Sport

Búinn að hlaupa allar götur í Reykja­vík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þorleifur Þorleifsson er Íslandsmethafi í bakgarðshlaupum.
Þorleifur Þorleifsson er Íslandsmethafi í bakgarðshlaupum. Vísir/Sigurjón

Ofurhlauparinn Þorleifur Þorleifsson náði stórmerkilegum áfanga í gær, á öðrum degi júlímánuðar, og sagði frá því á samfélagsmiðlum sínum.

„Fyrir sjö árum skráði ég mig inn á CityStrides og byrjaði að „safna“ götum í Reykjavík. Ég setti mér ekkert markmið um að gera þetta á mettíma, heldur dundaði ég mér bara við þetta inn á milli,“ skrifaði Þorleifur.

„Í vor ákvað ég hins vegar að taka þetta föstum tökum. Í dag hljóp ég svo síðustu götuna – allar götur í Reykjavík afgreiddar,“ skrifaði Þorleifur og hann birtir sönnun með korti af borginni inni á CityStrides þar sem sjá má að allar götur borgarinnar eru orðnar bláar.

Hvað eru þetta margar götur? Jú, þær eru 1077 talsins og til að hlaupa þær allar þurfti Þorleifur að hlaupa samtals 483,8 kílómetra.

Þorleifur er þekktastur fyrir frábæran árangur sinn í bakgarðshlaupum en hann setti Íslandsmetið þegar hann kláraði 62 hringi. Þorleifur, sem vann fyrsta bakgarðshlaupið árið 2020, hefur líka oftar en einu sinni fagnað sigri á Íslandsmótinu auk þess að vinna önnur ofurhlaup á ferlinum. Hann keppti fyrir Íslands hönd á síðasta HM einstaklinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×