Erlent

Tak­markanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið til­viljun“

Samúel Karl Ólason skrifar
Ung kona virðir fyrir sér heimili sitt í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt.
Ung kona virðir fyrir sér heimili sitt í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt. AP/Efrem Lukatsky

Úkraínskir hermenn stóðu óvænt fyrir því í gærkvöldi að takmarkanir virðast hafa verið settar á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðum. Takmarkanirnar hafa bæði komið niður á árásum Úkraínumanna á birgðalínur rússneskra hermanna og á vörnum þeirra gegn sjálfsprengidrónum Rússa.

Þetta fylgir á hæla þess að bandarískir embættismenn eru sagðir hafa hótað því að hætta stuðningi við Úkraínu, hætti Úkraínumenn ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Þá hefur Donald Trump kallað eftir því að Úkraínumenn fái nýjan forseta og hefur Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, tekið undir það.

Sjá einnig: Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu

Umræddar takmarkanir eru sagðar snúa að því að móttökustöðvar sem ná tilteknum hraða slökkva á sér. Við það hafa úkraínskir hermenn misst samband við drónana sem þeir hafa verið að fljúga.

Blaðamaður Financial Times í Kænugarði segir takmarkanirnar hafi komið Úkraínumönnum í opna skjöldu og komið niður á störfum hermanna á víglínunni. Ekki hefur verið staðfest að þessar takmarkanir hafi vísvitandi verið settar á en Musk hefur áður verið sakaður um að beita Starlink með slíkum hætti.

Ráðgjafi Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, segir að Starlink-takmarkanirnar geti varla verið tilviljun. Þetta hljóti að vera tengt pólitískum aðstæðum.

Nota Starlink til að verjast nýjum sjálfsprengidrónum

Úkraínumenn hafa lengi reitt sig mikið á notkun Starlink-gervihnatta SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, og móttökustöðvar til samskipta á víglínunni og til að stýra drónum sínum. Að undanförnu hefur Starlink reynst sérstaklega mikilvægt þegar kemur að því að stýra sérstökum varnardrónum sem eru hannaðir til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum.

Drónar eins og Sting eru sérstaklega hannaðir til að granda rússneskum sjálfsprengidrónum og Úkraínumenn oft við Starlink til að stýra þeim.AP/Efrem Lukatsky

Rússar eru farnir að nota sífellt fleiri þotuknúna sjálfsprengidróna og eru þessir varnardrónar gífurlega mikilvægir gegn þeim.

Starlink-móttökustöðvarnar eru að miklu leyti fjármagnaðar af ríkjum Evrópu og þar á meðal af Póllandi. Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, sendi Musk þau skilaboð í morgun að evrópskir viðskiptavinir hans væru að fylgjast með stöðunni.

Pólverjar hafa kennt Rússum um að kveikt hefði verið í gervihnattamóttökustöð fyrir Starlink í Póllandi í síðasta mánuði. Að minnsta kosti tveir hafa verið handteknir vegna skemmdaverksins

Hafa beðið um að nota Starlink í Rússlandi

Undanfarna mánuði hafa Úkraínumenn farið fram á að Musk opni á notkun þeirra innan Rússlands, sem myndi gera Úkraínumönnum kleift að beita langdrægum drónum sínum af meiri nákvæmni.

Úkraínumenn vilja sérstaklega nota Starlink í Rússlandi til að elta uppi skotpalla Rússa fyrir skammdrægar skotflaugar, sem hafa reynst Úkraínumönnum mjög erfiðar á undanförnum mánuðum.

Rússar beittu 39 skotflaugum og rúmlega 120 sjálfsprengidrónum gegn Úkraínumönnum í nótt. Árásirnar beindust að miklu leyti gegn orkuverum og orkuinnviðum í Úkraínu. Orkuinnviðir í og við Kænugarð eru sagðir hafa orðið fyrir sérstaklega miklum skemmdum.

Sjá einnig: Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt

Undanfarna daga hafa Úkraínumenn einnig ekki fengið viðvaranir frá Bandaríkjamönnum um eldflaugaskot frá Rússlandi, eins og þeir hafa áður fengið. Það hefur þó ekki verið bendlað við hótanir Trump-liða heldur einstakar aðstæður og það að um skammdrægar skotflaugar er að ræða.

Þetta fylgir á hæla þess að Trump lýsti því nýlega yfir að ráðamenn í bæði Rússlandi og Úkraínu hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars. Það könnuðust hvorki Úkraínumenn né Rússar við en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Trump hefur sagt ósatt um samkomulag sem þetta.

Hann hefur að undanförnu reynt að kenna árásum Úkraínumanna á olíuvinnslur í Rússlandi og aðra olíuinnviði um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum og annars staðar. Sérfræðingar segja það ekki rétt hjá Trump.

Síðustu daga hafa Úkraínumenn forðast árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi en Rússar hafa gert fjölmargar árásir á orkuinnviði í Úkraínu.

Selenskí sagði í færslu á samfélagsmiðlum í morgun að allir í heiminum ættu að sjá raunveruleikann og bregðast við. Rússar hefðu sólundað þessu tækifæri til að draga úr spennu og halda „geðveikum“ hernaði þeirra áfram.

Þá fór hann fram á að Trump beitti Rússa refsiaðgerðum í takt við ný lög sem samþykkt voru í Bandaríkjunum. Trump hefur ítrekað hótað því að beita Rússa slíkum aðgerðum en aldrei staðið við það.

Þá kallaði selenskí eftir fleiri flugskeytum í Patriot-loftvarnarkerfi Úkraínumanna, sem eru þeim mikilvæg til að verjast skotflaugum Rússa.

„Það er fullkomlega eðlilegt að við segjum við Bandaríkin, Evrópu og alla bandamenn okkar að ekkert ríki í heiminum eigi að vera skilið eftir eitt og óstutt í baráttunni við jafn brenglaðan og stríðsæstan aðila og Rússland. Ég er þakklátur öllum þeim sem styðja Úkraínu. Friður getur aðeins náðst með styrk, og við biðjum Bandaríkin að hafa þá meginreglu Reagans í huga.“

Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, sagði við blaðamenn í morgun að best væri að „svo frábær tækni eins og Starlink“ væri yfir höfuð ekki notuð í hernaði.

Rússar notuðu Starlink mikið á sína dróna og til samskipta milli hersveita við innrásina í Úkraínu. Þá var móttökustöðvum smyglað í massavís til Rússlands, þar sem ekki mátti selja þær þangað með beinum hætti.

SpaceX lokaði þó á það í byrjun árs með því að stofna sérstakan lista yfir móttökustöðvar sem Úkraínumenn nota, bæði almenningur og hermenn, og verður lokað á aðgengi óskráðra stöðva á svæðinu.

Rússar lentu í miklu en tímabundnu basli eftir það. Síðan þá hafa þeir notað aðra tækni og byggt upp sína eigin til að stýra drónum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×