Erlent

Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump

Smári Jökull Jónsson skrifar
Selenskí ræðir við ráðstefnugesti í gegnum fjarfundarbúnað á öryggisráðstefnu í Varsjá í Póllandi í gær.
Selenskí ræðir við ráðstefnugesti í gegnum fjarfundarbúnað á öryggisráðstefnu í Varsjá í Póllandi í gær. Vísir/AP

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Rússa hafa gert árásir á sex orkumannvirki í landinu örfáum klukkustundum eftir að Donald Trump tilkynnti um orkuvopnahlé ríkjanna á milli.

Að sögn Selenskí hafa bensínstöðvar, orkuinnviðir og fleiri mannvirki orðið fyrir árásum og alls hafa 30 slasast. Í viðtali við Fox News segir hann að Úkraínumenn hafi ekki látið til skarar skríða líkt og Rússar.

„Ég held að þetta hafi verið svar Pútín til Trump,“ segir Selenskí.

Samkvæmt úkraínsku fréttastofunni Ukrinform varð meðal annars rafmagnslaust í borginni Isjúm eftir að rússnesk árás eyðilagði raforkukerfi. Orku- og járnbrautarinnviðir í vesturhluta landsins urðu einnig fyrir árásum í nótt.

Þá segir í tilkynningu Ukrenergo, ríkisreknu flutningsfyrirtæki raforku í Úkraínu, að rafmagnslaust hafi orðið í Kharkív, Donetks og Saporisjía vegna skemmda á búnaði og hefur rafmagni verið skammtað í hluta landsins til að koma í veg fyrir skemmdir vegna álags á búnað.

Tilkynnti um vopnahlé án vitundar Selenskíj

Þegar Trump tilkynnti um vopnahléið á sunnudag sagði Selenskí að það væru nýjar fréttir fyrir sér. Hann kvaðst þó styðja hugmyndina og kallaði hana mikilvægt skref í átt að stríðslokum ef Bandaríkjamenn myndu tryggja að Rússar virði hana.

Trump sagði í gær að ríkin hefðu fallist á vopnahléið því „ég sagði þeim að gera það“ og að stríðið yrði að leysast. Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa sagði hins vegar að Úkraína ætti ekki skilið vopnahlé.

Eldsneytisverð í Bandaríkjunum hefur hækkað í kjölfar átakanna í Mið-Austurlöndum en þingkosningar fara fram vestanhafs í byrjun nóvember. Trump tilkynnti á föstudag um áform um að flytja rússneska dísilolíu til Bandaríkjanna en samkomulagið felur í sér tímabundna undanþágu frá refsiaðgerðum Bandaríkjanna gegn orkuinnflutningi. Selenskí kallaði samkomulagið gjöf til Rússlands.


Tengdar fréttir

Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynning barst frá Donald Trump um að Bandaríkin og Úkraína hefðu samþykkt orkuvopnahlé í stríðinu. Hvorki stjórnvöld í Kænugarði né Moskvu hafa tjáð sig opinberlega um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×