Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Jakob Bjarnar skrifar 20. mars 2026 16:02 Pétur Gautur hefur fengið Ingvar Smára Birgisson sem sinn lögmann en þeir eru nú að undirbúa kæru til lögreglu. vísir/Ívar Fannar/aðsend Ingvar Smári Birgisson, lögmaður Péturs Gauts, segir mikilvægt fyrir skjólstæðing sinn að hann fái úr því skorið hvort hann eigi að þurfa að þola aðra eins meðferð og þá að látið sé að liggja að hann sé sekur um einn alvarlegasta glæp sem um getur.
Pétur Gautur myndlistarmaður er harðákveðinn í að kæra mál sem að honum snýr, aðdróttun sem sett var fram í Facebook-hópnum „Áfram stelpur!“, en þar eru skráðir meðlimir um 6.500 manns, þess efnis að hann væri eitthvað vafasamur og látið að liggja að til hans hafi farið 8 til 9 ára gamall strákur en á gólfinu mátti sjá dýnu og kodda. Þetta vakti ónotatilfinningu þess sem skrifaði. Eftirgrennslan leiddi hins vegar í ljós að um var að ræða afabarn Péturs Gauts og dýnan var fyrir hund hans af svissnesku fjallahundakyni. Vísir fjallaði um málið í gær. Pétur Gautur hefur fengið sér lögmann, Ingvar Smára, sem er að skoða málið. „Næstu skref eru að leggja fram kæru til lögreglu, að hún upplýsi um málið, hverjir það voru sem stóðu að baki þessum yfirlýsingum og leggja mat á hvort þarna sé um að ræða refsivert athæfi. Það gefur augaleið að það hljóta að vera afleiðingar, hvað þá þegar um er að ræða aðdróttanir sem snúa að einum alvarlegasta glæp sem hugsast getur. Ef fólk hefur raunverulegar áhyggjur af því að börn séu í hættu er eðlilegast að beina því til lögreglunnar en ekki vaða á Facebook með aðdróttanir gegn fólki úti í bæ.“ Að lögreglan finni út úr því hver skrifaði færsluna Ingvar Smári segir að þetta snúi þá meðal annars að því að óska þess að lögregla finni út úr því hvernig málið snýr þannig að fyrir liggi hver setti fram þennan Facebook-póst, þar sem sjá má mynd af Pétri, og svo athugasemdina sem þar er undir, en sá setti þetta fram undir nafnleynd. „Það er gert ráð fyrir því í hegningarlögum að lögreglan geti komist að því og þá væntanlega ræðir hún við stofnanda síðunnar eða einhvern frá Facebook til að finna út úr því. Það er auðvitað á forræði lögreglunnar að skoða þetta mál,“ segir Ingvar Smári. Hann sé að geta í eyðurnar. Þetta er færslan og athugasemdin sem um ræðir. Hana var að finna í hópnum Áfram stelpur! Lögmaður Péturs Gauts er að undirbúa kæru fyrir hans hönd og telur að lögreglan vilji finna höfundinn. Pétur Gautur vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar honum var bent á þennan áburð en hann segir í samtali við Vísi að honum hafi verið tjáð að lögreglan hreyfi sig frekar hægt í málum sem þessum? Ingvar Smári segir almennt það vandamál við rannsókn og saksókn mála að það séu of mörg mál á borðum lögreglunnar. „Þau sem eru hvað brýnust eru sett í forgang. Það er ekki hægt að ganga að því sem vísu að mál séu rannsökuð daginn eftir en þetta á við í nær öllum málum og vonandi er þetta eitthvað sem stendur til bóta í íslensku samfélagi.“ Aðdróttunin eitt, glæpurinn allt annað En með alvarlegar aðdróttanir á netinu, þá er sem slík mál vilji hverfa ofan í skúffu? Í raun virðist sem alvarleg brot og svo ásakanir um alvarleg brot séu sitt hvað, þarna virðist augljós mótsögn? „Já, í grundvallaratriðum um ærumeiðingar og aðdróttanir eigast við tjáningarfrelsi annars vegar og hins vegar friðhelgi einkalífs, æru og frelsi manna. Við höfum sett okkur ákveðnar grundvallarreglur. Ef ásökun er röng eða felur í sér órökstuddar aðdróttanir getur það leitt til skaðabótaskyldu og refsingar. Það hefur rofað til í þessum efnum.“ Fólk virðist hafa upplifað það sem svo að það geti hent nánast hverju sem er fram á netinu, að sögn lögmannsins. „Þar hefur skort á ábyrgð. En það er mikilvægt að skjólstæðingur minn fái úr því skorið hvort hann þurfi að þola þá meðferð sem hann varð fyrir,“ segir Ingvar Smári.
Reykjavík Samfélagsmiðlar Ofbeldi gegn börnum Myndlist Gæludýr Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Fleiri fréttir Ekkert að frétta af rannsókn ránsins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að beita sektum á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Sjá meira