Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Árni Sæberg skrifar 15. september 2026 14:50 Karl Gauti Hjaltason er þingmaður Miðflokksins. Vísir/Vilhelm Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á þingfundi dagsins.
Það gerði Karl Gauti í ræðu undir liðnum störf þingsins. Hann byrjaði á að reka að fyrir rétt um hálfum mánuði hafi ríkisstjórnin efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Fyrir kosningarnar var það helsta viðkvæði stjórnarliða að segjast treysta þjóðinni. Treysta þjóðinni. Atkvæðagreiðslunni var nú samt hrundið af stað þrátt fyrir að einn stjórnarflokkanna hafi ítrekað lýst andstöðu sinni við aðild að Evrópusambandinu og margsinnis lagt fram tillögu um brottfall umsóknar Jóhönnu Sigurðardóttur.“ Þorgerður Katrín hafi tekið alla stjórn Hæstvirtur utanríkisráðherra hafi tekið alla stjórn í því máli og gengið þar í fylkingarbrjósti af hálfu ríkisstjórnarinnar, á meðan hæstvirtur forsætisráðherra hafi sparað sig mjög í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna. „Hún tók enga forystu í málinu, enga, og ekki heldur eftir atkvæðagreiðsluna. Hana lét hún utanríkisráðherranum eftir, sem gekk fram af offorsi og hefur rýrt sig að áliti og trausti, bæði í Brussel og í Washington. Hæstivirtur utanríkisráðherra á ekkert erindi lengur í sínu embætti og henni væri sæmst að segja sig frá því þegar í stað.“ Hafi ekki hlustað á þjóðina Þá spurði Karl Gauti hvort ríkisstjórnin hefði efnt loforð sitt um að hlusta á þjóðina og fara eftir niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar. „Nei, það voru orðin tóm. Þau hafa reyndar haldið fyrir bæði eyru í hálfan mánuð. Þrátt fyrir að þjóðin hafi alfarið hafnað Evrópuvegferð ríkisstjórnarinnar þá streitist hún á móti að draga umsóknina til baka. Þar hefur hæstvirtur forsætisráðherra einnig eftirlátið forystuna til formanns Viðreisnar. Í stað þess að gera hið augljósa, fara eftir skýrri niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, hyggst ríkisstjórnin, undir forystu utanríkisráðherra Viðreisnar, hefna sín á þjóðinni með því að gera Evrópureglur rétthærri íslenskum lögum.“ Saknaði þess að Þorgerður Katrín fengi að svara ásökunum Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingar, óskaði eftir því að ræða fundarstjórn forseta að loknum störfum þingsins og gagnrýndi málflutning Karls Gauta. Hann hafi komið fram með alvarlegar ásakanir og óskir um afsögn Þorgerðar Katrínar að henni fjarverandi. „Eitt af því fyrsta sem mér var kennt hér í þingsal var að þegar við hér í ræðustól ætlum að taka fyrir ákveðna þingmenn, að þá sé þeim gefinn séns á að vera í þingsalnum til að svara fyrir þær sakir sem eru á þá bornar. Mér finnst það góður siður og ég hvet forseta til þess að beita sér fyrir því, þegar slíkt er í umræðu, að trygga að viðkomandi ráðherra eða þingmaður sé í salnum til þess að geta svarað fyrir þær ásakanir sem eru hann bornar.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Miðflokkurinn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira