„Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 3. júlí 2026 16:30 Hanna Katrín Friðriksson ráðherra neytenda- og samkeppnismála segir mikilvægt að komast til botns í því hvort íslenski eldsneytismarkaðurinn hagi sér með öðrum hætti en þeir erlendu. Ráðherra neytenda- og samkeppnismála segir afar mikilvægt að komast til botns í því hvernig þróunin er og hefur verið á eldsneytismarkaði. Hún kveðst ekki sjá annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki.
Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu hafa gagnrýnt vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins sem birti umræðuskjal í gær sem fjallar um stöðu og þróun eldsneytismarkaðarins en án athugasemda frá fulltrúum olíufélaganna. Í skjalinu er kallað eftir sjónarmiðum sem forsvarsmönnum olíufélaganna býðst að skila innan tiltekins frests. Frumniðurstöður eftirlitsins eru meðal annars að verðmunurinn hafi aukist á milli Íslands og annarra Evrópuríkja síðustu ár. Hanna Katrín Friðriksson er ráðherra neytenda- og samkeppnismála. „Þessi markaður er eins og aðrir lykilmarkaðir sem varða almennt neytendur. Hér er fámenni. Sú staðreynd hefur auðvitað bara áhrif á hvernig markaðirnir okkar þróast. Og þess vegna skiptir auðvitað máli að menn séu samstíga um það að láta hina almennu reglu um samkeppni gilda til hagsbóta auðvitað fyrir neytendur. En ég vil nú meina að það sé fyrir fyrirtækin líka og auðvitað er það þannig að menn gera sér grein fyrir því að þetta þarf að spila saman.“ Hún var spurð út í fyrstu viðbrögð við þeim tíðindum sem umræðuskjalið ber með sér. „Ég sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé einfaldlega að sinna sínu hlutverki. Þegar ríkisstjórnin ákvað að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti í tengslum við ástandið í Mið-Austurlöndum, þá var Samkeppniseftirlitinu falið tiltekið hlutverk þar, þ.e.a.s. að fylgjast með því að lækkunin skili sér raunverulega.“ „Nú eru þeir að setja fram tilteknar upplýsingar til umræðu og kalla síðan eftir skýringum og viðbrögðum. Auðvitað er það þannig að hlutverk sjálfstæðs Samkeppniseftirlits er að leggja hlutlægt mat á gögn og það hlýtur að vera það sem er í gangi núna. En það er jafnframt verið að kalla eftir frekari skýringum á hagfræðilegum greiningum og öðru slíku, þannig að þetta er þá bara fyrsta skref í því. Við þurfum auðvitað að komast til botns í því hvað er í gangi hérna og komast til botns í því hvort að það sé rétt að markaðurinn okkar hagi sér á annan hátt en sambærilegir markaðir annars staðar, þannig að neytendur séu þá, hagur þeirra sé skertur.“
Samkeppnismál Bensín og olía Neytendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Of snemmt að draga fram heykvíslar „Ef þetta er satt og rétt að álagningin hafi aukist um 25 til 50 prósent, þá er það náttúrulega alveg galið,“ segir formaður Neytendasamtakanna um fullyrðingar Samkeppniseftirlitsins sem fram komu í umræðuskjali um stöðu eldsneytismarkaðarins. Hann vill að stofnunin fari fram á að stóru fyrirtækjasamstæðurnar á dagvöru- og eldsneytismarkaði sýni betur hvar arðsemi þeirra verður til. 2. júlí 2026 23:58 Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, þykir ófaglegt að Samkeppniseftirlitið hafi gefið út umræðuskjal um eldsneytismarkað sem að hans mati innihalda ávirðingar í garð olíufélaganna. 2. júlí 2026 22:10 Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins (SKE) í umræðu um matvöruverslanir og olíufélög. Þá gagnrýna þau að forstjóri stofnunarinnar hafi tekið undir málflutning Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Alþýðusambands Íslands. 2. júlí 2026 18:26 Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi. 2. júlí 2026 13:32 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Of snemmt að draga fram heykvíslar „Ef þetta er satt og rétt að álagningin hafi aukist um 25 til 50 prósent, þá er það náttúrulega alveg galið,“ segir formaður Neytendasamtakanna um fullyrðingar Samkeppniseftirlitsins sem fram komu í umræðuskjali um stöðu eldsneytismarkaðarins. Hann vill að stofnunin fari fram á að stóru fyrirtækjasamstæðurnar á dagvöru- og eldsneytismarkaði sýni betur hvar arðsemi þeirra verður til. 2. júlí 2026 23:58
Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, þykir ófaglegt að Samkeppniseftirlitið hafi gefið út umræðuskjal um eldsneytismarkað sem að hans mati innihalda ávirðingar í garð olíufélaganna. 2. júlí 2026 22:10
Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins (SKE) í umræðu um matvöruverslanir og olíufélög. Þá gagnrýna þau að forstjóri stofnunarinnar hafi tekið undir málflutning Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Alþýðusambands Íslands. 2. júlí 2026 18:26
Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi. 2. júlí 2026 13:32