Innlent

Á­rekstur á Vestur­lands­vegi tefur um­ferð

Eiður Þór Árnason skrifar
Á vettvangi fyrr í kvöld.
Á vettvangi fyrr í kvöld. aðsend

Árekstur varð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í kvöld þar sem ökumaður bifreiðar keyrði utan í tvo aðra bíla. Engin slys urðu á fólki en nokkuð er um umferðartafir á svæðinu á meðan unnið er að því að hreinsa vettvanginn, að sögn lögreglu.

Áreksturinn átti sér stað rétt fyrir neðan lögreglustöðina við Vínlandsleið. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn, að sögn varðstjóra slökkviliðs.

„Þetta hefði alveg getað farið verr skilst mér. Það fór dekk undan einum bíl en ég er ekki með allar upplýsingar þar sem þau eru enn þá á staðnum,“ segir Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Dráttarbíll sé á leiðinni á vettvang.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×