Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. mars 2026 13:45 Sveinbjörn Pétursson verður áfram í Ísrael. hapoel ashdod Handboltamaðurinn Sveinbjörn Pétursson og eiginkona hans eru ekki á heimleið til Íslands frá Ísrael. Þau eru ekki í stöðu til að ferðast í flug sem þeim var boðið frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu, en myndu stökkva upp í næstu vél frá Ísrael. Þau eru þó að eigin sögn örugg, enda með neðanjarðarbyrgi til að skýla sér bæði heima fyrir og á æfingum. „
Auðvitað er þetta óþægileg upplifun og allt það, en við gætum samt verið í verri stöðu miðað við aðra Íslendinga sem maður hefur heyrt og lesið um undanfarna daga sem eru stödd hérna í heiminum,“ segir Sveinbjörn í skriflegum svörum við fyrirspurn Vísis. „Við erum örugg þar sem við búum og erum með neðanjarðarbunker [byrgi] sem við hoppum í þegar þess þarf. Við erum nýkomin upp eftir að hafa þurft að hoppa niður,“ bætti hann við. Sveinbjörn hefur búið í Ashdod í Ísrael ásamt þýskri eiginkonu sinni síðustu tvö árin tæplega. Þau fluttu þangað til lands frá Þýskalandi þegar Sveinbjörn gerði samning við handboltaliðið Hapoel Ashdod árið 2024. Úrslitakeppnin í ísraelsku úrvalsdeildinni átti að hefjast í dag en öllum leikjum hefur verið frestað til 27. mars hið fyrsta. Liðið fékk að fara á æfingu í gær í fyrsta sinn síðan átökin brutust út en hún gekk ekki stopplaust fyrir sig. „Það eru varúðarsírenur reglulega ef eitthvað gæti verið á leiðinni hingað og þá fer maður á öruggan stað á meðan það gengur yfir,“ segir Sveinbjörn. Íslendingum á átakasvæðum í Mið-Austurlöndum hefur verið boðið björgunarflug af borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins, en þau flug fara frá Amman í Jórdaníu og Riyaj í Sádi-Arabíu. Líkt og fleiri Íslendingar sá Sveinbjörn sér ekki fært að fara í þau flug. „Ekki á leið héðan eins og er, utanríkisráðuneytið bauð uppá flug frá Jórdaníu eða Sádi-Arabíu ef maður gæti reddað sér þangað, sá bíltúr er ekki að fara að gerast af minni hálfu,“ segir Sveinbjörn. „Ef ég gæti bara rúllað upp á völl til Tel-Aviv í dag myndi ég taka flugið heim, það er alveg þannig,“ svaraði hann aðspurður um hvort hann myndi vilja fara frá Ísrael.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Ísrael Handbolti Hernaður Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira