Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. maí 2026 15:16 Signý Einarsdóttir er talmeinafræðingur á Talstöðinni í Kópavogi. Aðsend Talstöðinni í Kópavogi, þjálfunarstofu talmeinafræðinga, verður skellt í lás í lok mánaðar eftir að hafa þjónustað börn í aldarfjórðung. Allir starfsmennirnir eru komnir á aldur en enginn hefur verið til í að taka við rekstrinum.
Signý Einarsdóttir er ein fjögurra talmeinafræðinga sem láta af störfum um mánaðamótin sökum aldurs. „Við erum allar að hætta um mánaðamótin og við höfum verið að draga lappirnar með það að loka því við vorum að vonast til þess að það tækju við nýir talmeinafræðingar,“ segir Signý í samtali við fréttastofu. „Við erum búnar að vera að auglýsa og reyna að fá yngra fólk eða nýtt fólk inn en það er enginn áhugi á því. Þá spyrjum við okkur þar sem það er þessi rosalega þörf.“ Í fréttatilkynningu frá Signýju, Grétu Pálsdóttur, Sigríði Ísleifsdóttur og Stellu Hermannsdóttur, tailmeinafræðingunum á Talstöðinni, segir að fimm þúsund börn bíði í allt að fjögur ár eftir því að komast að hjá talmeinafræðingi. „Þetta máltökuskeið kemur ekki aftur og fái þau ekki aðstoð þá getur það haft óafturkræfar afleiðingar fyrir þau í námi og starfi seinna meir á lífsleiðinni. Þetta eru börn og ungmenni í veikri stöðu með málþroskaröskun, framburðarörðugleika, hljóðkerfisröskun, stam, einhverfu, þroskaskerðingu og svona mætti lengi telja,“ segja talmeinafræðingarnir. Signý segir að það sé stór hópur sem fái þjónustuna á Talstöðinni sem nú þurfi að leita annað. Hún viti af fleiri stofum sem hyggjast loka á næstunni. „Þetta er grafalvarleg staða og við höfum miklar áhyggjur af þessu,“ segir Signý. „Skandall“ Töluvert hefur verið fjallað um langa biðlista hjá talmeinafræðingum landsins. Talmeinafræðingar Talstöðvarinnar segja að frá árinu 2012 hafi allmargar nefndir og starfshópar verið skipaðar á vegum stjórnvalda til að móta stefnu um skipan talmeinaþjónustu á Íslandi. „Iðulega án aðkomu fulltrúa stéttarinnar. Þetta mikla nefndastarf hefur ekki enn skilað árangri í bættri þjónustu við börn eða aðra skjólstæðinga. Það hefur miklu frekar valdið óvissu um framtíð stéttarinnar. Okkur grunar að stéttarsystkini okkar haldi að sér höndum og hiki við að sinna stofurekstri sem yrði ef til vill kolvarpað með nýrri reglugerð eða öðrum aðgerðum sem stjórnvöld teldu sér henta,“ segja þær. Þær gagnrýna einnig að Sjúkratryggingar Íslands hafi ekki gert samning við talmeinafræðinga síðan árið 2017. „Það er náttúrulega algjör skandall að Sjúkratryggingarnar hafi ekki samið við okkur eins og aðrar sambærilegar stéttir eins og sjúkraþjálfara og sérfræðilækna,“ segir Signý. „Hvernig í ósköpunum stendur á því?“ Stjórnvöld bíði eftir því að biðlistar hverfi Þær gagnrýna einnig blandaða kerfið, sem snýr að verkaskiptingu talmeinafræðinga sem starfa hjá sveitarfélögum og þeirra sem starfa á stofum. „Það kerfi er að sjálfsögðu ekki gallalaust frekar en önnur slík, en okkur finnst eðlilegt að blandaða kerfið verði styrkt og betrumbætt í samvinnu við talmeinafræðinga í stað þess að rústa því.“ Signý útskýrir að börn sem ná ákveðnum viðmiðum fái aðstoð í leik- og grunnskólum en þau sem falla undir viðmiðin þurfi að leita til að mynda til Talstöðvarinnar. Þær telja að kerfið sé annar þáttur í því af hverju talmeinafræðingar forðist stofureksturinn. Í tilkynningunni krefjast þær svara frá stjórnvöldum þar sem ef talmeinafræðingar flæmast úr stéttinni geti það haft afar alvarlegar afleiðingar. Þær spyrja hvort stjórnvöld ætli að aðhafast eitthvað eða bíða eftir því að biðlistarnir hverfi þegar þjónustan stendur ekki lengur til boða.
Heilbrigðismál Börn og uppeldi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira