Erlent

Hand­teknir fyrir að fé­fletta NATO-skip í Noregi

Kjartan Kjartansson skrifar
NATO-skip fyrir utan Þrándheim í Noregi árið 2018. Svindlað á að hafa verið á NATO-skipum víðsvegar í Noregi frá 2021 til 2025.
NATO-skip fyrir utan Þrándheim í Noregi árið 2018. Svindlað á að hafa verið á NATO-skipum víðsvegar í Noregi frá 2021 til 2025. Vísir/EPA

Fimm menn voru handteknir í Björgvin í Noregi í dag en þeir eru grunaður um að hafa ofrukkað skip á vegum Atlantshafsbandalagsins sem þeir þjónustuðu. Húsleit sem tengist rannsókninni var einnig gerð í Rúmeníu og Þýskalandi.

Yfirmaður efnahagsbrotadeildar norsku lögreglunnar segir málið grafalvarlegt og það fyrsta sem kemur upp þar sem NATO er fórnarlamb fjársvika í Noregi.

Rannsókn hófst eftir ábendingu frá Atlantshafsbandalaginu sjálfu sem taldi sig hafa verið ofrukkað af fyrirtæki fyrir þjónustu í norskum höfnum frá 2021 til 2025.

Alls á fyrirtæki mannanna að hafa ofrukkað NATO um tíu milljónir norskra króna, jafnvirði tæpra 129 milljóna íslenskra króna, að því er segir í frétt norska ríkisútvarpsins.

Mennirnir voru handteknir heima hjá sér en lögregla gerði einnig húsleit í húsakynnum fyrirtækisins. Hald var lagt á skjöl og stafræn gögn. Samhlið leitaði lögregla í Rúmeníu og Þýskalandi hjá nokkrum fyrirtækjum sem eru staðsett þar.

Norskir saksóknarar segja að skip frá nokkrum NATO-ríkjum hafi verið féflettt í norskum höfnum en of snemmt sé að segja til um hvaða ríki báru skaðann af prettunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×