Erlent

Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon

Eiður Þór Árnason skrifar
Lögregla girti skólalóðina af í dag.
Lögregla girti skólalóðina af í dag. Ap/Joe kline

Minnst þrjú börn og einn fullorðinn féllu í skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Bend í Oregonríki í Bandaríkjunum í dag. Árásarmaðurinn var skotinn til bana, að sögn lögreglu.

CBS News greinir frá þessu. Yfirvöldum barst tilkynning um að skoti hefði verið hleypt af inn í bíl fyrir utan grunnskólann klukkan 12:59 að staðartíma, að sögn AP-fréttaveitunnar. Fleiri neyðarsímtöl bárust síðan innan úr skólanum.

Árásarmaðurinn var skotinn skömmu eftir að lögregla kom á vettvang, að sögn lögreglu. Ekki er ljóst á þessari stundu hvort lögregla, almennur borgari eða árásarmaðurinn sjálfur hleypti af skotinu.

Silver Rail-grunnskólanum var lokað og fékk enginn að fara inn eða út úr byggingunni, að því er fram kemur í Facebook-færslu Bend-La Pine-skólaumdæmisins á Facebook.

Skólinn er í yfir 160 kílómetra fjarlægð suðaustur af Portland. Alls voru 459 nemendur skráðir þar á síðasta ári, samkvæmt menntamálayfirvöldum í Oregon. Skólinn er fyrir nemendur frá leikskólaaldri og upp í fimmta bekk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×