Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Árni Sæberg skrifar 4. júní 2026 15:02 Mikið óreiðuástand skapaðist við Skuggasund vegna mótmæla árið 2024. vísir/ívar fannar Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms um sýknu íslenska ríkisins af öllum kröfum níu mótmælenda, sem töldu lögreglu hafa beitt þá óþarfa hörku á vettvangi mótmæla í Skuggasundi árið 2024.
Dómur Landsréttar þess efnis var kveðinn upp klukkan 15. Hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Í málinu var tekist á um um réttinn til að mótmæla, sem er hluti af tjáningarfrelsinu, og það rammað inn hvað megi og hvað megi ekki gera á mótmælum. Hvort það teljist til friðsamlegra mótmæla að tefja för ráðherra með því að leggjast í götu og fylgja ekki fyrirmælum lögreglu. Á sama tíma er það skoðað við hvaða aðstæður valdbeiting lögreglu, að beita piparúða, á rétt á sér og í hvaða röð valdbeitingin eigi að vera. Í myndskeiðinu hér að neðan má sjá svipmyndir frá mótmælunum, sem blásið var til vegna átakanna í Ísrael og Palestínu: Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að valdbeiting lögreglunnar á mótmælunum hafi ekki verið saknæm eða ólögmæt. Heldur hafi hún verið nauðsynleg til að tryggja lögbundið hlutverk lögreglunnar og ekki brotið reglur um meðalhóf. Mótmælendurnir níu, sem voru beittir piparúða umræddan dag, voru þau Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Christa Hlín Lehmann, Daníel Þór Bjarnason, Elía Hörpu Önundarson, Lea María Lemarquis, Nerea Enriquez Santos, Pétur Eggerz Pétursson, Qussay Odeh og Steinunn Lukka Sigurðardóttir. Þau kröfðust hvert um sig 800 þúsund króna í miskabætur.
Dómsmál Átök í Ísrael og Palestínu Lögreglumál Lögreglan Reykjavík Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira