Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Lands­kjör­stjórn fellst á til­lögur um nýtt orða­lag

Landskjörstjórn telur tvær nýjar tillögur að spurningu sem lögð verði undir landsmenn í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Tillögurnar frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis eru taldar samræmast meginsjóðanarmiðum um að spurningin eigi að vera skýr, skiljanleg og hlutlaus.

Innlent
Fréttamynd

Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir Jón Gnarr ekki hafa sent reikning á Ríkisútvarpið vegna umdeilds grínatriðis í Vikunni með Gísla Marteini og þar af leiðandi hafi hann ekki fengið greitt fyrir það. Hefði hann sent reikning hefði hann, líkt og aðrir listamenn sem koma fram í þáttunum, fengið laun. 

Innlent
Fréttamynd

Má búast við „gífur­legri“ eftir­spurn er­lendra aðila að komast í kvóta hér á landi

Eftirspurn meðal erlendra félaga í að komast yfir aflaheimildir sjávarútvegsfyrirtækja verður „gífurleg“ ef Ísland gengur í Evrópusambandið, að mati sérfræðinga Arctica Finance, en þar er mikill meðbyr í átt að frekari samþjöppun í greininni. Hlutabréfaverð sjávarútvegsfélaga í Kauphöllinni rauk upp eftir greiningu verðbréfafyrirtækisins en þar var bent á að fjárhagslegt virði kvóta þeirra ætti sennilega eftir að „aukast verulega“ við inngöngu í ESB.

Innherji
Fréttamynd

„Komið þá með allt það sem gerðist síðast“

Forsætisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun þar sem tekist var á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Þingflokksformaður Viðreisnar sakar stjórnarandstöðuna um hræðsluáróður.

Innlent
Fréttamynd

„Var þetta ein­hver skets?“

Guðlaugur Þór Þórðarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hélt því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði ekki heyrt stakt orð í fyrirspurn sinni; svar hennar væri eitt það furðulegasta sem heyrst hafi í þingsal.

Innlent
Fréttamynd

Beitir sér ekki sér­stak­lega fyrir því að spurningunni verði breytt

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að beita sér sérstaklega fyrir því að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verði breytt. Það sé verkefni Alþingis og hún treysti því. Kristrún var gestur utanríkismálanefndar og ræddi þar Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslendinga. 

Innlent
Fréttamynd

Stál í stál og sam­mála um fátt á fundi um ESB

Mikill hitafundur fór fram í Smiðju Alþingis á föstudag þegar utanríkisráðherra mætti fyrir utanríkismálanefnd að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Stjórnarandstaðan segir fundinn vonbrigði en ráðherra segir hörkuna í umræðunni koma á óvart.

Innlent
Fréttamynd

Lægri húsnæðis­vextir með evru (stað­fest)

Morgunblaðið afrekaði að breiða yfir stórfrétt sem blaðið þó birti og vann. Í fréttinni, sem birtist 11. apríl, staðfesta sérfræðingar stærstu banka landsins að lánakjör almennings af húsnæðislánum myndu lækka og batna með upptöku evru.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég sé engin rök fyrir því“

„Við erum ekki að afsala okkur einhverri ákvarðanatöku í gegnum aðlögunina. Það er að einhverju leyti erfitt að átta sig á af hverju þetta er svona rosalega mikið í umræðunni, nema þá út frá því að það sé eins og okkur steðji einhver ógn af þessu og við séum að gera einhverjar breytingar sem sé ekki hægt að draga til baka. En ég sé engin rök fyrir því.“

Innlent
Fréttamynd

„Aðild að Evrópu­sam­bandinu myndi skapa stöðug­leika“

Sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir mörg dæmi um að tillit sé tekið til sérstöðu umsóknarríkja í aðildarviðræðum. ESB geti fært Íslandi stöðugleika á víðsjárverðum tímum í alþjóðamálum og sérþekking Íslands komi til með að nýtast sambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Mörg dæmi um að tekið sé sér­stakt til­lit til umsóknarríkja

Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir engar aðildarviðræður að sambandinu vera eins. Mörg dæmi séu um að tekið sé sérstakt tillit til mismunandi umsóknarríkja, líkt og í tilviki Íslands og sjávarútvegsmála. Hann segir samningaviðræður við sambandið raunverulegar samningaviðræður.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópu­sam­bandið“

Formaður Miðflokksins segir stjórnarliða annað hvort viljandi eða óviljandi hafa sagt þinginu og þjóðinni ósatt varðandi eðli þeirra viðræðna við Evrópusambandið, sem kosið verður um í ágúst. Þingmaður Viðreisnar vísar því á bug og segir ekki hægt að plata þjóðina inn í ESB.

Innlent
Fréttamynd

„Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ó­sannindi eða blekkingar“

Uppnám var á þinginu nú áðan og kvartaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undan því að vera sökuð um ósannindi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins var heitur í umræðunni og mátti sæta ákúrum Þórunnar Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis fyrir frammíköll. Sigmundur Davíð var ósáttur við þetta og taldi Þórunni misbeita valdi sínu í þágu forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri and­vígir aðild nú en í fyrra

Fleiri Íslendingar eru andvígir aðild að Evrópusambandinu nú en fyrir ári síðan miðað við árlega könnun sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið. 46 prósent segjast vera andvíg aðild í dag en sá fjöldi var 39,8 prósent þegar könnunin var framkvæmd á svipuðum tíma í fyrra. Þá hefur stuðningur við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu ekki mælst hærri.

Innlent
Fréttamynd

Óvarfærið orða­lag geti orðið til vand­ræða í ára­tugi

Orðalag sem lagt er upp með í þjóðaratkvæðagreiðslunni um viðræður við ESB gæti orðið til mikilla vandræða ef það yrði óbreytt að mati stjórnmálafræðings. Það sem hljómi eins og aukaatriði í dag geti breyst í áratugalangar deilur sé ekki að gætt.

Innlent
Fréttamynd

Lands­kjör­stjórn telur spurningu Þor­gerðar gildishlaðna

Landskjörstjórn telur að orðalag sé gildishlaðið í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort „halda eigi áfram“ aðildarviðræðum við Evrópusambandið enda sé enn deilt um það hvort umsókn Íslands sé virk eða ekki. Kjörstjórnin telur að spurningin geti vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda.

Innlent
Fréttamynd

Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna

Nýjustu kannanir benda til þess að þeir sem vilja halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið standi frammi fyrir erfiðu verkefni. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir þó ekki hægt að tengja það beint við vaxandi óánægju með ríkisstjórnina.

Innlent