramóti í fótbolta einskorðast ekki við Hvíta húsið. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hafði áhrif á leiktíma enska landsliðsins við Mexíkó ef marka má breska fjölmiðla.
England vann 3-2 sigur á Mexíkó á Azteca-vellinum í Mexíkóborg í fyrrinótt þrátt fyrir að hafa leikið manni færri stóran part og spilað við erfiðar aðstæður, rúmlega tvö þúsund metra yfir sjávarmáli. Dagana fyrir leik var til skoðunar að flýta leiknum frá miðnætti á íslenskum tíma til klukkan sex. Þetta var sökum hættu á þrumuveðri á leikdag. Sú hætta reyndist á rökum reist þar sem seinka þurfti leiknum um eina klukkustund, til klukkan eitt aðfaranótt mánudags, vegna þrumna og eldinga. Samkvæmt breskum fjölmiðlum átti Keir Starmer, sem hættir senn sem forsætisráðherra, stóran þátt í því að leiknum var ekki flýtt. Slík tilfærsla myndi gefa Mexíkó aukið samkeppnisforskot sökum þunns lofts í hæðum Mexíkóborgar. Hann hafi lagt áherslu á að halda hinum leiktímanum svo leikmenn enska liðsins fengju aukinn tíma til að aðlagast loftslaginu í mexíkósku höfuðborginni. Breska ríkisstjórnina hafi með diplómatískum leiðum komið veg fyrir breytingu á leiktíma. Starmer hafi þar farið með lykilhlutverk eftir að hafa borist ábending um mögulega breytingu frá enska knattspyrnusambandinu, sem hafi sent beiðni til Downing-strætis. Starmer stóð þá einnig að lagabreytingu sem heimilaði börum í Bretlandi að lengja opnunartíma vegna þess hversu seint leikurinn fór fram. Enskir fögnuðu sigrinum langt fram á nótt og fréttir hafa borist af metfjölda fólks sem hafi hringt sig inn „veikt“ í vinnu á mánudagsmorgun.
HM 2026 í fótbolta Bretland England Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fótbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Sjá meira