Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Jakob Bjarnar skrifar 3. júlí 2026 13:20 Guðlaugur Þór telur einsýnt að Þorgerður Katrín beinlínis forðist það eftir fremst megni að skiptast á skoðunum um þjóðaratkvæðagreiðsluna, við sig og aðra. Honum finnst það sérkennilegt í lýðræðislegu þjóðfélagi. vísir/einar Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar. „
Mér finnst þetta skrítið og óeðlilegt að hún ætli bara ekki að taka umræður við pólitíska andstæðinga sína, hvorki um þetta né annað,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson í samtali við Vísi. Vísir hefur sagt frá fyrirhuguðum kappræðum sem Gunnlaugur Jónsson hjá Paradigm hefur verið að skipuleggja en upprunalega hugmyndin var sú að þar myndu þau Þorgerður Katrín og Guðlaugur Þór mætast og skiptast málefnalega á skoðunum um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Guðlaugur Þór segir þetta hafa komið upp ítrekað. „Þorgerður víkur sér undan því að taka þátt í rökræðum sem ráðherra verður auðvitað að gera í lýðræðislegu þjóðfélagi. Hún hefur vikið sér undan þessu ítrekað og ég veit það frá þeim sem eru að skipuleggja atburðinn. Hún fékk val um dagsetningar og það stendur örugglega enn.“ Og Gunnlaugur Jónsson staðfestir þetta. „Þorgerður hafnaði líka 15. og 16. ágúst. Svo bauð ég henni líka að stinga upp á öðrum degi, einhvern tíma í júlí eða ágúst, við myndum vinna með það en hún hafnaði því líka,“ segir Gunnlaugur Jónsson skipuleggjandi kappræðnanna. En Paradigm er félag sem stofnað hefur verið um umræður um samfélagsmál íslenskra og erlendra ræðumanna og hefur staðið fyrir nokkrum slíkum viðburðum. Frægastur gesta Paradigm er líklega doktor Jordan Peterson. Þorgerður Katrín sagði í samtali við blaðamann Vísis að hún verði úti á landi þegar fundurinn er fyrirhugaður, en ríkisstjórnin verður með sumarfund á Höfn dagana 12. og 13. ágúst.vísir/vilhelm Guðlaugur Þór er orðinn þreyttur á því að Þorgerður Katrín vilji ekki skiptast á skoðunum við sig og aðra um þetta efni. „Síðast þegar ég átti að mæta henni keyrði ég þrjú hundruð kílómetra, á Sprengisandi, og fékk svo þau skilaboð um morguninn að hún kæmist ekki. Það er ekki eðlilegt í lýðræðislegu þjóðfélagi að ráðherrar víki sér stöðugt undan því að ræða þau mál sem þeir eiga að verja og leggja sjálfir fram. Í þeim löndum sem við miðum okkur við tíðkast þetta ekki, að ráðherrar víki sér undan rökræðum,“ segir Guðlaugur Þór og bætir við: „Það er augljóst að hún treystir sér ekki í þessar umræður og það segir allt sem segja þarf um stöðu málsins.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Félagasamtök Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Tengdar fréttir Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hefur boðið utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Miðað er við að kappræðurnar fari fram 14. ágúst. 30. júní 2026 13:15 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hefur boðið utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Miðað er við að kappræðurnar fari fram 14. ágúst. 30. júní 2026 13:15